Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Hrossabóndi eða hundatemjari
Fólkið sem erfir landið 8. desember 2017

Hrossabóndi eða hundatemjari

Erla er mikill dýravinur og náttúrubarn. Henni finnst gaman í fjárhúsunum með pabba sínum og vera á hestbaki með vinum. Hún er svo heppin að hafa getað verið aðstoðarmanneskja í hestaleigu hjá Active North síðastliðin tvö sumur. 
 
Nafn: Erla Bernharðsdóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Ærlækjarsel í Öxarfirði.
Skóli: Öxarfjarðarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir og myndmennt.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hestur og hundur.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Metallica og fleiri.
Uppáhaldskvikmynd: Veit ekki.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var 3 ára og stalst inn í búr og flysjaði allar mandarínurnar.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi á gítar og bassa.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Hrossabóndi eða hundatemjari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Fór ein (ekki með neinum úr fjölskyldunni) til New York, þegar ég var 9 ára.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Ég fór í nokkurra daga  hestaferð með fjölskyldu og vinum.
 
Næst » Erla skorar á Þorstein Sveinsson á Ærlæk í Öxarfirði að taka næst þátt.
Birkir Þór
Fólkið sem erfir landið 9. júní 2026

Birkir Þór

Nafn: Birkir Þór Andrason.

Máni
Fólkið sem erfir landið 26. maí 2026

Máni

Nafn: Máni Lucien Gyðuson Jourde.

Unnur Lóa
Fólkið sem erfir landið 8. maí 2026

Unnur Lóa

Nafn: Unnur Lóa Ómarsdóttir.

Guðmundur Fróði
Fólkið sem erfir landið 27. apríl 2026

Guðmundur Fróði

Nafn: Guðmundur Fróði Sverrisson.

Katrín Yrja
Fólkið sem erfir landið 14. apríl 2026

Katrín Yrja

Nafn: Katrín Yrja Þóroddsdóttir.

Viktoría Sól
Fólkið sem erfir landið 23. mars 2026

Viktoría Sól

Flóki Léon
Fólkið sem erfir landið 11. mars 2026

Flóki Léon

Nafn: Flóki Léon Gyðuson Jourde. Aldur: 7 ára. Stjörnumerki: Steingeit.

Árni
Fólkið sem erfir landið 30. desember 2025

Árni

Nafn: Árni Helgason. Aldur: 12 ára.