Ást á tímum Bænder
Þetta frumstæða afl sem býr í okkur öllum og tekur yfir án þess að við fáum nokkru við ráðið. Því má líkja við stormsveip í brjóstinu, villtan hest eða skógareld sem getur skilið eftir sig rústir jafnt sem rósagarða ... uppsprettu allrar fegurðar sem þó getur brotið allar reglur rökseminnar ... eins og þeir sem einhvern tíma hafa orðið ástfangnir geta eðlilega vitnað um.
Yfir áratugina hefur ástin birst á ýmsa vegu. Ekki er langt síðan fólk á öllum aldri sat afar spennt við útvarpstækin þegar vinsældalistar útvarpsfréttanna loguðu og á milli laga las þulurinn upp viðlíka kveðjur: „Eldheitar ástar- og stuðkveðjur til Þórdísar Sifjar með laginu Miss Flower eftir Emilíönu Torrini ... frá leyndum aðdáanda.“
En nú er sagan önnur og því miður virðist sem þessar æsilegu kveðjur ljósvakans séu liðnar undir lok. Rómantíkin í andarslitrunum enda situr stór hluti landsmanna með símann við andlitið í stað þess að fá sér gönguferð í ísbúðina með ástvinum sínum. Nú þykir eðlilegt að leita sér fanga á einkamal.is eða fara á svokölluð stefnumótaöpp á borð við Feeld eða Tinder.
Við hér á Bændablaðinu erum ekki alveg til í svo tölvuvædda framtíð og berjum í borðið. Fyrst endurvöktum við rómans einkamáladálks smáauglýsinganna. Næst tókum við til þess bragðs að birta síðu í blaðinu ætlaða einhleypu fólki á landsbyggðinni. Miðað við fiðringinn sem fór um landið eftir þá lesningu gengum við í málið aftur nú í síðasta blaði fyrir sumarfrí og settum út netin fyrir einhleypa einstaklinga hvaðanæva að af landinu – því jú, Bændablaðið er allra.
BÆNDER er mættur aftur og fyrir þá sem hafa áhuga á frekari kynnum sem hér birtast mega hafa samband við okkur á blaðinu – nú eða leita viðkomandi uppi á samfélagsmiðlum.
Við elskum ykkur öll og bjóðum gleðilegt sumar. Njótið lestursins. Ekki hanga í símanum.

Lea Birna Lárusdóttir
Þrítug húseigandi úr Hvolhreppi auglýsir eftir framtíðarbóndanum… eða bara góðum manni. Er sjálfstæð, húmoristi með góða áru og tilbúin að stækka við sig ef rétti einstaklingurinn lætur sjá sig. Óska eftir manni sem hefur húmor, er úrræðagóður, reynslumikill og tekur sjálfan sig ekki of alvarlega. Dráttarvélaréttindi teljast kostur en eru alls ekki skilyrði.

Rebekka Karolína Björgvinsdóttir
Hér höfum við konu sem alla dreymir um! Hjartahlý og brosmild allan hringinn, hörkutól OG kona með kvóta og kýr. Stærsta skilyrði er ást á hrossum og að koma fram við dýr og fólk af virðingu, skemmir ekki fyrir ef hann er góður kynbótagripur. Það fylgir sætt og fyndið stúlkubarn með í þessum pakka ... segir vinkona Rebekku sem skrifar þennan texta.

Lárus Jóhannsson
Já, kominn með nóg af einhleypingsskap. Árg. '54 í góðu formi, nálægt kjörþyngd. Rólyndur, skapgóður, heiðarlegur, traustur, með góðan húmor, handlaginn. Áhugamál: Hönnun, smíðar, útivera í höfum við náttúrunni, sagnfræði, bókmenntir o.fl. Óska eftir maka sem hefur svipaða eiginleika m.a. Bý í Reykjavík en á mér líka athvarf á Ströndum.

