Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Tjaldsvæðið SKJÓL með sögufrægan bar úr Pálmasal Hótel Borgar
Mynd / HKr.
Fréttir 7. september 2020

Tjaldsvæðið SKJÓL með sögufrægan bar úr Pálmasal Hótel Borgar

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Skjól er nýlegt einkarekið tjald­svæði sem var opnað vorið 2014 og nýtur sívaxandi vinsælda, bæði meðal erlendra ferðamanna og Íslendinga. Greinilegt er að mikill metnaður ríkir í uppbyggingu staðarins og þjónustu við ferðamenn, sem koma þar aftur og aftur. Enda hefur staðurinn skartað fimm stjörnum á ferðasíðunni Tripadvisor sem segir heilmikið um ánægju þeirra viðskiptavina sem þangað koma.

Skjól er vel staðsett á „Gullna hringnum“ svonefnda, mitt á milli Gullfoss og Geysis við veg nr. 35 í landi Kjóastaða 1. Á veitinga­staðnum, sem er með sali á tveim hæðum, er hægt að taka við allt að 180 manns í mat í einu.

Stutt er í vinsælustu náttúruperlur landsins og aðeins 3,5 km niður að Geysi, 6 km upp að Gullfossi og um 4 km að Brúarhlöðum. Þá er kjörbúðir að finna í um 25–30 km radíus, þ.e. á Laugarvatni, á Flúðum og einnig á bensínstöðinni á Reykjum.

Jón Örvar Baldvinsson er eigandi tjaldstæðisins og veitingastaðarins Skjóls. Tíðindamaður Bændablaðsins tók hús á Jóni Örvari nú í sumar og spurði hann um uppruna og ástæður þessarar uppbyggingar í landi Kjóastaða.

Með sögufrægan bar á tjaldsvæði í uppsveitum Árnessýslu

Það er þó fleira merkilegt við Skjól en myndarleg aðstaða fyrir ferðaglatt bakpoka-, fellihýsa-, hjólhýsa- og húsbílafólk. Á veitingastaðnum sem þar hefur verið byggður upp er líklega um 57 ára gamall veglegur bar sem ættaður er úr Pálmasal Hótel Borgar í Reykjavík. Við þennan bar hafa margir þjóðþekktir og líka heimsfrægir einstaklingar væntanlega kneyfað öl úr krús eða dreypt á gini í tónik.

Margir eiga þannig tengsl við þetta barborð í gleði og örugglega hafa einhverjir líka reynt að drekkja þar sorgum sínum. Meira að segja sölufulltrúi MS, sem færir eiganda Skjóls ost í hverri viku, á við það sterka tengingu. Hann heitir Bjarki Long og er lærður framreiðslumeistari og nam sitt fag einmitt við þetta barborð á Hótel Borg á sínum tíma.

Á kvöldin er ekki óalgengt að gestir setjist niður við barinn og spili nokkur lög á gítar. Ef gestir geta haldið lagi, spilað þrjú lög á gítar eða píanó og fengið klapp frá áhorfendum fá þeir gjarnan bjór í verðlaun. Þar hafa líka troðið upp margir heimsfrægir listamenn af ýmsum toga úr hópi gesta. Erfitt hefur þó verið undanfarið að bjóða upp á lifandi músík á Skjóli vegna nálægðartakmarkana og hættu á útbreiðslu COVID-19.

Kom frá Húsavík og lærði að vera þjónn á Hótel Sögu

„Ég er lærður þjónn og lærði mitt fag á Hótel Sögu þar sem ég byrjaði 22 ára gamall,“ segir Jón Örvar. „Ég hef eiginlega unnið við veitingaþjónustu alla mína starfsævi. Annars kem ég frá Húsavík og kom til starfa á Geysi árið 2002. Þar var ég að vinna til 2014 þegar ég hóf hér starfsemi. Ég byggði þetta upp sem fjölskylduvænt tjaldsvæði og hef haldið mig við það síðan.“

Jón passar upp á að krakkar hafi eitthvað við að vera í Skjóli og hefur komið upp ærslabelg á svæðinu ásamt rólum og sparkvelli. Þá reyndi hann um sinn að bjóða krökkum upp á að kynnast kanínum og geitum. Af heilbrigðissjónarmiðum ákvað hann þó að hætta því, allavega í bili.

