Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi
Tæplega 26 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast saman undir Svartsengi og kvikuhlaup og eldgos á Sunhnúkagígsröðinni telst enn líklegasta sviðsmyndin. Þetta er töluvert meiri kvikusöfnun en var fyrir síðasta gos á svæðinu sem lauk 5. ágúst 2025.

