UNGT PAR ÓSKAR EFTIR FORVITNU FÓLKI. Við erum par á þrítugsaldri, óskum eftir einstaklingum og/eða pörum sem eru forvitin og til í að skoða eitthvað nýtt... Við viljum sjá hvort við getum ekki græjað þetta með fiskinn og landbúnaðinn í samningaviðræðum við ESB, svo við getum kannski fengið betri vaxtakjör á lánið okkar. Við leitum því að fólki sem langar að skoða þetta með okkur og hvetjum fólk til að segja já til að sjá þann 29. ágúst.
Smáauglýsing skráð: 10. ágúst 2026
