Vísnahornið
Líf og starf 7. júlí 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Nú snýst margt um farsímanotkun og net í samskiptum manna á milli. Guðmundur Þorsteinsson, bóndi á Skálpastöðum, orti þessa eitt sinn:

Sála mín glúpnaði andspænis örlagdómi

til almáttugs drottins ég vildi í neyð minni snúa mér

og einhver svaraði yfirveguðum rómi: ,

,Það er enginn notandi með þetta símanúmer.“

Snillingurinn Hjálmar Freysteinsson heitinn læknir, sagði eitthvert sinn: Einn því fylgir ókostur að eiga símann; hættan á að hringt sé í mann.

Fyrir mörgum árum orti Hjálmar á sólstöðuhátíð í Grímsey, þar sem nokkrir hagyrðingar komu saman:

Gestrisnir eru Grímseyingar

og gaman að koma á þennan stað.

Jafnvel heimskustu hagyrðingar,

hljóta að viðurkenna það.

Oft eru umræður á Alþingi nokkuð svo sérstakar og eitthvert sinn orti Hjálmar um ónefnda þingmenn:

Sumir þannig sannfæringu sína tjá,

þeir segja nei og síðan já

og sitja loksins hjá.

Þegar stóðu yfir umræður varðandi álver þurfti bæjarstjórn Hafnfirðinga að ræða þrjú mál tengd álveri og Hafnarfirði. Framsókn átti þá einn fulltrúa í bæjarstjórn, hann sat hjá við afgreiðslu fyrsta máls, en greiddi atkvæði gegn máli tvö og síðan atkvæði með því þriðja. Andrés Kristjánsson, ritsjóri Tímans sálaða, orti þarna um 1968:

Glæst er á skriði flokksins fley

með fræknu liði og snjöllu,

það situr hjá og segir nei

og síðan já við öllu.

Um haus og daus yrkir Þórarinn Eldjárn í kveri sínu Eitt og annað:

Til að geta haldið haus

hefurðu þá völ

þó kunni að vera kvöl

að koma þér upp digrum daus

sem dugar vel í kjöl.

Og Þórarinn segir líka ,,Skárra væri“:

Í öllu heimsins veseni og vosi

er viturlegt að koma sér upp brosi.

Koma auga á allt það sem er skárra

æðra, stærra, hærra, skírra, blárra.

Jón Bjarnason var bóndi í Garðsvík á Svalbarðsströnd um skeið og þótti gamansamur, hann orti um heyþurrk:

Sunnanátt og sólarþey

sérhver bóndi metur.

En til hvers er að eignast hey, 

sem eyðist næsta vetur.

Einhvern tímann mun Jón B. hafa ort er rannsóknir sýndu að í erfðamengi Mývetninga fundust gen, sem svipaði til erfðaefnis úlfalda að sögn fróðra:

Enn um furður okkar lands

útlendingar þinga.

Rekja allt til úlfaldans

ættir Mývetninga.

Þegar sameinast var um eina nautstöð, var kynbótanautið Sokki flutt þangað frá sæðingastöðinni á Akureyri. Þegar Sokki hafði lokið sínu var hausinn af honum stoppaður upp og gefinn Eyfirðingum. Mynd var af afhendingunni á forsíðu Freys, þar sem formaður B.Í., Ásgeir Bjarnason í Ásgarði, og Vernharður Sveinsson mjólkursamlagsstjóri voru með hausinn af Sokka. Þá orti Jón Bj.:

Jafnvel þó að Sokki sé

sviptur búki gildum,

sýnir myndin mönnum hve

margt er líkt með skyldum.

Kristján Benediktsson var að leggja flísar á forkirkjugólf og var ósáttur með verkið sem og lit á flísum: Flísalögn er ferlegt puð og flesta hér mun gruna, að aldrei framar gangi Guð gegnum forkirkjuna.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...

Kalla eftir skjalasöfnum bóndakvenna
Fréttir 29. júní 2026

Kalla eftir skjalasöfnum bóndakvenna

Kvennasögusafn Íslands varðveitir um 400 einkaskjalasöfn og var stofnað sem gras...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f