Nýtt kaffihús á Kópaskeri
Hjónin Hildur Óladóttir og Barry Laker reka ferðaþjónustu á Kópaskeri. Í nokkur ár hefur Hildur verið með Gistiheimilið Mela og heita potta í fjöruborðinu neðan við húsið, en eftir að Barry kom inn í reksturinn fyrir rúmu ári ákváðu þau að setja á fót Kaffi Aðalstein, sem er kaffihús í 20 feta gámi.



