Baldur og Herjólfur sigla til og frá Vestmannaeyjum
Ferjurnar Baldur og Herjólfur munu sigla til og frá Vestmannaeyjum frá 8. júní næstkomandi. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti þessar breytingar á íbúafundi sem Vegagerðin hélt í Vestmannaeyjum í gær. Samráð hefur verið haft við heimamenn í Eyjum og í Breiðafirði vegna þessara breytinga sem eru til komnar vegna vélarbilunar Herjólfs.