Ósk Reynisdóttir
Ég leita eftir manni sem er duglegur, handlæginn og til í smá bras. Hjálpar til ef hann getur lagað Cruiser og hefur áhuga á kindum. Sjálf er ég frekar róleg og hjálpsöm með menntun í búfræði og búvísindum. Ég hef mikinn áhuga á kindum og hestum. Bý í Mosfellsbæ en er með annan fótinn á sveitabæjum hér og þar um landið. Er ekki að leita af prinsi á hvítum hesti en bóndi á dráttarvél kemur vel til greina.

Bríet Auður Baldursdóttir
Er 26 ára gömul og orðin þreytt á því að vera single. Hún er með blandað bú- hestar-naut-kindur. Einnig fylgir henni einn lítill snáði sem er að verða 5 ára gamall. Bríet býr í Landeyjum og rekur einnig lítið sveitahótel með fjölskyldu sinni þar. Eins og má sjá þá er nóg að gera. Enda best að heyra í henni þegar kemur að hausti. Maki þarf að vera heiðarlegur, snyrtilegur og duglegur vinnu kall( svo hægt sé að nota hann). Ekki væri verra ef kauði er með lyftarapróf.

Hildur Þórsdóttir
Leita að manni með húmor, dugnað og helst smá handlagni. Bónusstig ef þú hefur gaman af kindum. Stofninn er lítill, en arfgerðargreiningin er góð. Sjálf er ég róleg Snæfellsnestútta frá Snæfellsbæ

Daði Geir Samúelsson
Ég er 32 ára, alinn upp á kúabúi í Hrunamannahreppi og rekstrarstjóri hjá Sólskins grænmeti á Flúðum. Ég eyði dögunum innan um dísæt jarðarber og ferskt grænmeti, en nú vantar mig líka dísæta skvísu til að njóta lífsins með. Það væri kostur ef hún hefði gaman af sveitalífinu, útivist og tekur lífinu hæfilega alvarlega.

Ólafur Auðunn Steinþórsson
35 ára fullvaxið karldýr, tveggja manna maki, faðir , vinur, sonur, barnsfaðir … draumakonan þarf að vera lagleg og fyndin, bið ekki um mikið. Dýrfirðingur, Mýrhreppingur .

Bjarki Leó Brynjarsson
Ungur maður, 22 ára gamall ættaður frá Selfossi. Áhugamál, íslensk náttúra, hekl og er mikill vélakall (dráttavélar og því um líkt).

Elísabet Ólafsdóttir
Draumabóndinn er lífsglaður jákvæður sjálf er ég sveitasinnuð hestakona og búkona góð af Suðurlandi
Ég er alveg ágæt kona
elskuleg og iðin
útlitið er svona og svona
sérlega vel liðin
Lífsglaður, góður og ljúfur maður
vongóð leita þar til ég finn
á hestum hann gjarnan má syngja svo glaður
er hér að finna bóndann minn

Ása Dóra Finnbogadóttir
Einstök móðir 4ra ára stelpuskotts býr í Húsey í Skagafirði, ásamt tík af íslensku fjárhundakyni, sem er eina húsdýrið á bænum - enn sem komið er."
Vinkona hennar skrifar: „Ása Dóra pússar nú veiðihárin og bíður eftir stórskemmtilegum, hressum manni til að bralla hitt og þetta með. Aðallega hitt. Langur listi er til yfir mannkosti þess sem kemur til greina, en ekki er verra að álitlegt mannsefni sé barngóður, hafi gaman að ævintýrum, geti tekið til hendinni og hafi hressan og góðan húmor. Svo skiptir auðvitað mestu að neistinn sé til staðar!“

Bryndís McFadden Ragnarsdóttir (Blómarósin)
Sveitin hefur alltaf átt sérstakan stað í hjarta mínu, sérstaklega kýrnar. Vorið 1984 fór ég í Bændahöllina við Hagatorg í þeirri von að komast í sveit. Mér bauðst að leysa af í þrjár vikur á bóndabæ á Suðurlandi, en úr varð að ég var þar allt sumarið. Minningarnar þaðan hafa fylgt mér æ síðan og nú langar mig aftur að tengjast sveitalífinu og kúabúskapnum.

