Blær – íslenskur góðgerladrykkur
Fjórar metnaðarfullar stúlkur á lokaári í Menntaskólanum við Sund hafa unnið að því að koma nýjum íslenskum heilsudrykk á markað. Drykkurinn, sem er sá fyrsti sinnar tegundar hérlendis, verður í boði fyrir gesti og gangandi í Smáralind föstudaginn 17. apríl.
Þær Hafdís Lilja Jónsdóttir, Tekla Ósk Bjarnadóttir, Rebekka Lind Kristinsdóttir og Sólný Helga Sigurðardóttir hafa undanfarið unnið að þróun drykkjarins sem hluta af lokaverkefni sínu í Menntaskólanum við Sund. Verkefnið er unnið undir merkjum Ungra frumkvöðla á Íslandi (JA Iceland), en samtökin hafa það að markmiði að efla tengsl menntunar og atvinnulífs.
Að sögn stúlknanna er um nýjung að ræða á íslenskum markaði, en þær hafa lagt mikla áherslu á að skapa heilnæman valkost sem svarar vaxandi eftirspurn neytenda eftir nýstárlegum heilsugjöfum í fljótandi formi.
Fyrirtækjarekstur á skólatíma
Við erum að sjálfsögðu í þessu ferli með það fyrir augum að ná sem lengst segja þær stöllur Hafdís, Tekla og Rebekka sem litu við á kontór Bændablaðsins á dögunum. Undirbúningur verkefnisins hófst í janúar og þær, ásamt fjórðu stúlkunni, Sólný hafa unnið ötullega síðastliðna mánuði.
„Þetta er samkeppni á vegum JA þar sem menntaskólanemendur fá tækifæri til að stofna fyrirtæki sem svo keppa um fyrstu sætin. Ætli það séu ekki um 150 fyrirtæki sem hafa skapast núna síðan í janúar, en meginatriðið er að stofna eitthvað nýtt, vera frumkvöðull. Sumir nemendur kjósa að vinna sjálfstætt, gera skartgripi og þess háttar, en aðrir, eins og við, reynum að komast í samstarf við stór fyrirtæki. Við erum tildæmis í samstarfi við Ölgerðina, segir Hafdís.
„Við erum allar á hagfræði/stærðfræðilínu í skólanum og lærum þar að reka fyrirtæki og allt sem því við kemur. Þetta er séráfangi í skólanum sem er í boði í sumum öðrum skólum líka, líkt og Kvennó“ segja þær. „Maður lærir allt frá samningagerð og að því að bara senda tölvupóst - það er varla að maður kynni að senda eða svara tölvupóstum segir Tekla. Þegar ég opnaði tölvupóstinn minn áttaði ég mig á því að þar voru örugglega 4000 póstar sem ég hafði ekki sinnt að svara af því ég er aldrei að nota þennan miðil! En nú kann ég það,“ segir hún hlæjandi.
Þarmaflóran þarf að virka
„Við hófum sem sagt undirbúningsvinnuna í janúar, þá hugmyndavinnuna og eitthvað svona skemmtilegt, en okkur langaði að stuðla einhvern vegin að betri líðan í samfélaginu. Við ákváðum, vegna þess að við þekktumst lítið fyrir, að skrifa niður vandamál sem við höfum verið að díla við, en þá kom í ljós að við höfum allar verið að díla við einhverskonar magavandmál. Við komum þá með hugmyndir að því hvernig hægt væri að finna lausn á því og þá datt okkur góðgerladrykkurinn í hug.
