Kuldi í kortunum
Útlit er fyrir að kólna muni um landið norðaustan- og austanvert seinnipartinn á morgun með slyddu og úrkomu. Lögreglan á Norðurlandi vestra biðlar til bænda a huga að lambfé sínu á meðan kuldakastið gengur yfir.
Í athugasemd veðurfræðings segir að gera megi ráð fyrir snjó eða krapa á vegum í 100-200 metra hæð frá sjávarmáli. Lögreglan á Norðurlandi vestra beinir því einnig til vegfarenda að gæta sérstaklega að akstursskilyrðum næstu daga, sér í lagi á fjallvegum.
