Rekstrarerfiðleikar halda áfram
Ístex getur ekki greitt bændum fyrir ullarinnlegg þeirra núna í júní, en býður þeim að umbreyta útistandandi kröfum í hlutafé í fyrirtækinu eða að þiggja vörur upp í skuldirnar.
Ístex hefur glímt við mikinn rekstrarvanda á undanförnum misserum sem rekja má að stærstum hluta til verulegs samdráttar í sölu á vörum frá september 2024 til september 2025, sem nam 356 milljónum króna. Hluta vandans má einnig rekja til þess að ráðist var í miklar fjárfestingar á árunum 2023 og 2024 til að mæta þeirri sívaxandi eftirspurn sem var eftir vörum Ístex á þeim tíma.
Reksturinn batnað
Á árinu 2025 náði fyrirtækið ekki að greiða bændum neitt vegna innleggs á því ári, en í byrjun þessa árs náðist að greiða tæplega helminginn af heildarskuldinni við bændur. Í nýlegu bréfi Sigurðar Sævars Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Ístex, til bænda segir að sölutregðan hefði haft veruleg áhrif á lausafjárstöðu fyrirtækisins. Vegna þess hafi félagið þurft að ýta skuldum til bænda, birgja og annarra aðila á undan sér.
„Rekstur félagsins hefur batnað frá því í haust, m.a. vegna sparnaðaraðgerða sem ráðist var í og að útflutningur hefur aukist í vetur. Á móti kemur að sala til NorðurAmeríku er enn þá erfið og einnig er samdráttur í sölu á Lopa og ullarteppum til innlendra aðila sem selja til ferðafólks.
Því miður neyðumst við að tilkynna að Ístex hf. er ekki fært að inna af hendi hefðbundnar peningagreiðslur fyrir ullina að svo stöddu. Okkur þykir þetta miður, enda vitum við hversu mikilvægt þetta uppgjör er fyrir rekstur ykkar búa,“ segir í bréfinu.
Hlutafé í Ístex
Ístex býður því bændum upp á tvo kosti. Annars vegar að umbreyta útistandandi kröfum að hluta eða öllu leyti í hlutafé í Ístex. Þetta sé hægt að gera með að hafa samband beint í gegnum netfangið istex.hf@istex. is eða í gegnum vefsíðuna Ullarmat. is. Hins vegar að taka við ákveðnum vörum félagsins, líkt og ullarteppum og ullarsængum.
„Við teljum að þessar leiðir gætu nýst bændum og hjálpað til á þessum erfiðu tímum. Við munum kynna framkvæmd þessara úrræða frekar í lok mánaðar.
Áfram verður unnið að eðlilegri fjármögnun og við gerum allt í okkar valdi til að styrkja stöðu Ístex og íslenskrar ullar á nýjan leik,“ segir enn fremur í bréfinu til bænda.
