Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst að í fyrsta skipti frá 2017 fjölgar sláturdilkum á milli ára.
Enn hafa ekki allar tölur skilað sér frá minni sláturhúsunum en bráðabirgðatölur frá þeim gefa ekki tilefni til að ætla að endanlegar tölur breyti heildarmyndinni.
Minni fallþungi en í fyrra Þegar tölur frá fimm stærstu sláturhúsunum eru skoðaðar sést að alls var 5.377 fleiri dilkum slátrað nú en á síðasta ári. Það skilar þó ekki nema rúmlega 21 tonni meira af dilkakjöti þar sem fallþungi er nokkuð minni en í fyrra. Nú mælist hann 17,08 kíló að meðaltali hjá fimm stærstu sláturhúsunum en var 17,26 kíló á síðasta ári.
Vegin meðaleinkunn fyrir gerð lækkaði einnig milli ára hjá fimm stærstu sláturhúsunum, úr 9,59 í 9,41. Gerðareinkunnin í fyrra mældist reyndar sú hæsta frá því að núverandi kjötmat var tekið í notkun. Meðaleinkunn fyrir fitu lækkaði sömuleiðis í ár, úr 6,64 í 6,51. Endanlegar meðaleinkunnir á landsvísu liggja þó ekki fyrir, fyrr en tölur minni sláturhúsanna hafa allar skilað sér.
Meira slátrað af fullorðnu
Slátrun fullorðins fjár jókst einnig milli ára, þegar tölur fimm stærstu sláturhúsanna eru skoðaðar. Alls var 41.953 fullorðnum gripum slátrað þar í ár, samanborið við 40.695 á síðasta ári. Það er um 3,1% fjölgun. Fjölgunin skýrist alfarið af aukinni slátrun áa, en þeim fjölgaði um 1.444 milli ára, úr 34.382 í 35.826. Slátrun hrúta og veturgamals fjár dróst hins vegar lítillega saman.
Fækkun sláturdilka hefur verið stöðug og umtalsverð á undanförnum árum. Árið 2017 var rúmlega 560 þúsund dilkum slátrað á landinu öllu, en á síðasta ári var heildarfjöldinn kominn niður í rúmlega 391 þúsund. Það jafngildir um 30% fækkun á átta árum.

