Nemendur Menntaskólans í Kópavogi saman komnir í grænmetisgarði með ferskt og fallegt grænmeti, alsælir með heimsóknir sínar til garðyrkjubænda.
Nemendur fengu að taka upp grænmeti í útigarðinum í Hvítárholti hjá Jörfa í Hrunamannahreppi.
Hlynur Sigurbergsson hjá Garðyrkjustöðinni Kinn í Hveragerði er hér að fræða nemendur um starfsemi stöðvarinnar.
Flúðasveppir eru vinsælt fyrirtæki, sem alltaf er gaman að heimsækja og fræðast um starfsemina og það klikkaði ekki í heimsókn nemendanna.
Vígalegir nemendur, eða þeir Jakob Kristinsson (t.v.) og Mikael Máni Oddsson, en allir nemendur voru gallaðir upp í síðustu heimsókninni, sem var í Ártanga, til að koma í veg fyrir að eitthvað krossbærist á milli stöðvanna. Nemendur fengu líka skóhlífar.
Nemendur fengu að taka með sér fullan kassa af útiræktuðu grænmeti frá Jörfa til að prófa að matreiða með.
Margrét Lilja Jónsdóttir og Kristján Ragnar Waagfjörð Stefánsson með fullt fangið af nýjum íslenskum gulrótum.
Vilberg Darri Gunnarsson (t.v.) og Tómas Andri Jörgensson voru ánægðir með nýuppteknu gulræturnar.