Tjaldstæðið Skjól í Bláskógabyggð er 3,5 km austur af Geysi í Haukadal. Hér sést 500 fermetra þjónustuhús tjaldsvæðisins þar sem eru íbúðir starfsmanna, veitingasalur sem tekur allt að 180 manns í sæti, eldhús, bar, salerni og sturtur.

Keypti land á Kjóastöðum 2010

„Ég keypti landið upphaflega undir þessa starfsemi af Magnúsi Jónassyni og Kristínu Ólafsdóttur á Kjóastöðum 1 árið 2010. Um haustið 2013 byrjaði ég að leggja hér vegi fyrir veitingastaðinn og tjaldstæðið og fá öll leyfi til að breyta skilyrðum landsins úr því að vera bújörð yfir í svæði fyrir verslun og þjónustu. Ég flutti tvö hús hér á lóðina 2014 og síðan opnaði ég aðstöðuna hér 1. júní 2014. Ég byggði síðan tengibyggingu úr stálgrind á milli húsanna árið 2017. Ég er því kominn hér með rúma 500 fermetra að gólffleti.

Í upphafi byrjaði ég með að vera með „hostel“ gistingu í öðru húsinu og var nóg að gera. Hins vegar jókst eftirspurn eftir gistingu í gegnum Airbnb og annað hröðum skrefum hér á svæðinu og fékk ég þá hvergi gistingu fyrir starfsfólkið mitt. Þess vegna breytti ég gistiaðstöðunni í starfsmannahúsnæði og sparaði mér þá líka bílakostnað við að koma starfsmönnum til og frá vinnu.

Ég fæ enga styrki eða meðgjöf með þessum rekstri og því held ég að næsta skref hjá mér verði að sækja um lögbýlarétt, allavega til að fá niðurfellingu af gjöldum vegna starfsmannahúsnæðis.“

Hyggst reisa nýtt aðstöðuhús fyrir tjaldstæðagesti

Öll aðstaða fyrir tjaldstæðagesti, eins og salerni, sturtur og upp­þvottaaðstaða, er í þjónustu­húsinu sem hýsir líka veitingastaðinn. Þessu hyggst Jón breyta.

„Það er stefnan að byggja hér á svæðinu nýtt aðstöðuhús sem eingöngu yrði fyrir tjaldstæðið, en í dag er sú aðstaða sameiginleg með veitingastaðnum sem getur stundum verið bagalegt.“

Áberandi breyting á aðbúnaði ferðamanna

Jón segir að aðsóknin að tjaldsvæðinu Skjóli hafi vaxið hröðum skrefum og áberandi breyting sé á aðbúnaði ferðamanna. Nú séu hjólhýsi mest áberandi ásamt fellihýsum og tjaldvögnum, en tjöld eru ekki mjög áberandi lengur.

Ört vaxandi aðsókn

„Fyrsta árið vorum við að fá hingað á tjaldstæðið á milli tvö til fjögur þúsund manns. Það jókst fljótlega upp í sjö til átta þúsund. Síðustu ár hafa komið hér um 13 til 14 þúsund manns yfir sumartímann, þ.e. frá maí fram í september.

Ég hef verið með opið nær allt árið, nema hvað ég hef lokað frá miðjum desember og fram í miðjan janúar, m.a. til að gefa starfsfólkinu frí.

Þegar flugfélagið WOW var og hét, var mjög áberandi að ungt ferðafólk kæmi hér á litlum „camper“ ferðavögnum og legðu á planinu fyrir utan húsið allt árið um kring. Þetta fólk þurfti á þjónustu að halda, bæði varðandi sturtuaðstöðu, netsamband og mat. Ég sá því í hendi mér að ef það lögðu 20 „camper-bílar“ hér á planinu fyrir utan þá gæti ég átt von á 40 manns í mat um kvöldið. Það var því nauðsynlegt að hafa hér opið að mestu allt árið.

Ég hef verið að ráðleggja kollegum mínum úti á landi það sama og benda á að það þurfi að vera svona aðstaða í boði í öllum landshlutum sem opin er allt árið. Fyrst við vorum að blása til sóknar og hvetja ferðamenn til að koma til Íslands allt árið, þá verðum við líka að hafa aðstöðu fyrir þetta unga fólk sem nýtir sér þennan ferðamáta. Við fundum hins vegar fyrir talsverðu höggi þegar WOW air hætti starfsemi.“

Í harðri samkeppni við ríki og sveitarfélög

Jón segir ekki alveg sanngjarnt að bera saman aðstöðu á einkareknum tjaldsvæðum sem hafa ekki annað en innkomuna til að byggja á hverju sinni, eða tjaldsvæðum sem rekin eru af sveitarfélögum eða jafnvel ríkinu.
„Fólk vill eðlilega hafa allt til alls á tjaldstæðum, eins og sturtur, þvottavélar og annað en við erum þar alltaf í harðri samkeppni við ríki og sveitarfélög.

