Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Sumarblóm í hengipottum er blóm mánaðarins.
Sumarblóm í hengipottum er blóm mánaðarins.
Mynd / Aðsend
Líf og starf 18. maí 2026

Sumarblóm í hengipottum – úr ýmsu að velja

Höfundur: Ingólfur Guðnason
Ingólfur Guðnason.

- Blóm mánaðarins

Pottaplöntur heimilisins hafa vonandi komið vel undan vetri en þá er hægt að beina huganum að öðrum tegundum blóma. Biðin eftir vorinu getur verið strembin fyrir þá sem vilja prýða heimilisgarðinn með litríkum sumarblómum. Þau láta lítið yfir sér í fyrstu en ná að fanga athyglina þegar blómskrúðið kemur í ljós í sumarbyrjun. Mikill fjöldi tegunda er ræktaður í gróðrarstöðvum sem fara að bjóða þær til sölu nú þegar slakna fer á vetrar- og vorkuldanum. Gróðursett er í beð af öllu tagi, einnig í stærri og smærri blómaker.

Hengiblóm í garðinum

Skemmtileg leið til að prýða heimilisgarðinn er að hafa sumarblóm í hengipottum. Þeim má koma fyrir á ólíkum stöðum, td. á svalahandrið, veggi sólpalla, á grindur sólskála eða bara hvar sem er. Valdar eru tegundir sem eiga það sameiginlegt að vera gróskumiklar, blómríkar, vindþolnar og ekki sakar ef þær geta þolað nokkurn þurrk öðru hvoru. Allar eiga sameiginlegt að njóta sín best á sólríkum stað. Í garðplöntustöðvum er hægt að fá hengipottablóm sem góð reynsla er komin á hér á landi og þar er líka hægt að sjá nýjar tegundir í ræktun og aukið litaúrval í þeim eldri.

Ræktun hengiblómanna hefst síðla vetrar í gróðrarstöðvunum. Sumar tegundir eru ræktaðar af fræi, öðrum er fjölgað með græðlingum. Takast þarf á við ýmisleg atriði í uppeldinu. Sáning getur verið vandasöm, sömuleiðis þarf að taka græðlinga af móðurplöntum á réttu stigi eða notast við innflutta græðlinga þegar það á við. Ræktandinn þarf að hafa góða stjórn á hitastigi í gróðurhúsinu til að fá fram þéttar og blómmiklar plöntur á réttum tíma. Sömuleiðis getur þurft að halda aftur af lengdarvextinum með því að stytta greinar, jafnvel oftar en einu sinni. Plöntur í hengipottum eru yfirleitt ræktaðar í fremur stórum pottum, um 15 cm í þvermál. Vökvun er nákvæmnisatriði þar sem pottarnir hanga á vírum í gróðurhúsinu en ekki á venjulegum ræktunarborðum, nema fyrri hluta vaxtartímans. Flestir framleiðendur notast við sérstakt dropavökvunarkerfi til að stýra vökvuninni.

Umhirðan er einföld

Hengipottablómin eru notuð sem einærar plöntur því þær þola fæstar frost. Margar tegundir eru á markaðinum og það sem einkennir þær er hversu lengi þær blómstra og breiða úr sér, halda blómskrúði sínu jafnvel fram á haust. Sumar þeirra mætti færa inn í garðgróðurhús eða garðskála þegar haustar og lengja líftímann þannig. Til að halda blómskrúðinu sem mestu er ágætt ráð að fjarlægja þau blóm sem tekin eru að sölna, þannig fáum við lengri blómgunartíma. Fylgjast þarf vandlega með vökvun hengipotta því þeir eiga til að þorna hratt. Vökvað er með daufum blómaáburði fram eftir sumri. 

Fjöldi tegunda og yrkja fæst í gróðrarstöðvunum

Fallegar, sterkar og blómríkar tegundir eru til dæmis hengitóbakshorn (Petunia x hybrida ´surfinia´), betlehemsstjarna (Campanula isophylla), snædrífa (Sutera diffusa), sólboði (Osteospermum x hybridum), hengibegonía (Begonia boliviensis), blómahorn (Calibrachoa ´Million bells´), hengibrúðarauga (Lobelia erinus ´pendula´), skjaldflétta (Tropaeolum majus), borgardís (Diascia barbarae) og garðaslæða (Gypsophila muralis).

Engin leið er að lýsa blómfegurðinni með orðum. Best er að kynnast þessum fallegu blómum með því að heimsækja garðplöntustöðvarnar, dást að allri dýrðinni og fá þar faglegar upplýsingar um þarfir hverrar tegundar fyrir sig.

Höfundur er kennari við garðyrkjuskólann, Reykjum/FSu.

Gervigreind flytur sögukennslu til fortíðar
Líf og starf 15. október 2026

Gervigreind flytur sögukennslu til fortíðar

Gervigreindin er að breyta sögukennslu í framhaldsskólum landsins. Æ fleiri þeir...

Lausn á myndagátu í 18. tölublaði
Líf og starf 12. október 2026

Lausn á myndagátu í 18. tölublaði

Í loftmyndagetrauninni í 18. tölublaði voru lesendur beðnir um að bera kennsl á ...

Lausn á vísnagátunni úr 18. tölublaði
Líf og starf 12. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 18. tölublaði

Hér birtist lausnarorðið við vísnagátunni úr 18. tölublaði Bændablaðsins. Gátan ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin má eiga von á, nú með nýju tungli, að reynt verði á samskipta- og/eða sams...

Ungir vinna Haustmótið
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósef...

Ásaspurning – en hvað er tromp?
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og of...

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f