Þrír af spilurum Fiskmarkaðar Djúpavogs, sterkustu sveitar Austurlands.  Frá vinstri Magnús Ásgrímsson, Stefán Kristmannsson og Guttormur Kristmannsson.
Þrír af spilurum Fiskmarkaðar Djúpavogs, sterkustu sveitar Austurlands. Frá vinstri Magnús Ásgrímsson, Stefán Kristmannsson og Guttormur Kristmannsson.
Mynd / Björn Þorláksson
Líf og starf 14. apríl 2026

Hart barist um gullið fyrir austan

Höfundur: Björn Þorláksson

Austurlandsmótið í sveitakeppni fór fram á dögunum á Eiðum og fór sérlega fram. Austurlandsmeistarar 2026 eru sveit Fiskmarkaðar Djúpavogs en gestasveitin SFG varð efst í mótinu.

Í næstsíðustu umferð tókust á efstu sveitirnar tvær í innbyrðis viðureign og ekkert gefið eftir. Guttormur Kristmannsson og Sigurjón Stefánsson skrifuðu feita tölu í eigin dálk gegn SFG í spili dagsins sem er úr bardaganum.

Eftir opnun á spaða og hjartainnákomu á öðru sagnstiginu hólkaði Guttormur sér í 4 spaða án umhugsunar. Liðsmaður SFG doblaði með ágætan fimmlit í trompi, nokkuð vongóður. Út kom lauf, Sigurjón sagnhafi tók á laufás, spilaði hjartás, trompaði hjarta og spilaði tígli. Norður drap, spilaði trompi og þótt legan væri ekki frýnileg var ekki annað eftir en að trompa 3ja hjartað og þegar það gekk rekur spilið sig upp í 10 slagi, þar af tók Sigurjón 7 trompslagi. Engin veizla hjá Norðri. Glæsileg tala eða 790 í dálk Austurlandsmeistaranna í Fiskmarkaði Djúpavogs.

Aðeins eitt annað par skifaði þá tölu í eigin dálk í þessu spili, en það var á hinu borðinu í leiknum! Fiskmarkaðurinn vann leikinn gegn SFG en alslemma í síðasta spili mótsins í lokaumferð skilaði SFG sigrinum á mótinu.

Umsjónarmaður þakkar Austfirðingum og ekki síst Eyþóri Stefánssyni frábærar móttökur og hvetur til góðrar þátttöku næsta ár. Alls komu þrjár gestasveitir að sunnan nú en heimamannaliðin dreifðust allt frá Vopnafirði og suður að Hornafirði.

Umsjón: Björn Þorláksson.

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Austurlandsmótið var mjög vel sótt og frábærlega að því staðið með hagstæðum tilboðum fyrir gestasveitir og fyrirtaks veitingum og gistingu á Eiðum. Mynd: BÞ

Skylt efni: bridds | Hugaríþrottir

Blómlegt skáklíf í Hafnarfirði
Líf og starf 13. maí 2026

Blómlegt skáklíf í Hafnarfirði

Undanfarna mánuði hefur skáklífið blómstrað í Hafnarfirði. Auk skákæfinga Skákde...

Sveinn Pálsson
Líf og starf 13. maí 2026

Sveinn Pálsson

Eitt af því sem einkennir vora tíma er að flest fyrirbrigði á jörðinni eiga sér ...

Blómin á þakinu á Vesturbæjarskóla
Líf og starf 12. maí 2026

Blómin á þakinu á Vesturbæjarskóla

Mikil gróska er í gróðurhúsinu á þaki Vesturbæjarskóla þar sem nemendur í sjötta...

Vísnahornið
Líf og starf 11. maí 2026

Vísnahornið

Þættinum barst kveðja frá Tómasi Inga Þorgrímssyni varðandi leturstærð:

Hólmavík rétt svar við myndagetraun
Líf og starf 4. maí 2026

Hólmavík rétt svar við myndagetraun

Hólmavík var staðurinn sem sást úr lofti í myndagetraun Bændablaðsins sem kom út...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. maí 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn: Næstu dagar færa óvænta krafta og hugmyndir sem geta breytt þeim fr...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 4. maí 2026

Lausn á vísnagátunni

Lausnin á vísnagátu úr 8. tölublaði Bændablaðsins.

Vísnahornið
Líf og starf 28. apríl 2026

Vísnahornið

Í síðasta þætti birti ég vísu um mun á Húnvetningum og Þingeyingum. Óskar í Meða...