Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
New Holland dráttarvél á vinnslulínu CNH Industrial´s í Bretlandi.
New Holland dráttarvél á vinnslulínu CNH Industrial´s í Bretlandi.
Fréttir 18. febrúar 2021

Víða góður gangur í dráttarvélasölu í heiminum þrátt fyrir COVID-19

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Samkvæmt gögnum Mobility Foresights voru 23 dráttarvélategundir tilgreindar á dráttarvélamarkaði heimsins á síðasta ári. Þá höfðu tær tegundir fallið út af markaði. Þrátt fyrir COVID-19 mátti merkja aukna dráttarvélasölu í mörgum löndum þó samdráttur væri á öðrum stöðum. 

Ljóst er að landbúnaður og aðrar matvælaframleiðslugreinar geta ekki skellt í lás þótt farsótt herji á heimsbyggðina. Þar verða menn einfaldlega að reyna með öllum ráðum að halda framleiðslunni gangandi, jarðarbúar verða að fá sinn mat hvað sem raular og tautar. Það þýðir að bændur hætta ekkert að endurnýja dráttarvélar og önnur tæki þó mögulega hægist eitthvað á. Tegundirnar á dráttarvélamarkaðnum sem taldar eru upp í markaðsyfirliti og horfur á markaði til 2025 hjá Mobility Foresights eru:  

Mahindra and Mahindra, Escorts, FPT Industrial, John Deere, Massey Ferguson, Kubota, International Harvester, Deutz-Fahr, Yanmar, Zetor, VST, Swaraj, Sonalika, Armatrac, Branson,  Fendt, Iseki, JCB, TYM, TAFE, New Holland, McCormik og Landini. Foton og First Tractor, Company hafa dottið út af listanum. 

Stærsti dráttarvélamarkaður heims er á Indlandi

Áætlað var að eftirspurn eftir dráttarvélum í heiminum árið 2020 næmi hátt í tveim milljónum véla. Stærsti dráttarvélamarkaður í heimi er á Indlandi. Þar voru seldar 700.000 dráttarvélar á árunum 2019-2020. Dráttarvélamarkaðurinn hefur ekki orðið fyrir verulegum áföllum á Indlandi vegna COVID-19. Hefur markaðurinn í dreifbýlinu haldið sölunni uppi meðan lokanir hafa haft áhrif á kaupendur í þéttbýlinu. 

Indverjar hafa verið að innleiða strangari mengunarlöggjöf fyrir sína bílaframleiðslu, eða það sem nefnt er BS6 og er sambærilegt við Euro 6 staðalinn. Dráttarvélaframleiðendur eru hins vegar aðeins á eftir og voru á síðasta ári að innleiða BS TR-Tractor EM-Emission 4 (TREM-4) staðalinn fyrir dráttavélar með yfir 50 hestafla mótorum. Mun staðallinn hafa áhrif til hækkunar á verði vélanna enda kostar þetta breytingar hjá framleiðendum upp á um 2 milljónir dollara fyrir hverja gerð af mótor. Þessi staðall verður síðan innleiddur fyrir dráttarvélar með minni mótora í október 2023. 

Misjöfn staða í Evrópu

Í Evrópu var yfir 74% af dráttarvélarsölunni vélar yfir 50 hestöflum. Í þýskalandi jókst sala dráttarvéla um 2,6% á meðan 15% samdráttur var í sölu í Bretlandi á milli áranna 2019 og 2020. Um þessar mundir eru margar dráttarvélaverksmiðjur að koma starfseminni í gang aftur eftir langvarandi lokun vegna COVID-19. Einn stærsti markaður fyrir dráttarvélar í Evrópu er nú í Tyrklandi. 

Í Bretlandi eru einungis tveir dráttarvélarframleiðendur sem eitthvað kveður að með framleiðslu í dag, en það eru CNH Industrial´s sem er með verksmiðju í Essex  þar sem framleiddar eru New Holland dráttarvélar. Þar er í raun byggt á langri sögu og framleiðslu á International Harvester dráttarvélum og vinnuvélum í Bretlandi. Þá er JCB’s Fastrac með verksmiðju nálægt Cheadle í Staffordshire, en JCB er mjög öflugt fjölskyldufyrirtæki. 

Góð sala í 4x4 vélum í Bandaríkjunum

Í Bandaríkjunum jókst dráttarvélasalan um 3,6% á árinu 2019 og fór þá í 244.000 dráttarvélar. Í ársbyrjun 2002 jókst verulega salan á fjórhjóladrifnum dráttarvélum þar í landi og vélum með 100 hestafla mótorum og stærri. Í maí á síðasta ári hafði dráttarvélasalan á milli áranna 2019 og 2020 aukist um 15,1%. Þá hélt sala á stórum vélum að aukast þrátt fyrir COVID-19. Þá hafði faraldurinn greinilega þau áhrif að eigendur stórra fasteigna og smábændur eyddu auknum tíma í viðhald á dráttarvélum og fjárfestingar því tengdu.

Ný dráttarvél á færibandinu hjá Deutz-Fahr.

JCB Fastrac 8000.

Mikil tekjurýrnun hjá bændum í Bandaríkjunum

Sala á stórum uppskerutækjum dróst heldur saman í Bandaríkjunum á síðasta ári, einkum vegna óvissunnar í markaðs- og efnahagsmálum landbúnaðarins. Hefur landbúnaðurinn þar mátt þola minnkandi tekjur í sex ár í röð. Þannig voru tekjur landbúnaðarins í Bandaríkjunum 2018 komin niður í 63 milljarða dollara og höfðu þá rýrnað um nær helming, eða úr 123 milljörðum dollara árið 2013. 

Vegna stirðra samskipta Bandaríkjanna og Kína og deilna um tollamál, lokuðu Kínverjar fyrir kaup á bandarískum land-búnaðarafurðum á þriðja árs-fjórðungi 2019. Það var gríðarlegur skellur fyrir bændur í Bandaríkjunum sem seldu Kínverjum vörur fyrir 6 milljarða dollara á árinu 2018, eða rúmlega 9,5% af heildartekjum landbúnaðarins í Bandaríkjunum það ár. Hafa bændur í Kína og öðrum löndum notið góðs af þessu. 

Gríðarlegur vöxtur í Kína vegna tækniinnleiðingar 

Dráttarvélamarkaðurinn í Kína þykir spennandi vegna þess að þar er vélvæðingin komin mun skemmra á veg en á Vesturlöndum. Á fyrsta ársfjórðungi 2020 var búið að spá 69% aukningu í sölu vegna vélvæðingar í landbúnaði. Hefur þessari miklu innleiðingu á véltækni í kínverskum landbúnaði að hluta verið mætt með notuðum tækjabúnaði frá Evrópu og Bandaríkjunum. 

Skylt efni: dráttarvélar