Bæði venjuleg eyrnamerki og eyrnamerki með örmerkjum verða gild.
Bæði venjuleg eyrnamerki og eyrnamerki með örmerkjum verða gild.
Mynd / Sigurður Már Harðarson
Fréttir 16. apríl 2026

Beðið útgáfu reglugerðar um eyrnamerki í sauðfé

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Samstarfi um endurskoðun lauk í árslok 2025

Á deildarfundi sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands (BÍ) á Búnaðarþingi í mars, vakti Eyjólfur Ingvi Bjarnason, formaður deildarinnar, athygli á því að enn væri unnið að útgáfu nýrrar merkingarreglugerðar búfjár, þar sem skerpt er á skilgreiningu örmerkja fyrir sauðfé. Undanþága um endurnýtingu slíkra merkja rann út 1. nóvember síðastliðinn.

Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir, sérgreinadýralæknir hjá Matvæla- stofnun, segir að merkingamálin séu í hálfgerðri biðstöðu eins og er. „Verið er að vinna að útgáfu nýrrar merkingarreglugerðar, en þangað til að hún kemur út þá gildir sú gamla.“

Nota má venjuleg eyrnamerki og eyrnamerki með örmerkjum

„Endurnýting á eyrnamerkjum var bönnuð frá og með síðasta hausti og sú ákvörðun er búin að vera þekkt lengi. Það stendur ekki til að taka upp örmerki í staðinn, það er misskilningur. Eyrnamerki koma til með að vera áfram í gildi, bæði venjuleg eyrnamerki og eyrnamerki með örmerkjum.

Starfshópur um endurskoðun merkingarreglugerðar hefur að mestu lokið störfum og er nú verið að vinna verkið áfram í ráðuneytinu. Það að endurnýting á merkjum sé bönnuð er krafa frá Evrópusambandinu. Við fengum undanþágu til þess að leyfa endurnýtingu til hausts 2025,“ segir Sigurbjörg og bendir á að krafan um bann við endurnýtingunni hafi komið frá Eftirlitsstofnun EFTA.

Ekkert frést af útgáfunni

Eyjólfur segir að málið hafi verið lengi í gangi í stjórnsýslunni. „Síðastliðin tvö ár hefur verið unnin vinna þvert á búgreinar innan BÍ ásamt Matvælastofnun og ráðneytinu um endurskoðun á reglugerð um merkingar búfjár. Sú vinna var klár í lok árs 2025 en ekkert hefur enn heyrst af því hvenær eigi að ljúka vinnunni og auglýsa nýja reglugerð.

Þeir bændur sem hafa notað örmerki í sínum búskap hafa fengið flögurnar til baka gegnum árin og getað endurnýtt þær í ný merki árið eftir.

Í endurskoðaðri reglugerð er ekki gert ráð fyrir endurnotkun merkja, en ekki verið svarað hvort gefin sé aðlögun í tiltekin ár. Týpur örflagna eru mismunandi og þeir sem lengst hafa notað merkin eiga lager af merkjum sem hægt væri að nota í einhver ár. Langflestir sem kæmu nýir inn færu væntanlega í merki sem eru einnota,“ segir Eyjólfur.

Hann bætir við að vinnan hafi fyrst og fremst snúist um að skerpa á regluverki varðandi gerð talnakóða í örmerki.

„Um það gilda engar reglur í dag og í raun ekkert sem kemur í veg fyrir að sama 15 stafa talnaruna komi í fleiri en einum grip. Slíkt er ólíklegt en hefur gerst að ég best veit. En notkun þeirra verður valfrjáls.“

Samkvæmt upplýsingum sem fengust úr atvinnuvegaráðuneytinu er vinna enn í gangi vegna þessa máls og ekki liggur fyrir hvenær von sé á niðurstöðu.

 

Skylt efni: sauðfjárrækt | eyrnamörk

Ísteka fær skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku á hryssum
Fréttir 13. maí 2026

Ísteka fær skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku á hryssum

Matvælastofnun hefur veitt lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skilyrt sta...

Bragðarefur í Grasagarði Reykjavíkur
Fréttir 13. maí 2026

Bragðarefur í Grasagarði Reykjavíkur

Mánudaginn 18. maí verður fræðsluganga um Grasagarð Reykjavíkur í tilefni af alþ...

Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi
Fréttir 13. maí 2026

Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi

Tæplega 26 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast saman undir Svartsengi og kv...

100 ára afmæli fagnað með hátíðardagskrá
Fréttir 13. maí 2026

100 ára afmæli fagnað með hátíðardagskrá

Reykholt í Biskupstungum er einn af byggðakjörnum Bláskógabyggðar en þar búa um ...

Skáldaþing á Egilstöðum og Seyðisfirði
Fréttir 13. maí 2026

Skáldaþing á Egilstöðum og Seyðisfirði

Ljóð munu flæða um götur, sundlaugar, veggi og verslanir á Egilstöðum og Seyðisf...

Fundað um líffræðilega fjölbreytni
Fréttir 12. maí 2026

Fundað um líffræðilega fjölbreytni

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fundaði með Astri...

Æðarbændur kynna fullunnar vörur
Fréttir 12. maí 2026

Æðarbændur kynna fullunnar vörur

Vöruhönnuðir þróa nú fullunnar vörur úr eigin dúni og kynna nýtt vörumerki á Hön...

Ísland segir sig frá Orkusáttmálanum
Fréttir 12. maí 2026

Ísland segir sig frá Orkusáttmálanum

Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá Orkusáttmálanum (ECT). Úrsögnin teku...