Svo höfðum við samband við Ölgerðina og vorum þar í samkeppni við fleiri um að komast í samvinnu við þá. Og þau völdu okkur og nú er kominn Blær.“
„Blær er kolsýrður heilsudrykkur sem inniheldur góðgerla og acacitrefjar segir Rebekka, en trefjarnar virka eins og fæða fyrir góðgerlana þannig þú ert í rauninni að fá bara betri virkni úr góðgerlunum. Ennig skortir fólk oft trefjar – það er minna talað um það í samfélaginu, allir vilja alltaf vera að taka inn prótein, en til að þarmaflóran virki vel þarf trefjarnar.“
Vandræðalegt að vera stífluð
„Þetta er eiginlega vitundarvakning um magavandamál“ segir Hafdís. „Það er ógeðslega vandræðalegt að vera eitthvað stífluð,“ segir Tekla, „en enginn þorir að tala um það“. Krakkar í dag eru undir svo miklu álagi vegna samfélagsmiðla, það er svo mikil pressa að líta fullkomlega út og svo eru til dæmis stelpur oft ekki að borða nógu vel eða nógu hollt, eru undir stressi í félagslífinu og að standa sig vel í skólanum og maginn er ekki að höndla þetta allt. Við höfum allar upplifað þetta en því miður talar fólk lítið um þetta því þetta er svo mikið feimnismál og vandræðalegt að vera illt í maganum og geta ekki kúkað. Við viljum að fólk spái aðeins í þessu vandamáli með opnum huga og verðum með fræðslu þegar við kynnum drykkinn núna 17. apríl í Smáralindinni, smá söluræðu, kynnum þetta fyrir fólki. Ég hef sjálf verið svo að taka inn góðgerla undanfarið sem ég var ekkert að gera áður, bara þegar við byrjuðum á þessu ferli bara eitt LGG á dag og ég finn hellings mun sem er fáránlegt.“
„Líka, ef þarmaflóran þín er ekki góð verður húðin þín slæm og hárið þitt og andleg líðan hefur áhrif á svo mikið,“ segir Rebekka. Við erum líka með D og Cvítamín í drykknum því það er svo mikið af Íslendingum sem skortir D vítamín og C vítamínið er svo jákvætt fyrir ónæmiskerfið“.
Góðgerladrykkur á hönnunarborðinu
„Við ákváðum líka að hafa ekki koffín í honum,“ heldur Hafdís áfram, „það eru svo margir koffíndrykkir á markaðnum en enginn koffínlaus góðgerladrykkur.“ „Okkur fannst heldur ekkert passa að blanda saman góðgerlum og koffíni, vítamínin gefa smá orku... og svo er ótrúlega frískandi að fá sér smá Blæ segja þær brosandi. „Það er ástaraldin og lime bragð af honum, rosa ferskt og maður hressist við hann. Margir vilja líka sleppa koffíni. Við fengum okkur allar Blæ einn morguninn og leið rosa vel, svaka hressar!“
Varðandi útlit á umbúðum drykksins komu þær með nokkrar hugmyndir en Ölgerðin sá svo um lokahönnunina sem kom skemmtilega út. Ferlið allt – eins og við má búast á slíkri vegferð – hefur verið allskonar. Mikið álag sumar vikurnar á meðan aðra daga gekk allt auðveldar. „Eins og þegar við vorum í keppni um samstarfið við Ölgerðina vorum við undir miklu stressi. Við höfðum innan við viku til undibúnings og vildum gera glærukynninguna flotta af því að við vorum ákveðnar í að vinna! Læra kynninguna okkar utanbókar og þess háttar.“
Það þarf bara að keep going!
