Holdétandi maðkar í bandarískum búpeningi
Sníkjudýr sem hefur ekki fundist í Bandaríkjunum í um 60 ár er komið aftur.
Þar er á ferð fluga sem ber latneska heitið Cochliomyia hominivorax, og hefur á íslensku verið nefnd skrúfufluga (e. New World Screwworm). Hún verpir eingöngu í lifandi hold, oftast nær í opin sár, bæði dýra og manna. Þegar lirfur flugunnar klekjast út éta þær holdið í kringum sárið sem leiðir til frekari sára og sýkinga. Hún getur reynst búfénaði banvæn. Tilfelli hafa greinst í dýrum í bæði Texas og Nýju-Mexíkó.
Tólf tilfelli á tveimur vikum
Samkvæmt Landbúnaðar- ráðuneyti Bandaríkjanna (USDA) hafa greinst 12 tilfelli skrúfuflugu í húsdýrum í tveimur ríkjum síðan 3. júní síðastliðinn. 11 tilfelli hafa greinst í Texas og eitt í NýjuMexíkó. Flugan hefur aðallega fundist í kúm og nautgripum en einnig í hundi, geit og kind. Engin tilfelli hafa greinst í villtum dýrum.
Að sögn USDA þarf ekki að óttast um matvöru þar sem flugan leggst aðeins á lifandi dýr, ekki kjöt eða ávexti. Bændur og dýraeigendur í Bandaríkjunum eru beðnir um að fylgjast vel með sárum dýra og láta strax vita ef einkenni koma upp, líkt og vond lykt, útferð eða greinileg hreyfing maðka í holdi.
Ófrjóar flugur sem vörn
Skrúfuflugan er þekkt í Mexíkó og Suður- og Mið-Ameríku. Í lok sjötta áratugar síðustu aldar stóðu Bandaríkjamenn í stórtækum aðgerðum gegn flugunni sem herjaði þá á landbúnað víða í Suðurríkjum og Miðvesturríkjum landsins. Herferðin gekk út á að rækta ófrjóar karlkyns skrúfuflugur og sleppa þeim lausum í stórum hópum. Vegna þess að kvenkyns skrúfuflugan hefur mök við karlflugu aðeins einu sinni á ævinni og það reynist ómögulegt fyrir hana að greina á milli frjórra og ófrjórra einstaklinga stundar hún þessi einu mök án þess að fjölga sér. Aðferðin bar árangur og var fluguna ekki að finna norðan Panamaskurðarins frá árinu 2004.
Viðbrögð og varnir
Þar sem tilfelli greinast er sett upp 20 kílómetra radíussvæði þar sem gildir sóttkví, eftirlit er hert og takmarkanir gilda á tilflutningi dýra, ófrjóum flugum er sleppt og þar til gerðar flugnagildrur eru settar upp. Síðustu ár hefur flugan verið í sókn og hefur ófrjóum flugum verið sleppt þar sem stök tilfelli hafa greinst bæði í MiðAmeríku og Mexíkó. Milljónum flugna hefur nú þegar verið sleppt í Zavala-héraðinu í Texas þar sem tvö tilfelli greindust nýlega með átta kílómetra millibili. Bandaríkin og Mexíkó hafa lokað á allan innflutning dýra á milli sinna landamæra og hefur Kanada sett tímabundið bann á flutning búfénaðar frá Texas. Hestar og kýr sem hafa verið í Texas innan við 21 dag fá ekki að koma inn í landið.
Flugurnar geta valdið miklu tjóni á landbúnaði og leitt til fjárhagstjóns bænda bæði ef dauðsföll verða á dýrum og vegna mikils sjúkrakostnaðar. Samkvæmt fréttamiðli Guardian er vöntun á mannskap og sérfræðingum vegna uppsagna ríkisstjórnar Trumps á starfsfólki innan Landbúnaðareftirlits Bandaríkjanna. Þetta hefur hægt mjög á viðbúnaði og eykur líkurnar á frekari útbreiðslu sníkjudýrsins, sérstaklega í sumar þar sem flugan sæmir sér vel í hita.
