Stjörnuspá vikunnar
Vatnsberinn mun finna fyrir óvæntri spennu í kringum sig á næstunni. Framtíðarsýn hans skerpist og ný tækifæri í peningamálum gætu komið upp, en varfærni er nauðsynleg. Í ástarmálum þarf hann að vera með athygli auk þess að vera viðbúinn krefjandi fjölskyldu. Velgengni fylgir litlum skrefum, ekki stórum stökkum. Happatölur 37, 3, 99.
Fiskurinn er í góðu jafnvægi og má horfa bjartsýnn fram á veginn. Peningamál þróast hægt en vel. Ástin blómstrar sem aldrei fyrr, fjölskyldubönd styrkjast og gleði fylgir samveru, en nú verður erfiðum kafla senn lokið. Heppni mun einnig leika aðeins við fiskinn en hann má ekki gleyma að deila henni með öðrum. Happatölur 65, 22, 1.
Hrúturinn stendur frammi fyrir breytingum sem krefjast hugrekkis. Framtíðarsýn er skýr en ákvarðanir þurfa að vera ígrundaðar. Peningamál gætu sveiflast. Í málum hjartans þarf hann að sýna þolinmæði og vita að fjölskyldan styður hann, þó hann taki ekki alltaf eftir því. Heppni fylgir áræðni. Happatölur 43, 4, 65.
Nautið þarf að halda ró sinni og einbeita sér að langtímamarkmiðum með það í huga að þó peningamálin séu stöðug krefjist þau skipulags svo bætist megi í sekkinn. Ástarlífið fær nýjan neista ef nautið leggur sig fram við að opna hjarta sitt auk þess sem fjölskyldan kallar á meiri nærveru. Happatölur 8, 18, 91.
Tvíburarnir finna fyrir mikilli orku og hugmynda- flugi – „aldrei þessu vant“. Í þetta skipti mun þó framtíðarsýn þeirra opna fyrir jákvæðari sýn þar sem gamlar hömlur eru fjarlægðar. Ástarmálin eru í algleymingi, létt og skemmtileg – og flýtur tvíburinn um á skýi og nýtur jákvæðni og léttleika um þessar mundir. Happatölur 12, 27, 88.
Krabbinn þarf að hlúa að tilfinningum sínum og setja mörk. Bæði virða annarra en allra helst þekkja sjálfan sig nógu vel til að láta ekki bjóða sér hvað sem er. Tilfinningamálin þarfnast hreinskilni á alla vegu en framtíðin býður upp á stöðugleika ef innsæinu er treyst. Fjölskyldan er lykill krabbans að vellíðan, öryggi og ró. Einhverja varfærni þarf að sýna í peningamálum. Happatölur 6, 14, 70.
Ljónið skín skært, a.m.k. skærar en fyrir hálfu ári og má með ró og festu mynda sér framtíðarsýn – bæði stóra og metnaðarfulla. Peningamál geta batnað ef ljónið skammtar sér vikupening og setur sjálft sig í smá aðhald. Þetta kemur allt með sumrinu ef ljónið heldur vel um sjálft sig og deilir ró sinni og jafnvægi með sínum nánustu. Happatölur 9, 33, 72.
Meyjan þarf að sleppa fullkomnunaráráttunni og treysta flæðinu. Framtíðarsýn skýrist þegar hún slakar á auk þess sem peningamálin eru í einkar góðum farvegi. Ástarlífið krefst opins hugar því sjaldan er sopið kálið þó í ausuna sé komið. Fjölskyldan heldur utan um meyjuna þegar þess þarf, þannig í raun þarf hún engar áhyggjur að hafa. Happatölur 5, 16, 84.
Vogin leitar jafnvægis á öllum sviðum lífsins. Á sviði mennta og atvinnu býður framtíðin upp á sátt ef hún tekur skýrar ákvarðanir, en vogin þarf að leggja svolítið á sig til þess að ná þeim markmiðum sem hún vill helst. Peningamálin glæðast með sumrinu og í mál hjartans bætist einnig ansi mikil glóð. Happatölur 11, 24, 66.
Sporðdrekinn upplifir djúpar breytingar og umbreytingu á sjálfum sér þá helst. Framtíðarsýnin hans krefst hugrekkis sem hann taldi sig hafa, en er nú óviss um og ekki bætir úr skák að peningamálin verða nú óstöðug um tíma. Í ástinni er tími hreinsunar og nýs upphafs. Ræða þarf málin af ýtrustu hreinskilni og með öll spil á borði. Happatölur 2, 19, 77.
Bogmaðurinn horfir fram á spennandi ævintýri, en hann mun skyndilega átta sig á því að lífið er fullt af möguleikum. Peningamálin munu batna ef teknar eru áhættusamar en vel ígrundaðar ákvarðanir með bjartsýnina að vopni. Ástin í lífi bogmannsins er undir sama hatti, þar má taka ákvarðanir, en útkoman verður einungis til heilla – frjáls og skemmtileg. Happatölur 7, 21, 90.
Steingeitin vinnur markvisst að markmiðum sínum með stöðuga og raunhæfa framtíðarsýn að leiðarljósi. Peningamálin eru í góðum farvegi og verða henni á einhvern hátt til gleði. Nánasta fjölskylda krefst tíma hennar – ekki skal hún vera spör á hann þótt síður sé, en þó setja mörk, sér í haginn. Happatölur 10, 28, 54.