Ég hef til dæmis aldrei fengið styrki til að byggja upp þessa aðstöðu á Skjóli, né niðurgreiðslur á rafmagni eða öðru. Þá þarf ég sjálfur að skaffa sorpgám sem ég borga fyrir tæmingu á, en ég fæ þó á þriggja ára fresti tæmingu á rotþró, en borga sjálfur fyrir seyrulosun. Þá verð ég einnig að sjá um snjómokstur inn á svæðið. Það segir sig því sjálft að í harðri samkeppni við opinbera aðila gengur uppbyggingin kannski örlítið hægar en maður vildi.“

Þrátt fyrir harða samkeppni er ekki annað að sjá en að Jóni hafi tekist af miklum dugnaði og eljusemi að byggja upp tjaldstæði og veitingaaðstöðuna í Skjóli af myndarbrag. Vaxandi vinsældir staðarins benda reyndar til þess að gestir kunni að meta það sem þar er boðið upp á og margir koma þangað aftur og aftur. Hefur staðurinn líka verið hátt skrifaður á vefsíðu Tripadvisor og oft skartað þar fimm stjörnum. Það skiptir miklu máli í því skrítna árferði sem ríkt hefur undanfarin misseri í skugga COVID-19 heimsfaraldursins.

Gott samstarf er lykilatriði

„Tíðarfarið var líka erfitt í vetur, en ég hef verið svo heppinn hvað ég hef átt í góðu samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki eins og Mountainers og Arctic Ventures sem hafa verið með vélsleðaþjónustu. Hópar frá þeim hafa komið til mín í mat á kvöldin. Svo er River Rafting hér með aðstöðu í nokkurra kílómetra fjarlægð. Eins hafa strákar sem hafa verið að bjóða upp á akstur á „Buggy“ bílum verið með aðstöðu hér þar til nú í sumar.“

Kappkostar að bjóða íslenskt hráefni úr héraðinu

„Ég hef boðið hér upp á tiltölulega einfaldan mat, hamborgara, pitsur, fisk og franskar, grænmetisbar og súpu. Þar er ég mjög heppinn með að fá mest allt hráefni frá bændum hér á svæðinu. Bjarki Long í Mjólkursamsölunni kemur svo með ostinn til mín. Ég fer með um 75 kg af pitsuosti á viku fyrir utan annan ost sem ég kaupi.“

Gestir sem gista á Skjóli fá svo afslátt af aðgangi í Gömlu laugina á Flúðum (Secret Lagoon). Í nágrenninu eru svo hestaleigur og ekki má gleyma hinum glæsilega Haukadalsvelli fyrir kylfingana sem er í tveggja kílómetra fjarlægð. Þá er stutt í Haukadalsskóg fyrir lengri eða styttri gönguferðir.

Góð samvinna rekstraraðila á svæðinu

„Við verðum þá líka að passa okkur að bjóða upp á sanngjarnt verð. Það er mikilvægt, ekki síst vegna þess að Ísland hefur legið undir ámæli vegna þess hversu dýrt sé að koma hingað. Ef fólk hefur viljað gera enn betur við sig í góðum steikum eða öðru, þá hef ég bent okkar gestum á Hótel Geysi og veitingaaðstöðuna sem þar er.

Góð samvinna skiptir öllu máli í svona rekstri og við höfum verið mjög dugleg að benda hvert á annað. Það hefur komið mjög vel í ljós hin síðari ár hvað veitingaþjónustan og gistingin er að vinna vel saman með afþreyingunni. Ég hef notið þess að eiga mjög ánægjuleg samskipti við þessi ferðaþjónustufyrirtæki.“

Jón segist telja að sanngjörn verðlagning skili sér alltaf til baka. Þó margir vilji helst fá fleiri vel stæða ferðamenn til landsins, þá séu þeir ekkert frekar tilbúnir að greiða hvað sem er fyrir þjónustuna. Þarna gildi orðsporið sem af staðnum fer vegna upplifunar ferðamanna, en fátt er dýrmætara en gott orðspor þegar til lengdar lætur.

