Landsmótsandi á Hólum
Metfjöldi miða seldist í forsölu á Landsmót hestamanna sem fer þetta árið fram að Hólum í Hjaltadal vikuna 5. til 11. júlí. Hestamannafélagið Skagfirðingur heldur mótið í ár.
„Undirbúingurinn fyrir mótið gengur mjög vel. Við héldum Landsmót á Hólum fyrir tíu árum og drjúgur hluti undirbúningsins fór í að útbúa mótsvæðið. Núna búum við að því að geta nýtt þetta flotta svæði svo við höfum miklu meiri orku og tíma til að skipuleggja viðburðinn sjálfan sem hefur verið mjög spennandi,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri mótsins, sem oftast er kallaður Heiðar. Ásamt því að metfjöldi miða seldist í forsölu eru rafmagnstjaldstæðin uppseld.
Búa að góðri reynslu
„Það er löng hefð fyrir því að halda Landsmót hestamanna í Skagafirði, á Hólum og á Vindheimamelum þannig að það er bæði mikil þekking og reynsla í Skagafirði þegar kemur að því að halda Landsmót og önnur hestamannamót,“ segir Heiðar. Margir sækja mótið, hestaunnendur á öllum aldri, alls staðar að af á landinu sem og erlendis frá. Bæði er flott teymi fyrir norðan auk þess sem einstaklingar fylgi mótinu eftir. „Við erum til dæmis með töluvert af sama fólki og var í lykilhlutverkum í Reykjavík síðast. Það er fullt af fólki sem bara kann að halda Landsmót og það er frábært að búa að þeirri reynslu,“ útskýrir Heiðar en bætir við að „það er samt líka ný kynslóð, ungt fólk, sem er að taka þátt og fá stærra hlutverk en áður sem er mjög spennandi, mikil reynsla í bland við nýjar hugmyndir“.

Spennandi dagskrá og nýjungar
Gestir mótsins geta búist við glæsilegum hestum og metnaðarfullri dagskrá alla vikuna. Dagskráin hefst að venju á forkeppnum og kynbótasýningum frá morgni til kvölds fyrstu dagana. Seinni part fimmtudags tekur helgarpassinn gildi. „Það er löng hefð fyrir því að setning mótsins sé á fimmtudagskvöldinu og þá ætlum við að halda glæsilega athöfn,“ segir Heiðar.
Á föstudeginum færist öll dagskrá inn á aðalvöllinn. „Það má ekki taka augun af vellinum á föstudeginum, það verður stanslaus flugeldasýning þar langt fram á kvöld,“ segir Heiðar en áréttar að „auðvitað er þetta allt saman veisla en föstudagurinn og laugardagurinn verða einn samfelldur hápunktur“. Ásamt þeim föstu og hefðbundnu keppnisliðum sem verða á dagskrá koma inn tveir nýir flokkar: B-flokkur áhugamanna og A-flokkur ungmenna. Heiðar segist spenntur að sjá hvernig þessar nýjungar munu reynast.
Samhliða þeirri dagskrá sem snýr að hestamennsku verður skemmtidagskrá og barnadagskrá. „Þetta hefur breyst mikið í gegnum tíðina, hestamannamótin voru meira útihátíðir hér áður fyrr en það er voða mikið búið, þetta er fyrst og fremst fjölskyldufólk sem er komið til að sjá hesta,“ útskýrir Heiðar. „Við erum þó auðvitað líka með metnaðarfulla skemmtidagskrá og það verður eitthvað fyrir alla. Annars vegar verður þessi huggulega trúbadorastemning fyrir þá sem vilja vera í rólegheitum að spjalla,“ segir Heiðar.
„Hins vegar verða sveitaböll í stóru reiðhöllinni fyrir þá sem vilja dansa og hafa fjör. Á laugardeginum ætlar Stuðlabandið að klára allt saman með stæl,“ segir Heiðar og tekur fram að enn eigi eftir að kynna fleiri skemmtilega aðila og dagskrárliði.
Ánægð með viðtökurnar
Heiðar segir mótshaldara ánægð með viðtökurnar enda sé stemning fyrir Landsmóti eins og alltaf. Þar sem margir munu leggja land undir fót verður fjölbreytt þjónusta á svæðinu. „Við erum í raun að búa til nokkur þúsund manna þorp frá sunnudegi til sunnudags. Það er öðruvísi taktur í þessu hjá okkur en er til dæmis í Víðidal. Það er erfitt að segja hver heildarfjöldi seldra miða verður en við vonumst auðvitað til þess að þegar verði flestir í brekkunni verði sjö til níu þúsund manns,“ segir Heiðar. Hann leggur áherslu á að svæðið bjóði upp á að taka á móti miklum fjölda.
Heiðar segir einnig nóg hesthúsapláss vera í Skagafirði. „Á áttunda hundrað hestar munu fara í gegnum mótið svo það verður auðvitað mikið umstang en sem betur fer er mikið hesthúsapláss á Hólum svo við getum hýst stóran hluta þessara hesta hér.“ Aukið hesthúsapláss í Skagafirði tengist hestafræðideild Hólaskóla sem er í sífelldri uppbyggingu. „Við erum að leggja sérstaka áherslu á umhverfismál og sjálfbærni í fyrsta skipti á Landsmóti, við viljum gera viðburðinn sjálfan aðeins grænni,“ segir Heiðar og að þetta séu fyrstu skrefin í lengra ferli. Hugað verði að betri flokkun á sorpi, að því að lágmarka urðun og að því að nýta orku og vatn vel á viðburðinum.
Hlakkar til að sjá fólk koma saman
Aðspurður segist Heiðar hlakka mest til að sjá fólk koma saman og eiga góðar stundir. „Ég er spenntastur að finna aftur fyrir þessum Landsmótsanda sem okkur tókst að skapa hér 2016. Að sjá fólk hittast og spjalla saman um hesta og annað sem ber á góma. Ég veit að hestakostur verður frábær og er sannfærður um að það muni allt ganga vel,“ segir Heiðar. „Hvert mótssvæði og hvert mót hefur sinn karakter en það er í grunninn hestarnir og fólkið sem búa mótið til og við viljum bjóða upp á frábæra þjónustu og góða aðstöðu og gera eins og við getum til að öllum líði vel á Landsmóti.“
