Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur um allt land næsta sunnudag, 7. júní.
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur um allt land næsta sunnudag, 7. júní.
Mynd / Róbert Róbertsson
Fréttir 3. júní 2026

Sjómannadagurinn

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Á þessum árstíma, fara viðburðir um land allt að skjóta upp kollinum og kennir margra grasa... Sjómannadagurinn er einn okkar hátíðlegustu daga, en upp á hann hefur verið haldið síðan árið 1938 í júníbyrjun ár hvert. Nánar tiltekið fyrsta sunnudag júnímánaðar og frá árinu 1987, lögskipaður frídagur sjómanna. (Rétt er að geta þess að ef hvítasunnu ber upp á þann dag, eru hátíðahöld sjómannadagsins annan sunnudag mánaðarins).  Með það í huga er hér  örlítið yfirlit.

Í Reykjavík má skemmta sér við allt frá atriði úr söngleik Verslunarskólans, Barbie, heiðrun sjómanna í Hörpu að hinum árlega koddaslag á planka nálægt Kaffivagninum á sunnudeginum 7. júní.

Trúbadorinn Siggi Björns verður með tónleika í Salnum í Kópavogi.

Tónlistarunnendur mega ekki láta framhjá sér fara tónleika Sigga Björns sem haldnir verða í Salnum í Kópavogi sama dag klukkan 20:00 – en miða má finna á tix.is. Siggi er bæði Flateyringur og heimshornaflakkari sem hefur verið á ferð með gítarinn sl. 40 ár. Samkvæmt upplýsingum mun hann líta um öxl á þessum tónleikum, en til viðbótar við tónlistarflutning skemmtir hann gestum með sögum af sjómennsku og lífsins slarki. Sögur sem eru missannar, en allar með nógu miklu vestfirsku kryddi til að harðfisklyktin sitji í Salnum í nokkra daga á eftir.

Í Hafnarfirði, við höfnina, er keppt um Sterkasta mann Íslands 2026, en stemningin er mögnuð þegar helstu kraftajötnar landsins takast á við æsispennandi aflraunir. Einnig verður koddaslagur, sjómannakeppni, kaffi, kökur, kappróður, siglingar og margt fleira.

Sjómannadagshelgin á Eskifirði verður haldin hátíðleg dagana 4.–7. júní með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Þar verða ma. grillaðir borgarar í boði Eskju, sundlaugadiskó, dorgveiðikeppni og endalaus gleði. Söngvarinn og gleðigjafinn alkunni, Páll Óskar, heldur uppi stuðinu laugardaginn 6. júní í Valhöll, Eskifirði, einnig í boði Eskju.

Frá sjómannadeginum í Reykjavík. Mynd / Róbert Róbertsson.

Á Patreksfirði er mikið um að vera, en sama kvöld og Páll Óskar tryllir lýðinn á Eskifirði verða Gunni Óla og Írafár að gera allt vitlaust þarna hinumegin á landinu í Félagsheimili Patreksfjarðar. Kvöldið áður er svo tekið föstum tökum af hljómsveitinni Todmobile en miðaverð er 3000kr. á hvora gleði. Annars er glæsileg dagskrá um helgina, kappróður, dorgveiði, barnaball, golfmót og grill svo eitthvað sé nefnt.

Fyrir norðan, á Ólafsfirði verður einnig slett úr klaufunum, en auglýsir Sjómannafélag Ólafsfjarðar heilmikla dagskrá. Hoppað verður í sjóinn, kappróður fer fram, keppt verður um Alfreðsstöngina auk þess sem hljómsveitin Ástarpungarnir ásamt Jógvan, Friðrik og Selmu Björns. Spila fyrir dansi á laugardeginum, en miðaverð er 4000 kr.

Að lokum í þessu yfirliti er ágætt að geta sjómannadagshelgarinnar í Vestmannaeyjum, en þar sem Karlakór Vestmannaeyja heldur vortónleika á fimmtudeginum kl. 20, blóm lögð að minnisvarðanum á Skansinum kl.16 daginn eftir, SSSól í Höllinni kl. 20 sama kvöld, dorgveiðikeppni og almennt fjör á laugardeginum með balli um kvöldið þar sem standa á sviði Herra Hnetusmjör, Stebbi Jak og fleiri hetjur. Hátíðinni lýkur á sunnudeginum með hátíðardagskrá á Stakkó, þar sem heiðraðir verða aldnir sægarpar, verðlaun verða veitt, andlitsmálun, þurrkoddaslagur og fleira til skemmtunar. 

Minni heimsins
Fréttir 4. júní 2026

Minni heimsins

UNESCO-dagurinn var haldinn hátíðlegur í byrjun maí, en í ár var fjallað sérstak...

Landgræðsluskólinn hefur útskrifað 240 nemendur
Fréttir 4. júní 2026

Landgræðsluskólinn hefur útskrifað 240 nemendur

Á undanförnum mánuðum hefur GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu staðið fyrir vi...

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi
Fréttir 3. júní 2026

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi

Þungarokkshátíðin Sátan verður haldin í Stykkihólmi dagna 4.-6. júní. Þetta er í...

Nota langmest innlend áburðarefni
Fréttir 3. júní 2026

Nota langmest innlend áburðarefni

Verðhækkanir á áburðarverði koma lítið sem ekkert við bændur í lífrænni ræktun.

Erfitt að sætta ólík sjónarmið
Fréttir 3. júní 2026

Erfitt að sætta ólík sjónarmið

Verðmæti efnisins sem Ísteka vinnur úr blóði fylfullra hryssna veltir um tveimur...

Rekstrarerfiðleikar halda áfram
Fréttir 3. júní 2026

Rekstrarerfiðleikar halda áfram

Ístex getur ekki greitt bændum fyrir ullarinnlegg þeirra núna í júní, en býður þ...

Baldur og Herjólfur sigla til og frá Vestmannaeyjum
Fréttir 3. júní 2026

Baldur og Herjólfur sigla til og frá Vestmannaeyjum

Ferjurnar Baldur og Herjólfur munu sigla til og frá Vestmannaeyjum frá 8. júní n...

Sjómannadagurinn
Fréttir 3. júní 2026

Sjómannadagurinn

Á þessum árstíma, fara viðburðir um land allt að skjóta upp kollinum og kennir m...