Grínistinn Ari Eldjárn hélt tölu á hátíðarkvöldverði Búnaðarþings sem haldinn var á Natura Reykjavík hóteli á þriðjudagskvöldið. Þar sló hann á létta strengi við góðar undirtektir veislugesta. Mynd / ál
Í bílastæðahúsi í Hamraborg í Kópavogi leynist bygging sem áður þjónaði hlutverki bensínstöðvar. Þar eru engir starfsmenn með viðveru eftir að sjálfsafgreiðsla á eldsneyti tók yfir. Nú er listamönnum boðið að vera með sýningu í rýminu. Mynd / ál
Dýrafjörðurinn í vetrarham þann 4. apríl 2026. Vinstra megin við miðju sést Kaldbakur, hæsta fjall Vestfjarða. Toppur hans er í 998 metra hæð yfir sjávarmál. Myndin er tekin í Ytri-Húsum á Núpi. Mynd / ál
Á bekk í Öskjuhlíðinni situr þessi tréskúlptúr, sem er skógarvera af ætt fugla. Líklegt má telja að veran þjóni þeim praktíska tilgangi að bægja vegfarendum frá því að leggja l leið sína um aflagðan göngustíg. Mynd / ál
Einn skarfur og tveir mávar hvíla sig um stund á tveimur steinsteyptum stöplum í Grafarvoginum í dúnalogni í byrjun febrúar. Veturinn hefur verið óvenjumildur og hafa góðviðrisdagar sem þessi verið margir. Mynd / ál
Í asahláku þann 6. mars myndaðist mikill vatnselgur undir brúnni neðst í Ártúnsbrekku í Reykjavík. Ökumaðurinn til vinstri á myndinni fór á of mikilli ferð yfir vaðið með þeim afleiðingum að jeppinn gafst upp á miðri leið og sat þar fastur. Mynd /ál
Innan um þyrpingu bensínstöðva og verslana í Borgarnesi má sjá litríkan matarvagn sem selur kebab með tyrknesku lagi og annan skyndibita. Myndin er tekin í byrjun aprílmánaðar. Mynd / ál
Hér sést tún á Möltu, sem er sjálfstætt eyríki sunnan við Sikiley í Miðjarðarhafinu. Íbúar þar eru í kringum 574 þúsund og er eyjaklasinn samtals 316 ferkílómetrar. Mynd / ál
Á Reykjarvíkurflugvelli er sovéska Antonov AN-2 flugvél frá 1957. Flugvélin er í eigu hollensks flugfélags og kom hingað í fyrra til þess að taka þátt í leit að braki bandarískra herflugvéla sem hurfu á Grænlandsjökli 1942. Mynd / ál