Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Biðstofan á RÚV. Vel tekst til með þættina og í raun er eini galli þeirra sá að þeir eru of stuttir og of fáir.
Biðstofan á RÚV. Vel tekst til með þættina og í raun er eini galli þeirra sá að þeir eru of stuttir og of fáir.
Líf og starf 16. janúar 2026

Enn lengur á Biðstofunni, takk!

Höfundur: Þröstur Helgason

Nú er að hefjast ein skemmtilegasta sjónvarpsveisla ársins með Evrópumótinu í handbolta. Íslenska liðið er talið eiga greiða leið í milliriðla og jafnvel í undanúrslit þótt þar sé ekki á vísan að róa eins og síðustu stórmót hafa kennt okkur. En það verður gaman að fylgjast með og ljóst að stór hluti landsmanna mun sitja eins og límdur við sjónvarpið þegar leikir íslenska landsliðsins fara fram.

RÚV hefur sinnt þessum keppnum vel á undanförnum árum og er sífellt að bæta sig. Þar hefur ríkismiðillinn einkum sótt í smiðju frábærrar íþróttaumfjöllunar á systurstöðvum sínum, Sjónvarpi Símans og þó einkum Stöðvar 2 sem nú heitir Sýn. Þar hefur verið þróuð dagskrárgerð í kringum íþróttir á borð við körfubolta, ekki síst NBA, sem gengur út á að fá sérfræðinga í íþróttinni til þess að ræða fram og til baka um allar hliðar hennar, allt frá minnstu tækniatriðum til herkænskubragða, andlegra og jafnvel félagslegra þátta. Slíkir umræðuþættir hafa svo auðvitað orðið mikilvægur hluti af fótboltaumfjöllun þessara sjónvarpsstöðva, ekki síst enska boltans en einnig meistaradeildar Evrópu.

Fyrir áhugafólk um íþróttirnar jafnt sem lengra komna er rýni og greining af þessu tagi ákaflega áhugaverð. Þegar vel tekst til slagar þáttur af ítarlegum og spaklegum umræðum jafnvel upp í ánægjuna af því að horfa á kappleikina sjálfa.

RÚV hefur smám saman verið að læra þáttagerð af þessu tagi og framleitt stutta röð þriggja þátta fyrir Evrópumótið sem er fram undan. Þættirnir heita Biðstofan (sbr. EMstofan) og eru nú allir aðgengilegir í spilara RÚV. Þar ræðir Helga Margrét Höskuldsdóttir við þá Kára Kristján Kristjánsson, Ólaf Stefánsson og Loga Geirsson um mótið, leikmennina og hvernig þeir sjá fyrir sér að íslenska liðið muni spila. Í síðasta þættinum bætist Aron Pálmason svo við þríeykið en hann hefur nýlokið atvinnumannaferli sínum og lék á síðasta stórmóti í janúar á síðasta ári. Hann hefur því ferska sýn á liðið og ekki síður þjálfarann, Snorra Stein Guðjónsson, sem er nú að fara á sitt þriðja stórmót með liðið.

Vel tekst til með þættina og í raun er eini galli þeirra sá að þeir eru of stuttir og of fáir. Eftir að hafa horft á þá alla situr maður eftir með þá tilfinningu að þessir fjórir fyrrverandi landsliðsmenn hefðu getað setið við mun lengur og rætt það sem er yfirvofandi á Evrópumeistaramótinu. Og sem áhorfandi hefði ég alveg verið til í að hlusta og horfa lengur, fá enn frekari sýn á það sem gengur á í undirbúningi fyrir mót af þessu tagi, enn betri innsýn í kerfin sem á að spila, andstæðinga sem okkar lið mætir, mögulega framvindu mótsins, helstu kosti og galla liðs okkar og andstæðinganna og þannig mætti áfram telja.

Hafandi fylgst með mörgum talsvert lengri umræðuþáttum um til dæmis NBA undir stjórn eins af meisturum þáttagerðar af þessu tagi, Kjartans Más Kjartanssonar á Sýn, þá finnst manni að Helga Margrét hefði mátt sitja lengur á Biðstofunni með gestum sínum og kannski leika sér aðeins með formið. Þættirnir þrír eru nefnilega ekki nema tæpir þrír tímar í heild sinni.

En hvað um það. Áhugafólk um íþróttir getur hlakkað til næstu vikna þegar Evrópumótið í handbolta verður á dagskrá RÚV. Kannski má benda Ríkisútvarpinu á að þeim er jafnframt óhætt að gera meira úr umræðum um mótið meðan á því stendur, fyrir og eftir leiki. Þar hefur tíminn einnig verið naumt skammtaður og iðulega fleygaður af stórum auglýsingapökkum. Sú þáttagerð skilur jafnvel enn frekar eftir þá tilfinningu að ekki nándar nærri allt hafi verið sagt. Þar er RÚV að missa af tækifæri sem systurstöðvarnar myndu alveg örugglega ekki láta renna sér úr greipum ef þær sýndu frá mótinu.

Réttalistinn 2026
Líf og starf 2. september 2026

Réttalistinn 2026

Bændablaðið hefur síðustu ár tekið saman réttalista og birtast hér dagsetningar ...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 31. ágúst 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn á vísnagátunni sem birtist í 15. tölublaði Bændablaðsins.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 27. ágúst 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan þarf að muna að enginn mannlegur einstaklingur er gallalaus. Hvorki hún s...

Vaðmál og voðir
Líf og starf 26. ágúst 2026

Vaðmál og voðir

Bör Börsson, söguhetja samnefndrar skáldsögu sem flutt var í Ríkisútvarpinu árin...

Þeir skora sem þora!
Líf og starf 25. ágúst 2026

Þeir skora sem þora!

Hart var barist fram á síðasta spil og úrslit tvísýn í viðureign Vestra gegn Kjö...

Teflt erlendis
Líf og starf 25. ágúst 2026

Teflt erlendis

Íslendingar hafa verið iðnir við að tefla erlendis í sumar eins og venjan er. Þó...

Hvað er svona merkilegt  við íslensku ullina?
Hannyrðahornið 24. ágúst 2026

Hvað er svona merkilegt við íslensku ullina?

Landnámsmenn sem fóru þarna forðum frá Skotlandi, Noregi og víðar og héldu í nor...

Vísnahornið
Líf og starf 24. ágúst 2026

Vísnahornið

Stera-Pétur læknir fékk sitt auknefni vegna ummæla er féllu, varðandi notkun kra...