Erfitt og skrítið rekstrarár

„Rekstrarárið 2020 er búið að vera mjög erfitt og skrítið fyrir flesta í þessum bransa. Ég þakka því fyrir að vera hér á Suðurlandinu og staðsettur við fjölförnustu ferðamannaleiðina. Mér heyrist að staðan hafi verið mun erfiðari víða annars staðar.

Hér er rúnturinn allt árið um kring, en þar var ég líka heppinn að vera í samstarfi við kínverska konu og í gegnum hana fékk ég daglega til mín Asíubúa í norðurljósaferðir frá miðjum janúar og fram í apríl. Í desember á síðasta ári fór þessi kona að tala um gríðarlegar afbókanir út af einhverri flensu. Þessi flensa reyndist svo vera COVID-19.

Fram að því voru um 80% af mínum gestum útlendingar og því þurfti ég að fara að vekja meiri athygli á staðnum meðal Íslendinga. Þrátt fyrir þennan faraldur er ég því mjög þakklátur fyrir hvað Íslendingar hafa verið duglegir að koma til mín og þá sérstaklega í júlí. Helgarnar í júní voru líka fínar, en þetta fór aðeins af stað í maí. Vegna faraldursins var maður þó svolítið á báðum áttum hvernig maður ætti að gera þetta og nú spyr maður sig að því á hverjum einasta degi. Þar er að mínu mati ekkert annað í stöðunni en að fara eftir öllum þeim tilmælum sem yfirvöld beina til okkar.“

Útilegukortið mikilvægt og gefur fleirum kost á að ferðast ódýrt

– Nú eruð þið aðilar að útilegukortinu, hefur það skipt ykkur máli?
„Já, það hefur skipt miklu máli og trekkir til mín fólk. Ég sé að sveitarfélög eru að sækjast meira og meira eftir að fá útilegukortið vegna þess að sá fjöldi sem með það er sækir líka í aðra þjónustu á svæðunum fyrir utan tjaldstæðin.

Útilegukortið gefur fleira fólki kost á að ferðast á ódýran hátt og nýta sér þá um leið niðurgreiðslur sinna stéttarfélaga. Það skiptir líka miklu máli þegar fólk er með mörg börn, því þarna er allt frítt fyrir börn undir 16 ára aldri og það á bæði við sturtur og aðra þjónustu. Þetta er mikil kjarabót. Á sama hátt er sérkennilegt að ferðagjöf ríkisins skuli ekki gilda á tjaldsvæðum.“

Tjaldstæði njóta ekki ferðagjafar ríkisins

„Ferðagjöfin gildir ekki á tjaldsvæðum vegna þess að þau flokkast ekki undir staði sem bjóða upp á gistiherbergi. Fram yfir síðustu áramót hafði ég samt verið að rukka hér gistináttagjald á tjaldsvæðinu. Þá var rukkað fyrir hverja ferðaeiningu og skipti engu máli hvort um var að ræða einn Ítala á hjóli með lítið tjald, eða fimm Asíubúa í húsbíl. Það kostaði það sama fyrir eininguna.“

Margir hafa einnig bent á að það sé sérkennilegt að hægt sé að nota ferðagjöfina á veitingastöðum í Reykjavík en ekki á tjaldstæði í höfuðborginni og víðar um land sem mikið eru nýtt af fjölskyldufólki. Jón telur að kannski hafi þetta ekki verið ígrundað nógu vel þegar ákvörðunin var tekin.

Skattur á skatt ofan

„Reyndar var ég alltaf á móti því að við værum að rukka gistináttagjald á tjaldsvæðum þar sem ekki var verið að leigja neitt gistihúsnæði. Þá var annað undarlegt við þetta að gistináttagjaldið var 300 krónur og síðan lagðist virðisaukaskattur þar ofan á sem var 33 krónur. Þannig var verið að innheimta skatt ofan á skatt.

Nú er búið að leggja þennan skatt af, allavega til apríl 2021, en ég trúi því ekki að þeir haldi áfram með þennan skatt eftir það á tjaldsvæðagesti.“

Á „köldu“ svæði mitt á þekktasta háhitasvæði landsins

Þó einkennilegt mætti virðast þá er ekki jarðhiti svo heitið geti í landi Kjóastaða þó örstutt sé í eitt þekktasta háhitasvæði veraldar við Geysi. Því hefur raforkukostnaðurinn verið drjúgur í rekstrinum hjá Jóni.

