Kjartan Briem og Helgi Ólafsson úr mótshaldarateyminu, á milli verðlaunahafa.
Kjartan Briem og Helgi Ólafsson úr mótshaldarateyminu, á milli verðlaunahafa.
Mynd / Tómas Tandri
Líf og starf 14. apríl 2026

Alþjóðlega Kópavogsmótið

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Alþjóðlegt skákmót fór fram í Kópavogi í mars. Skákmót með þessu fyrirkomulagi hafa verið fá undanfarin ár en á sama tíma mikil eftirspurn eftir slíkum mótum. Skákdeild Breiðabliks og Helgi Ólafsson létu slag standa og stóðu að þessu glæsilega móti. Keppendur voru 10 talsins, þar af fjórir erlendir. Erlendu keppendurnir höfðu einnig teflt með sínum íslensku félagsliðum, á Íslandsmóti skákfélaga sem fjallað var um í síðasta pistli. Gátu því framlengt ferðina til Íslands! 

Af Íslendingunum stóð Vignir Vatnar Stefánsson sig best, náði þriðja sætinu á eftir stórmeisturum frá Spáni og Litháen. Hann setti vélarnar í gang eftir tap gegn alþjóðlega meistaranum og fóstbróður sínum í skákinni, Hilmi Frey Heimissyni. Vignir vann líka fyrir skömmu Boðsmót Símans í netskák!  

Hugmyndin með svona móti, er líka að veita ungum skákmönnum tækifæri til að fá svokallaða áfanga að alþjóðlegum titlum. Það tókst, en Birkir Ísak Jóhannsson náði sínum fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitili, ásamt 2300 eló-stigum, á mótinu. Birkir hefur undanfarið vakið meiri athygli sem aðstoðarmaður Vignis þegar kemur að byrjanaundirbúningi. En hann er líka grjótharður skákmaður. Einnig var Bárður Örn Birkisson um tíma afar nálægt áfanganum, en það gekk ekki upp að þessu sinni. Menn reittu vinningana hvor af öðrum, lítið um jafntefli, hvað þá stutt jafntefli. Menn voru mættir til að berjast, á Kópavogur Young Champions mótinu. Flestir Íslendingana hafa tengingu við Kópavog eða Breiðablik, og voru allir undir þrítugu. Mótið var m.a styrkt af Sigtryggssjóði, en glímukappinn Sigtryggur Sigurðsson var mikill áhugamaður um skák. 

Svona mót er glæsilegt framtak og stefnt er á að endurtaka leikinn, halda mótið annað hvert ár. Svona mót gæti líka virkað hvetjandi fyrir önnur öflug félög með skákmenn innan sinna raða í framför, og að nálgast titilhafastyrk. 

Í stöðunni sem fylgir leyfi ég lesendum að glíma við að finna eina leikinn sem tryggir hvítum jafntefli. Þetta var mikilvægur punktur fyrir Birki gegn sterkum úkraínskum stórmeistara - í áttina að alþjóðlegum áfanga! Varúð, þetta blasir ekki beint við! Ég birti lausnina í næsta blaði, en klókir geta sett stöðuna upp í tölvu ef þeir finna ekki leikinn. 

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Hólmavík rétt svar við myndagetraun
Líf og starf 4. maí 2026

Hólmavík rétt svar við myndagetraun

Hólmavík var staðurinn sem sást úr lofti í myndagetraun Bændablaðsins sem kom út...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. maí 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn: Næstu dagar færa óvænta krafta og hugmyndir sem geta breytt þeim fr...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 4. maí 2026

Lausn á vísnagátunni

Lausnin á vísnagátu úr 8. tölublaði Bændablaðsins.

Vísnahornið
Líf og starf 28. apríl 2026

Vísnahornið

Í síðasta þætti birti ég vísu um mun á Húnvetningum og Þingeyingum. Óskar í Meða...

Hámóðins með hækkandi sól
Líf og starf 28. apríl 2026

Hámóðins með hækkandi sól

Það er skemmtilegt þegar sólin tekur að skína og ekki síst þegar hægt er að busl...

Risinn Reykjavíkurskákmótið
Líf og starf 27. apríl 2026

Risinn Reykjavíkurskákmótið

Opna Reykjavíkurskákmótið fór fram í Hörpu dagana 25.–31. mars. Mótið er að öllu...

23 slagir í einu spili
Líf og starf 27. apríl 2026

23 slagir í einu spili

Undankeppni Íslandsmótsins fór fram á dögunum í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og v...

Bók um Svein búfræðing
Líf og starf 27. apríl 2026

Bók um Svein búfræðing

Maður er nefndur Sveinn Sveinsson (1849–1892), austfirskur. Svein má með réttu t...