Bóndi óskast – eða að minnsta kosti álitlegur karlmaður. 32 ára skvísa, spræk og skemmtileg, óskar eftir góðum maka til að deila lífsins gleði og ævintýrum með. Leita að myndarlegum, handlagnum og hressum manni sem kann að meta sveitasæluna, góðan húmor og notalegar kvöldstundir. Kostur ef þú kannt að bakka með kerru, skipta um dekk og ert betri í að sýna tilfinningar en meðaldráttavél. Ég kem með brosið, gleðina og smá stríðni – þú kemur með heiðarleikann, hlýjuna og helst smá karlmennsku. Ekki verra ef þú átt jörð, en hjartað skiptir meira máli! Áhugasamir mega láta í sér heyra – feimnir bændur líka. Vonbiðlarar sendið á móður mína með frekari upplýsingum: guddreng@gmail.com
Smáauglýsing skráð: 19. október 2026
