Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Bjartsýni og jákvæðni ríkir á Vestfjörðum
Mynd / HKr.
Fréttir 15. júní 2020

Bjartsýni og jákvæðni ríkir á Vestfjörðum

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Díana Jóhannsdóttir, sviðs­stjóri atvinnusviðs hjá Vestfjarða­stofu, segir mikinn hug í ferðaþjónustuaðilum á Vest­fjörðum varðandi móttöku ferðamanna í sumar. 
 
Hún segir stöðuna þó nokkuð sérstaka þar sem litlar líkur séu á að erlendir ferðamenn skili sér til landsins í sumar.
 
Margir eru að skoða hvaða möguleika sé hægt að setja saman fyrir innanlandsmarkað. Sum þjónusta hentar betur fyrir Íslendinga en útlendinga. Samt er töluverð jákvæðni í fólki varðandi erlendu ferðamennina þar sem það hafa verið að berast töluverður fjöldi af fyrirspurnum. Fólk er að reyna að fresta ferðum sínum lengra inn í sumarið. Margt fólk bindur enn vonir við að geta haldið sig við fyrirhugaða Íslandsferð.“
 
Skemmtiferðaskip halda enn inni bókunum fyrir ágúst
 
Hún nefnir sem dæmi að  skemmtiferðaskipin, sem hafi verið mjög mikilvæg fyrir ferðaþjónustufyrirtækin á Vestfjörðum undanfarin ár, haldi enn opnum bókunum til Vestfjarða í ágúst. Hún telur þó ekki mjög raunsætt að reikna með þeim þar sem erfiðlega gangi að bóka í skipin vegna neikvæðrar reynslu fólks sem upplifa þurfti kyrrsetningu um borð í mörgum skipum vegna COVID-19. 
 
 Veðrið hefur oft úrslitaáhrif  
 
– Nú virðist vera töluverður áhugi á meðal Íslendinga um að ferðast til Vestfjarða, er sá áhugi ekki að skila sér til ykkar?
 
„Jú, en það verður mjög hörð samkeppni um þessa ferðamenn úti um allt land. Á endanum held ég að það verði veðrið sem stýrir því mjög mikið hvert Íslendingarnir eru tilbúnir að fara.“
 
Gott veður síðustu tvö sumur
 
Díana segir að síðustu tvö sumur hafi veður verið mjög gott til ferðalaga á Vestfjörðum og vonast hún til að lukkan verði líka með þeim þetta sumarið. 
 
Reyndar er veður oft mjög breytilegt innan Vestfjarða og þó veðurstofukortið sýni ekkert sérstakt veður, þá getur verið glampandi sól og logn víða inni á fjörðum. Oft hefur verið kvartað yfir opinberum hitamælingum á mæli eins og í Bolungarvík, sem er oft í norðaustlægum áttum að sýna nokkrum gráðum lægra hitastig en raunin er, t.d. inni á Ísafirði (Skutulsfirði) eða innar í Djúpinu og í fjörðum þar fyrir vestan. 
 
Margt að skoða
 
Margvísleg upplifun stendur til boða á Vestfjörðum, eins og góðar sundlaugar, áhugaverð söfn, fjölbreyttar skoðunarferðir, gönguferðir og siglingar. Það má t.d. nefna Sjóferðir Hafsteins og Kiddýar á Ísafirði, sem flytja fólk á stórum og öflugum bátum m.a. í eyjuna Vigur í Ísafjarðardjúpi og í hina mjög ein­stöku ferðaparadís í friðlandinu á Hornströndum. 
 
Sjávarþorpin í hverjum firði heilla líka marga og auk fuglabjarga á Hornströndum er hægt að aka alla leið að Látrabjargi á sunnanverðum Vestfjörðum. Það sem hrífur marga Íslendinga sem ferðast á það svæði eru hvítu sandarnir sem þar eru í hverri vík og engu líkara en að fólk sé komið á strendur við Miðjarðarhaf eða á Kanarí.