Hvað er í jólamatinn og af hverju?

„Það verður humar og beef wellington. Af því ég er búinn að fá leið á svínakjötinu,“ segir Árni Björn Ingvarsson
„Það er hreindýrakjöt af því ég er búinn að veiða hreindýr í mörg ár og það er vel við hæfi að borða það,“ segir Ásmundur Guðnason.
„Yfirleitt fé ég mér bara svínahrygg af því að mamma og pabbi velja það,“ segir Bjarki Hrafn Ívarsson.
„Það er hamborgarhryggur, en það er hefð. Svo er hangikjöt á jóladag,“ segir Freydís Björk Sigvaldadóttir.
„Forrétturinn er humarsúpa. Síðan er aðalrétturinn hamborgarhryggur. Svo erum við oftast með bollakökur í eftirrétt með heimagerðum ís. Þetta hefur alltaf verið borðað á mínu heimili,“ segir Ísak Pétursson.
„Hangikjöt og meðlæti. Í forrétt erum við með hreindýrapate og í eftirrétt er oftast ís. Þetta er gömul hefð frá heimilum foreldra minna,“ segir Kristín Ósk Magnúsdóttir
„Ég er mjög hrifinn af sveppasúpu sem er algeng í Póllandi. Mig langar líka í hamborgarhrygg, en ég hef aldrei prufa íslenskan jólamat,“ segir Matheus Krawczuk
„Ég held að það sé hryggur. Mamma og pabbi velja það,“ segir Óskar Freyr Böðvarsson
„Það er ekki alveg búið að ákveða það. Við erum alltaf með mismunandi. Líklega nautalund,“ segir Sesselía Dagbjört Gunnarsdóttir.
„Þetta er alltaf hjá syni mínum og það er hamborgarhryggur. Hann er búinn að finna system til að til að elda þetta á grillinu. Þetta er svolítið bragðmeira,“ segir Sigrún Gísladóttir.
„Ég er með purusteik að norskum sið. Það er af því að þegar ég byrjaði að búa bjó ég úti í Noregi og datt ekkert annað í hug,“ segir Sigurjón Hallgrímsson.
„Það verða sennilega rjúpur í jólamatinn. Það er gamall vani,“ segir Skúli Guðmundsson.
„Við borðum kjúkling í tómatasósu frá El Salvador, þaðan sem ég kem. Við gerum einnig brauð og berum fram salat, kúrbít og tómata,“ segir Sofia Galdamez.
„Reyktur hátíðarkjúklingur, við erum alltaf með það. Okkur finnst það best. Það er léttara en svínakjötið,“ segir Sólveig Eyfeld Unnardóttir.
„Ég fæ mér hangikjöt og kalkún. Það er af því að ég er hálfur Dani og við fáum okkur oftast kalkún í jólamat,“ segir Stefán Karl Erlingsson.