Svipmyndir frá Andernach.
Svipmyndir frá Andernach.
Mynd / Edible_City_Andernach3_© 90Grad Photography - Hilger& Schneider GbR
Utan úr heimi 4. júní 2026

Andernach, borgin sem er æt

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Félagslegur og umhverfislegur ávinningur er af ræktun ætigarða í Andernach. Verkefnið hefur skapað störf fyrir fólk sem lengi hefur verið án atvinnu og styður við menntun grunnskólabarna.

Í vesturhluta Þýskalands er 31.000 íbúa borg þar sem almenningsrými eru nýtt til ræktunar á grænmeti, ávöxtum, berjum og angandi blómum. Íbúar geta uppskorið og gestir tínt upp í sig á ferðum sínum en verkefnið laðar að fjölda ferðamanna. Borgaryfirvöld líta á verkefnið sem hluta af innviðum borgarinnar sem þjónar fjölþættu hlutverki.

Borg verður garður

Almenningsrými í Andernach eru aðlaðandi, ilmandi, bragðgóð og tengja íbúa og gesti saman. Borgin, sem er á bökkum Rínar, hefur frá árinu 2010 unnið markvisst að því að rækta ætiplöntur á grænum svæðum í miðborginni og í úthverfum.

„Á komandi sumri munum við áfram hirða um og rækta á núverandi matjurtasvæðum og bæta við nýjum, smærri trjám,“ segir Jonas Gesell, verkefnisstjóri á sviði umhverfis og sjálfbærni hjá borgaryfirvöldum Andernach, um verkefnið sem er í sífelldri þróun.

Stórt svæði við gamlan kastala og borgarmúra í miðborginni er hluti verkefnisins þar sem um 8000 m2 eru nýttir til ræktunar ætiplantna og 130.000 m2 í úthverfum, allt undir yfirskriftinni „má tína“ eða „picking allowed“. Íbúar geta sótt sér mat í ætigarðana og á sama tíma eru félagsleg tengsl íbúa ræktuð í gegnum verkefnið.

Aðspurður um fjármögnun verkefnisins segir Jonas nákvæmar fjárhagsupplýsingar ekki birtar en að almennt séð veiti borgin fé til verkefnisins sem er í lægri enda sex stafa tölu evra. Auk þess séu hlutar verkefnisins og stærri framkvæmdir sér fjármagnaðar með styrkjum, verðlaunafé eða sérstökum fjármögnunaráætlunum. „Þetta gerir okkur kleift að þróa verkefnið áfram skref fyrir skref og horfa til lengri tíma.“

Æta borgin laðar að ferðamenn og boðið er upp á leiðsagnir um ætigarðana frá apríl og fram í október. Á árlegri bæjarhátíð, Andernach schmeckt, sem verður haldin þann 5. júlí, er lögð áhersla á mat og slow food markað.

Svipmynd frá Andernach.

Sýnilegt sjálfbærniverkefni

„Verkefnið er eitt sýnilegasta sjálfbærniverkefni borgarinnar,“ segir Jonas. Ræktunin hefur góð áhrif á loftslagið í borginni þar sem gróðurinn veitir skjól í hitabylgjum, jarðvegurinn tekur við vatni í miklum rigningum og hefur góð áhrif á loftgæði. Borgin er nú orðin betra búsvæði fyrir fjölbreytt dýralíf og litríkari fyrir vikið.

Jonas segir „eitt af því sem nú er í brennidepli er uppsetning færanlegra ávaxtatrjáa á ýmsum stöðum í gamla bænum. Þessi tré munu auka gróskuna og krónuþekjuna, forsælu og kælingu, en jafnframt auka gæði dvalar í miðbænum. Að auki verður haldið áfram að planta fjölbreyttu grænmeti, kryddjurtum, ávaxta- og blómplöntum á núverandi ræktunarsvæðum, í jarðlægum og upphækkuðum beðum.“

Ræktunin teygir sig inn á lóðir grunnskóla bæjarins og felur í sér menntunargildi sem bærinn hefur fjárfest sérstaklega í. Það sameinar einnig umhverfisleg sjónarmið við félagsleg markmið. „Viðhald margra svæðanna er unnið í samstarfi við Perspektive, óhagnaðardrifin samtök, sem styðja við aðlögun þeirra sem hafa lengi verið án atvinnu og einnig flóttamanna að vinnumarkaði,“ bætir Jonas við.

Andernach í Þýskalandi.

Þýsk og alþjóðleg verðlaun

Andernach er nú meðal leiðandi borga í ræktun ætigarða. Við upphaf verkefnisins ríktu efasemdir en þær viku fljótt fyrir metnaði bæjarbúa en verkefnið byggir á ríkulegri þátttöku bæjaryfirvalda, atvinnulífs og íbúa. Verkefninu hefur verið haldið úti í 16 ár og hefur hlotið bæði þýsk og alþjóðleg verðlaun fyrir grænt borgarskipulag, nýsköpun í stjórnun grænna svæða og sjálfbæra umbreytingu almenningsrýma.

Andernach varð árið 2018 hluti af Edible Cities Network sem hlaut styrk árið 2020 úr Horizon rannsóknar- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins. Berlín, Rotterdam og Osló eru þátttakendur í verkefninu. Með þátttöku vildi Andernach leggja sitt af mörkum til að skapa aukna þekkingu á lífvænlegri borgum með ræktun ætigarða og lausnum sem snerta á matvælaframleiðslu, dreifingu og neyslu.

Stysta framboðskeðjan

Þýskir rannsakendur hafa nýtt Andernach sem vettvang rannsókna og meðal annars sýnt fram á að gæfulegast er að styrkur sveitarfélags og frumkvæði borgaranna sé samnýtt í framkvæmd slíks verkefnis. Þannig gefst betri árangur ef borgarar geta haft frumkvæði að því að skipuleggja, taka ákvarðanir og gróðursetja frekar en einvörðungu að hirða um garða og uppskera. „Æta borgin hjálpar fólki að tengja aftur við mat, plöntur og árstíðirnar. Í gegnum árin höfum við líka einnig séð að fólk metur þessi svæði mikils; vandamál eins og rusl eða skemmdarverk hafa haldist mjög takmörkuð,“ segir Jonas, verkefnisstjóri hjá Andernach-borg, að lokum.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...