Skylt efni

trjáplöntur

Um 180 þúsund trjáplöntur verða  gróðursettar í hlíðum Spákonufells
Fréttir 7. júní 2021

Um 180 þúsund trjáplöntur verða gróðursettar í hlíðum Spákonufells

Alls verða gróðursettar 180 þúsund trjáplöntur í hlíðum Spákonufells ofan við þéttbýlið á Skagaströnd samkvæmt samningi á milli Skógræktarinnar og One Tree Planted. Hafist verður handa næsta vor, 2022, en verkefninu lýkur haustið 2024. Í kjölfarið mun vaxa upp skógur sem nýtist m.a. íbúum Skagastrandar, nágrönnum þeirra og gestum til útivistar.