Samvinnan hefur gert stelpurnar nánari og þær hafa lært mikið af bæði mistökum, verkferli og samskiptum yfirhöfuð. „Við lærum ótrúlega mikið af þessu. Meðal annars það að vera óhræddur við að hafa samband við fólk því það eru flestir til í að veita aðstoð. Versta sem maður heyrir er nei – og við erum auðvitað búnar að fá fullt af neitunum, en miklu fleiri já,“ segja þær. „Það er ótrúlega góð æfing að fá nei og leita annað þar til jáið kemur því það þarf ekkert að gefast upp. Þó maður fái nei þá þarf bara að „keep going“,“ segir Tekla hressilega
Þær ákváðu strax í upphafi að hver og ein sinnti vissu hlutverki. Hafdís er framkvæmdastjóri, Tekla er markaðsstjóri og ritari, Rebekka er framleiðslustjóri og hönnuður og Sólný fjármálastjóri. „Við settum okkur strax í hlutverkin og það held ég að hafi orðið til þess að auðvelda ferlið, segir Hafdís. Hver og einn sinnir sínu og ber ábyrgð. Samskiptin á milli okkar eru líka auðveld, við tölum saman og deilum út verkefnum auk þess að vera með tékklista í tölvunum okkar.“
Hugarfarið skiptir öllu
Stelpurnar segjast eiga það sameiginlegt að hafa frá upphafi viljað ná sem lengst. „Við vorum allar með sama hugarfarið, við ætlum að láta hlutina ganga og við ætlum að vinna keppnina. Hugarfarið skiptir öllu máli. Við til dæmis manifestuðum að við ætluðum að komast í samstarf með Ölgerðinni og það tókst! Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt ferli þar sem við höfum lært heilan helling á mörgum sviðum, líka að vinna saman í teymi. Mjög góð lífsreynsla að vera átján ára og stofna okkar eigið fyrirtæki,“ segja þær brosandi.
Þær segja nemendur Menntaskólans við Sund hafa tekið keppninni mjög alvarlega yfir árin og haft gaman af enda mikil stemming í skólanum vegna hennar. Í fyrra hlutu nemendur fyrsta sætið fyrir framleiðslu á hundaleikfanginu Urra, gerðu úr notuðum tennisboltum og fiskineti, húðuðu með íslensku fiskroði. Að auki fengu MS-ingar fjögur önnur verðlaun af þeim þrettán sem þá voru veitt.
„Þetta er frábær lokaáfangi, maður lærir svo rosalega margt á þessu öllu saman. Rekstur, bókhald, samskipti, skrif tölvupósta og bara allt. Skrá fyrirtækið inn sem fyritæki... þetta er ótrúlega krefjandi en að sama skapi ótrúlega skemmtilegt og það er mjög vel að þessu staðið í skólanum. Til dæmis fengum við að æfa okkur um daginn, þá settu allir nemendur í áfanganum upp sölubása í skólanum og við buðum 10. bekkingum í heimsókn. Æfðum söluræðuna okkar og kynninguna bara almennt sem undirbjó okkur rosa mikið fyrir kynninguna sem verður haldin í Smáralindinni. Við erum mjög spenntar að sjá hvernig fólki líst á drykkinn okkar, fræðsluna og hvernig verður tekið á móti okkur.“
Næstu vikur eiga svo líklega eftir að taka pínulítið á taugarnar, en eftir Vörumessuna í Smáralindinni, dagana 17.-18. apríl verða viðtöl við dómara keppninnar í Arion banka þann 27. apríl. Í framhaldi að því fá keppendur að vita hvort þeir komist áfram en uppskeruhátíðin verður haldin daginn eftir, þann 28. apríl í Arion banka á milli klukkan 13-16:30 þar sem um 14 verðlaun verða veitt og Fyrirtæki ársins valið. Vinningshafar hljóta fría ferð, upphald og þáttökurétt en sá hópur ferðast svo til Lettlands og keppa fyrir Íslands hönd í stærstu nýsköpunarkeppni Evrópu dagana 7.-10. júlí.
Stelpurnar eru bjartsýnar á framhaldið. „Þetta hefur gengið mjög vel segir Hafdís. Við héldum forsölu og seldum 558 Blæ-dósir í forsölunni á fjórum dögum. Við ákváðum að auglýsa söluna á samfélagsmiðlunum okkar, (blaer.heilsudrykkur á Instagram, TikTok og Facebook) og þetta rauk út.
Vonandi fáum við fyrstu verðlaun fyrir þetta en það eru annars mörg verðlaun sem eru veitt og gaman að hljóta einhver. Við erum ógeðslega spenntar að sjá hvað verður, kannski vill Ölgerðin halda samstarfinu áfram ef salan gengur vel. Allavega er mikil eftirspurn eftir Blæ, enda eini drykkurinn af þessari gerð sem framleiddur er á Íslandi!

