Stjörnuspá vikunnar
Vatnsberinn má búast við óvæntum tíðindum og ætti að grípa ný tækifæri því þau opna spennandi gáttir til framtíðar. Allt sem á hefur staðið gengur upp þegar traust er lagt á flæði lífsins og forvitninni fylgt út í daginn. Vatnsberanum er bent á að anda djúpt og stika vongóður áfram veginn. Happatölur 4, 17, 29.
Fiskarnir ættu að nýta næstu daga í að fara yfir gömul skjöl því þar gæti leynst áhugaverður flötur á fjármálunum. Mikil ólga er í loftinu varðandi peningamál og mega fiskarnir vera á varðbergi. Þeir eiga jafnframt von á nokkrum gróða ef þeir halda að sér höndum og eru með gott yfirlit, helst í allar áttir. Happatölur 8, 12, 33.
Hrúturinn ætti að gefa sér tíma til að sinna garðvinnu, helst berfættur því það veitir góða jarðtengingu. Eins og flestir vita er jarðtenging rót alls góðs og veitir oft kjark til að stíga skref sem nauðsynlega þarf. Hrúturinn mætti jafnvel tína jurtir í te, valhoppandi á milli blómanna til að slaka alveg á og ná þannig skýrri sýn á framtíðina. Happatölur 1, 19, 22.
Nautið ætti að skella sér í sund eða gufubað því líkaminn kallar á algjöra slökun og endurnýjun. Einhverjir mun rekast á gamlan skólafélaga sem heldur betur lýsti upp tilveruna hér áður fyrr og endurnýja gömul kynni. Aðgát skal þó höfð því illa getur farið ef farið er of geyst í „gömlu kynnin“. Happatölur 5, 14, 26.
Tvíburarnir ættu að huga að því hvernig mætti betur ná innri ró. Góður nætursvefn og almenn innri ró er dýrmætast öllu og með það í huga er tvíburanum ráðlagt að sleppa því ekki að fara í greiningu vegna athyglisbrests. Enda er það í tísku þessa dagana og fólk sefur víst betur ef það fær aðstoð við óróleikann innra með sér. Happatölur 3, 21, 30.
Krabbinn ætti að prófa að fara nýja leið heim úr vinnunni því hversdagsleikinn þarfnast smá tilbreytingar. Jafnvel hugsa stærra. Næstu vikur einkennast af góðu jafnvægi og snemmbúnum undirbúningi fyrir það sem koma skal, en krabbinn má, eins og áður var nefnt, flýta fyrir nýjum tímum með því að bregða út af vananum. Happatölur 7, 16, 25.
Ljónið ætti að nýta næstu vikur til að hreinsa til heima hjá sér, losa sig við allan óþarfa, ekki síst sem ekki er tengdur því neinum tilfinningaböndum. Þetta er ljóninu í raun bráðnauðsynlegt þessa dagana því slík hreinsun skapar rými fyrir nýja tíma og áframhaldandi jákvæðni í stað stöðnunar. Svo ekki sé talað um plássið sem myndast á heimilinu ... Happatölur 9, 18, 31.
Meyjan ætti að leyfa sér að sleppa öllum plönum og fara bara þangað sem hugurinn dregur hana hverju sinni. Hvort sem er út á land, utan landsteinanna eða innra með sér. Hún má eiga von á skemmtilegum tíma næstu vikur, jafnvel óvæntri gjöf eða glaðningi í pósti sem mun lýsa upp daginn. Happatölur 2, 11, 28.
Vogin ætti að skrifa niður drauma sína strax á morgun því þeir geyma áhugaverð skilaboð. Þessu merki mun vegna vel í sumar þegar kemur að öllum skyldum sem þarf að uppfylla en mætti aðeins aga sig betur. Vogin ætti að setja skyldur sínar í stundaskrá og njóta lífsins utan þess. Þá rætast margir draumar. Happatölur 6, 15, 24.
Sporðdrekinn þarf að fjárfesta í nýjum striga- skóm því nú er hreyfing ekki eitthvað sem má sleppa. Sporðdrekinn hefur verið allt of værukær og þarf að gera eitthvað í málunum ef hann ætlar ekki að missa öll tök á sjálfum sér. Hann ætti reyndar einnig að eyða tíma með sjálfum sér – eftir göngutúrinn, jafnvel leyfa sér að horfa á góða kvikmynd í einrúmi. Happatölur 13, 23, 35.
Bogmaðurinn sem sjaldnast hefur leyft sér að vera með hömlulausan vitleysisgang ætti að endurskoða þann hluta skynseminnar. Hann ætti ekki að vera undanskilinn þeirri ánægju í lífinu að upplifa svolítið óheflað frelsi þó það sé í raun svolítið á móti hans annars siðfáguðu lífsgæðum. Svolítil vitleysa er öllum holl og í raun eðlilegri en nokkuð annað. Happatölur 10, 20, 32.
Steingeitin ætti að sækja einhvers konar sýningu eða aðra sjónræna upplifun sem mun kveikja neista sem hún áður hafði gleymt. Í framhaldinu verður neistinn að báli. Til viðbótar ætti hún að fara í dagsferð og drekka kaffi með gömlum kunningja. Það á eftir að ylja, bæði innan og utan svo skín langar leiðir. Happatölur 11, 27, 34.
