Sameining Lífeyrissjóðs bænda og Frjálsa lífeyrissjóðsins
– Skerða þarf réttindi sjóðfélaga LSB
Skrifað hefur verið undir samning um sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frjálsa lífeyrissjóðsins. Gert er ráð fyrir að með sameiningunni þurfi að skerða réttindi sjóðfélaga LSB.
Að sögn Völu Valtýsdóttur, stjórnarformanns LSB, munu sjóðfélagar greiða atkvæði um sameininguna á ársfundi sjóðsins sem haldinn verður 19. júní. Verði sameiningin samþykkt verður sjóðnum slitið daginn eftir ársfundinn.
Frjálsi yfirtekur réttindi og skyldur
Fyrirhuguð sameining grundvallast á mati tryggingastærðfræðings sjóðanna þar sem hún er talin jákvæð fyrir sjóðfélaga beggja sjóða.
Heildareignir sameinaðs sjóðs eru um 672 milljarðar króna miðað við stöðu eigna 30. apríl, þar af eignir Frjálsa um 626 milljarðar króna og eignir LSB um 46 milljarðar króna.
Með sameiningunni mun Frjálsi taka yfir öll réttindi og skyldur gagnvart sjóðfélögum Lífeyrissjóðs bænda en fyrst um sinn verður haldið utan um áunnin réttindi sjóðfélaga Lífeyrissjóðs bænda í lokaðri tryggingadeild.
Tveir kynningarfundir
Vala segir að fyrirhugað sé að halda tvo kynningarfundi fyrir sjóðfélaga dagana 4. og 5. júní. Fyrri fundurinn verði á Hvolsvelli og honum verður jafnframt streymt, en seinni fundurinn verður á Akureyri. Fundirnir verði jafnframt auglýstir í Bændablaðinu.
„Að okkar mati er nauðsynlegt að sameina sjóðinn öðrum stærri sjóði meðal annars til að lækka kostnað sem eðli málsins er hlutfallslega mun hærri í LSB en í sjóði eins og Frjálsa lífeyrissjóðnum. Þó er það þannig að vegna þessa þarf að skerða réttindi bænda um einhver prósent, en prósentutalan er ekki alveg klár eins og stendur. Það verður hins vegar ljóst fyrir framangreinda kynningarfundi,“ segir Vala.
Skerða þarf réttindi
Vala bætir við að hvernig sem fari með atkvæðagreiðsluna þá sé ljóst að skerða þurfi réttindi. Ekki sé ljóst hver endanleg prósentutala verði, en gert sé ráð fyrir að það verði nálægt 3,5%. „Í raun verður staða sjóðsins verri með tímanum vegna smæðar sinnar og þess að aldur sjóðfélaga er hærri en í stærri sjóðum.
Það eru ekki margir ungir bændur sem kjósa að greiða í LSB enda er alltaf sami kostnaður sem alla jafna er í lífeyrissjóðum og þá hlutfallslega minni í stærri lífeyrissjóðum. Þannig teljum við að hagur sjóðfélaga verði bættari í stærri sjóði.“
