Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Pálmi Viðar Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, tekur við fyrstu bílunum frá Kristmanni Frey Dagssyni, sölustjóra Öskju.
Pálmi Viðar Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, tekur við fyrstu bílunum frá Kristmanni Frey Dagssyni, sölustjóra Öskju.
Mynd / Bílaleiga Akureyrar
Líf og starf 20. október 2021

Keyptu 70 rafbíla á einu bretti

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdótttir

Höldur-Bílaleiga Akureyrar festi kaup á 70 rafbílum á dögunum, en um er að ræða stærstu einstöku kaup á rafbílum hér á landi.

Fyrirtækið leggur mikla áherslu á orkuskipti í bílaflota sínum, en um 15% bílanna nú eru raf- eða tvinnbílar. Stefnt er að því að fjórðungur bílaflotans verði raf- eða tvinnbílar á næsta ári, að sögn Steingríms Birgissonar, framkvæmdastjóra félagsins.

Bílarnir eru af gerðinni Kia-Niro og er bróðurpartur þeirra, um 60 bílar, þegar komnir til landsins og komnir í útleigu. Steingrímur segir að félagið hafi smám saman verið að fjölga umhverfisvænum bílum í sínum flota og vildu gjarnan gera það hraðar. Það sem hamlar helst er að innviði skorti hér og hvar um landið, við hótel og gististaði vanti fleiri hleðslustöðvar.

Viðskiptavinir vilji gjarnan leigja rafbíla, en enn sem komið er nýtir einungis innlendi markaðurinn þá bíla. Þeir erlendu ferðamenn sem eru á ferð um landið geti ekki nýtt sér þá þar sem ekki er á vísan að róa með hleðslu á gististað. Steingrímur vonar að úr því rætist en Orkusjóður hafi auglýst styrki til gististaða sem vilja byggja upp hleðslustöðvar við fyrirtæki sín.

50 milljónir í hleðslustöðvar

Steingrímur segir að vissulega sé dýrt að koma upp hleðslustöðvum. Höldur-Bílaleiga Akureyrar hefur undanfarin misseri staðið í uppbyggingu á slíkum stöðvum.

Við nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins í Reykjavík, í Skútuvogi 8, er búið að setja upp 26 stöðvar en gert ráð fyrir við uppbygginguna að hægt verði að fjölga þeim upp í 100.

Við Reykjavíkurflugvöll voru settar upp 6 hleðslustöðvar og þær eru jafnmargar á Akureyri, en dreifast á þrjá staði.

„Við erum með 38 hleðslustöðvar núna og ljóst að við munum fjölga þeim umtalsvert á næstunni,“ segir Steingrímur. Fjárfesting við uppbygginguna nemur um 50 milljónum króna, en 6 til 8 milljóna króna styrkur fékkst úr Orkusjóði. 

Skylt efni: rafbílar

Örlög fransk-íslenskra kartaflna
Líf og starf 11. ágúst 2026

Örlög fransk-íslenskra kartaflna

Samkvæmt fréttum sem fara eins og stormsveipur um landsbyggðina og nær heiminn a...

Gíslasafn á Uppsölum
Líf og starf 11. ágúst 2026

Gíslasafn á Uppsölum

Safn Gísla á Uppsölum var opnað á Selárdalshátíð föstudaginn 7. ágúst síðastliði...

Tak hnakk þinn og hest
Líf og starf 10. ágúst 2026

Tak hnakk þinn og hest

Sú hugmynd að leiða saman helstu hryssur, fola og gæðinga landsins á einn stað o...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 4. ágúst 2026

Lausn á vísnagátunni

Vísnagátan úr 13. tbl Bændablaðsins hljómaði svo:

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. ágúst 2026

Stjörnuspá vikunnar

Ljónið ætti að nýta næstu vikur til að hreinsa til heima hjá sér, losa sig við a...

Ást á tímum Bænder
Líf og starf 9. júlí 2026

Ást á tímum Bænder

Þetta frumstæða afl sem býr í okkur öllum og tekur yfir án þess að við fáum nokk...

Byrjandi leggur skúrk
Líf og starf 8. júlí 2026

Byrjandi leggur skúrk

Byrjendur í bridds fara stundum varlegar í hindranasagnir en hinir sem lengra er...

Skáksumarið hafið
Líf og starf 7. júlí 2026

Skáksumarið hafið

Skáksumarið 2026 er hafið með pomp og prakt. Teflt er mikið hérlendis ásamt því ...