Á myndinni er Ingjaldur Ásmundsson úr Ferjunesi við útkeyrslu á áburði 2025.
Á myndinni er Ingjaldur Ásmundsson úr Ferjunesi við útkeyrslu á áburði 2025.
Mynd / ál
Fréttir 1. júní 2026

Áburðarsalar rólegir

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Samkvæmt svörum við fyrirspurnum sem sendar voru fyrirtækjum sem selja tilbúinn túnáburð og rúlluplast hafa allar pantanir borist til landsins og dreifing til bænda gengið vel.

Mikið hefur verið rætt um yfirvofandi verðhækkun eða skort á túnáburði vegna lokunar Hormússunds, en áhrifanna er ekki farið að gæta hérlendis. Í svörum kom fram að fyrirtækin sem selja þessar vörur á Íslandi hafi fengið rétt magn af áburði á þeim tíma sem um var samið. Fyrirspurnir voru sendar á Búvís, Sláturfélag Suðurlands, Lífland, Fóðurblönduna og Skeljung.

Erlendu birgjarnir þurftu að hækka verð á einstaka áburðategundum, en áburðarsalarnir hérlendis höfðu færi á að taka kostnaðaraukann á sig þannig að kjör bænda héldust óbreytt. Eins hafi kostnaður við flutning á landi og sjó hækkað, en fyrirtækin ákveðið að láta það ekki hafa áhrif á verð sem bændur höfðu samið um.

Áburðarverðskrár fyrirtækjanna komu flestar út í kringum áramót eða snemma í vor. Samkvæmt svörum þeirra hafa engar breytingar orðið á áburðarverði frá þeim tíma, en flest tala um að rúlluplast hafi ýmist hækkað eða fyrirséð sé að verð muni breytast þegar líður á sumarið. Birgðastaðan á óseldum áburði og rúlluplasti er samkvæmt fyrirtækjunum sambærileg og á sama tíma og síðastliðin vor.

Aðspurð um hvernig fyrirtækin meta horfurnar á heimsmarkaði miðað við samskipti þeirra við birgja erlendis eru þau öll sammála um að vegna stríðsátakanna við Hormússund sé verð á áburði og rúlluplasti í sögulegu hámarki. Dragist ástandið á langinn megi gera ráð fyrir að þessar vörur verði talsvert dýrari á næsta ári.

Skylt efni: áburður | áburðarsalar

Reglur Evrópusambandsins gilda ekki á Íslandi
Fréttir 1. júní 2026

Reglur Evrópusambandsins gilda ekki á Íslandi

Fyrirtækjum sem flytja inn og selja sítrusávexti ber ekki skylda til að merkja þ...

Áburðarsalar rólegir
Fréttir 1. júní 2026

Áburðarsalar rólegir

Samkvæmt svörum við fyrirspurnum sem sendar voru fyrirtækjum sem selja tilbúinn ...

Sameining Lífeyrissjóðs bænda og Frjálsa lífeyrissjóðsins
Fréttir 1. júní 2026

Sameining Lífeyrissjóðs bænda og Frjálsa lífeyrissjóðsins

Skrifað hefur verið undir samning um sameiningu Lífeyrissjóðs bænda (LSB) og Frj...

Sóknarfæri til aukinnar framleiðslu
Fréttir 29. maí 2026

Sóknarfæri til aukinnar framleiðslu

Ylræktarbændum hefur nú í tvígang verið úthlutað styrkjum úr Loftslags- og orkus...

Sameining Arla og DMK Group samþykkt
Fréttir 29. maí 2026

Sameining Arla og DMK Group samþykkt

Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa samþykkt samruna afurðarisanna Arla í ...

Kartöfluframleiðsla á krossgötum
Fréttir 27. maí 2026

Kartöfluframleiðsla á krossgötum

Samkeppnisstaða kartöflubænda hefur versnað mjög á undanförnum árum. Frá 2017 he...

Kuldi næstu daga
Fréttir 27. maí 2026

Kuldi næstu daga

Varað er við snjókomu og því að bændur fyrir austan komi fé í skjól.

Kuldi í kortunum
Fréttir 27. maí 2026

Kuldi í kortunum

Útlit er fyrir að kólna muni um landið norðaustan- og austanvert seinnipartinn á...