Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Bókin Jeppar í lífi þjóðar er 280 blaðsíður í stóru broti. Þar eru um 600 ljósmyndir sem sýna hvernig jeppar hafa snert Íslendinga á fjölbreyttan hátt.
Bókin Jeppar í lífi þjóðar er 280 blaðsíður í stóru broti. Þar eru um 600 ljósmyndir sem sýna hvernig jeppar hafa snert Íslendinga á fjölbreyttan hátt.
Mynd / Forlagið
Líf og starf 29. október 2025

Jeppar í lífi þjóðar

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Út er komin bókin Jeppar í lífi þjóðar eftir Örn Sigurðsson. Þar bregður hann lifandi ljósi á þennan merka kafla í íslenskri samgöngusögu í bók sem myndskreytt er með 600 ljósmyndum.

Þetta er þykk og eiguleg bók í stóru broti sem gaman er að fletta í gegnum. Henni er skipt upp í níu kafla sem eru helgaðir helstu jeppategundum síðustu aldar. Í upphafi er talað um Willys-jeppana sem komu fyrst á stríðsárunum. Þá er kafli tileinkaður Land Rover og annar sem snýr að Rússajeppunum. Sérstök umræða er um aðra jeppa eins og Gipsy, Scout, Lapplander, Bronco og loks fjölbreytt úrval japanskra jeppa. Enn fremur eru sérstakir kaflar um torfærukeppnir og fjallaferðir.

Bókin er byggð upp á þann hátt að ljósmyndir leika aðalhlutverk og er undir hverri greinargóður myndatexti. Lesendur geta því gripið niður í bókina hvar sem er og lesið sig í gegnum hana í þeirri röð sem þeir vilja. Að auki við myndir má sjá gamlar auglýsingar sem voru notaðar í markaðssetningu jeppabifreiða eða blaðagreinar þegar jeppar rötuðu í fréttir. Jeppaáhugamenn með stutta athyglisspönn geta því gert sér þessa bók að góðu.

Hér má sjá opnu úr kaflanum sem snýr að Willys-jeppunum. Þeir voru meðal þeirra jeppa sem snertu bændur hvað mest, enda öflug landbúnaðartæki og komu á sjónarsviðið um það leyti sem vélvæðing reið yfir íslenskar sveitir.

Þessi ljósmynd eftir Ottó Eyfjörð sýnir krakka með hvolpa sitja framan við Bronco-jeppa. Ártal óþekkt, en sennilega tekin á sjöunda áratugnum.

Guðmundur Hjörleifsson tók þessa mynd af óþekktu fólki á Austin Gipsy-jeppa með gripakerru í eftirdragi árið 1965.

Willys-jeppi í heyskap á Torfastöðum á áttunda áratugnum. Ljósmyndina tók Guðmundur Óli Ólafsson.

Í Aðalvík á Hornströndum mátti sjá þennan Willys-jeppa á áttunda áratugnum. Ljósmynd eftir Sigurð Jónsson.

Landmannalaugar í myndagetraun blaðsins
Líf og starf 30. mars 2026

Landmannalaugar í myndagetraun blaðsins

Rétt svar við myndagetraun 6. tbl Bændablaðsins var Landmannalaugar.

TV Íslandsmeistarar skákfélaga
Líf og starf 23. mars 2026

TV Íslandsmeistarar skákfélaga

Um helgina náði Taflfélag Vestmannaeyja þeim eftirsóknarverða áfanga að verða Ís...

Maggi og Bessi bestir
Líf og starf 23. mars 2026

Maggi og Bessi bestir

Íslandsmótið í tvímenningi 2026 í bridge fór fram í Síðumúlanum, höfuðstöðvum Br...

Sverðburkni – svipmikil klassísk pottaplanta
Líf og starf 23. mars 2026

Sverðburkni – svipmikil klassísk pottaplanta

Sverðburkninn (Nephrolepis exaltata) hefur prýtt íslensk heimili um langan aldur...

Vísnahornið
Líf og starf 23. mars 2026

Vísnahornið

Umsjónarmaður fékk umvöndun frá Sigfúsi Jónssyni:

Frá Alsír til Hvalfjarðar
Líf og starf 20. mars 2026

Frá Alsír til Hvalfjarðar

Í um 350 ár hafa Passíusálmar Hallgríms Péturssonar verið lesnir og sungnir á fö...

Bandarískur aðall
Líf og starf 20. mars 2026

Bandarískur aðall

Love Story heitir sjónvarpsþáttaröð frá Hulu (aðgengileg á Disney-streymisveitun...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 16. mars 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er svarið við vísnagátunni úr 5. tbl Bændablaðsins.