„Þó staðsetningin sé hér góð til reksturs með Gullfoss og Geysi hvort sínum megin, þá er það viss kaldhæðni að hér skuli ekki vera jarðhiti í næsta nágrenni við Geysi. Þá eru ekki nema um 20 km í Efri-Reyki, þar sem maður sér gufustrókinn stíga upp af hitaveitunni alla daga. Þetta háði okkur strax í byrjun, m.a. við að skaffa heitt vatn í sturturnar fyrir gestina.

Vegna þessa lét ég bora hér í landinu niður á 80 metra dýpi og náði þar í 20 gráðu heitt vatn. Það er sjálfrennandi og dæli ég því inn á varmadælu sem sér mér fyrir heitu vatni í dag, fyrir sturtur, eldhús og annað.“

Jón leiddi einnig heitt vatn í vaskaðstöðu fyrir tjaldstæðisgesti sem er við austurgafl veitingastaðarins.
„Maður sá það fljótt að Íslendingar kunna ekki að spara vatn og því kláraðist heita vatnið fljótt í uppvaskinu hjá gestunum á tjaldstæðinu og sturturnar urðu kaldar. Því skrúfaði ég fljótt þar fyrir heita vatnið í vaskana úti. Nú safna ég heita vatninu frá varmadælunni í tank og nota það fyrir sturturnar og eldhúsið og það hefur dugað ágætlega.

Það er reyndar með ólíkindum að við skulum vera komin fram á 2020 og það skuli ekki vera komið heitt vatn á bæina hér í kring frá jarðhitasvæðunum í næsta nágrenni. Enda eru íslenskir gestir sem hingað koma mjög hissa á þessari stöðu. Það hefur þó verið reynt að bora hér víða á svæðinu en árangurinn hefur ekki orðið eins og menn vonuðust til.“

Skemmtilegur og gefandi rekstur

Jón segir að þó hann sé að tuða yfir ákveðnum hlutum er varða rekstrarskilyrði tjaldsvæða, þá sé ákaflega gaman að starfa í þessari grein.

„Maður verður þó að hafa gaman af fólki og vera þjónustulundaður til að finnast þetta gaman. Þetta er því ekki fyrir hvern sem er. Það hafa komið margir hér inn sem hafa haft áhuga á þessum bransa. Á árunum 2014, 2015 og 2016 var mikill uppgangur og marga langaði að spreyta sig á ferðaþjónustu. Þetta varð svolítið „trend“, en maður fann það samt fljótt að fólk þurfti að hafa ákveðinn karakter til að þrífast vel í þessari grein.“

Hagsýni skiptir miklu máli á óvissutímum

Jón segir að nú sé ferðaþjónustan að upplifa mjög skrítna tíma sem muni eflaust knýja mörg fyrirtæki í þrot. Því sé eina ráðið að vera eins hagsýnn og hægt er, bæði í innkaupum og daglegum rekstri. Sjálfur er hann að alla daga en hefur auk þess tvær stúlkur sér aðstoðar í fullu starfi. Til að reksturinn gangi upp á svo litlum mannskap ákvað Jón að hætta að vera með opna veitingaaðstöðu í hádeginu sem útheimti meiri mannskap. Hann segir að starfsstúlkurnar verði þó bara við störf út ágústmánuð og eftir 1. september ríki algjör óvissa vegna COVID-19. „Það er samt ekkert annað í stöðunni hjá mér en að halda þessu áfram.“

Jón segist líka vonast til að Íslendingar, sem hafa verið að fjárfesta grimmt í hjólhýsum og húsbílum á þessu ári, reyni að nýta þá eign sína allavega fram á haustið. Margir séu að upplifa þennan ferðamáta í fyrsta sinn og líki vel.

„Þetta fólk er að kynnast landinu sínu á nýjan hátt sem er mjög gaman. Því er vonandi að fólk nýti sér þetta áfram,“ segir Jón Örvar Baldvinsson, sem hefur notið ómetanlegrar aðstoðar frá fjölskyldu sinni við uppbygginguna í Skjóli.

5 myndir:

Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum
Fréttir 26. apríl 2024

Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum

Gýgjarhólskot í Biskupstungum var útnefnt ræktunarbú síðasta árs á fagfundi sauð...

Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...