Smalahundar lykilþáttur í búskapnum
Á Presthólum í Norðurþingi búa bændurnir Maríus Halldórsson og Lára Björk Sigurðardóttir ásamt fjórum börnum. Þau eru með um 600 kindur og skipa fjárhundar stóran sess í þeirra búrekstri. Maríus er formaður Smalahundafélags Íslands og hefur keppt erlendis í smalahundakeppnum fyrir Íslands hönd. Hjónin byggðu nýlega hús með fullkominni aðstöðu fyrir tíu hunda.
„Samfélagið í kringum smalahunda á Íslandi fer ört stækkandi,“ segir Maríus í samtali. „Mér finnst fleiri bændur vera að átta sig á því að þeir þurfi að fá sér hund. Víða eru bændur að hætta búskap og því eru færri eftir sem þurfa að smala stór svæði. Ég væri sjálfur ekki til í að vera hundlaus með kindur, en góður hundur léttir gríðarlega undir.“
Maríus hefur verið formaður Smalahundafélags Íslands (SFÍ) frá því í fyrra ásamt því að vera formaður í Austurlandsdeild SFÍ. Meðlimir SFÍ eru 347 og segir Maríus starfið nokkuð virkt. Starfsemi félagsins felst meðal annars í því að skipuleggja og halda utan um landskeppnina sem er árlega og standa fyrir námskeiðum.
Á heimsmeistaramóti í Skotlandi
„Smalahundakeppnir eru erfiðasta íþrótt í heimi,“ segir Maríus. „Þetta er sálarstríð þar sem þú þarft fyrir það fyrsta að hafa hemil á sjálfum þér á sama tíma og þú hefur hemil á hundinum sem þarf aftur að hafa hemil á kindunum.“
Í lok september fór Maríus ásamt Elísabetu Gunnarsdóttur fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramót Alþjóðasamtaka smalahunda sem haldið var í Skotlandi. „Það gekk ágætlega hjá mér, en ég var í hundraðasta sæti af rétt rúmlega 300 keppendum, eða vel yfir meðallagi. Ég féll reyndar á tíma, en náði góðu skori á því sem ég kláraði. Þetta var í annað skiptið sem ég keppi á heimsmeistaramóti, en árið 2023 fór ég til Norður-Írlands þegar mótið var haldið þar.“
Aðspurður um hvernig þessi smalahundakeppni fór fram segir Maríus: „Í forkeppninni er byrjað á 350 metra úthlaupi. Hundurinn þarf að koma í boga fyrir kindurnar og á að koma með þær eins beint og hægt er til þín í gegnum eitt hlið á leiðinni. Svo áttu að láta hann reka frá þér í þríhyrning í gegnum önnur tvö hlið.
Þarna voru fimm kindur og tvær þeirra merktar með hálsól. Fyrst átti að taka tvær ómerktar og skilja frá hópnum. Þegar dómarinn hafði gefið samþykki mátti sameina þær aftur og smala hópnum í beinni línu inn í rétt. Eftir það átti að reka kindurnar aftur út úr réttinni og taka frá aðra af þeim merktu, en það getur verið mjög krefjandi að skilja eina kind úr hóp,“ segir Maríus.
Deildarmót um allt land
Maríus fór með sigur af hólmi í landskeppni Smalahundafélags Íslands þann 10.–11. október á Húsatóftum á Skeiðum. Hann bendir á að blæbrigðamunur geti verið á keppnum og brautum, en í grunninn séu þær allar með úthlaup, rekstur og rétt. „Þetta er það sama og við erum að gera í smalamennsku, en við erum að senda hundinn til að sækja fé, reka upp á kerru og annað í þeim dúr. Keppnir eru bara fínisering á vinnunni okkar.“
Deildirnar innan SFÍ standa fyrir keppnum víðs vegar um landið. Í nóvember var mót á Tjörnesi þar sem keppendur ráku fjórar ómerktar kindur og var nóg að skipta hópnum í tvennt. „Í þessari keppni voru átján keppendur og margir sem hafa aldrei tekið þátt áður,“ segir Maríus. „Núna erum við með nýjan flokk sem heitir „Bændaflokkur“ sem er ekki eins tæknilega krefjandi þar sem rekið er í gegnum færri hlið. Þessi flokkur er hugsaður til þess að taka hrollinn úr fólki, en sumir eru smeykir við að stíga sín fyrstu skref á vellinum. Þá getur hundur verið mjög gagnlegur smalahundur þó svo að hann yrði aldrei stigahár í keppni.“
Þarf minnst þrjá hunda
„Í smalamennskum fer eftir atvikum hversu marga hunda ég nota í einu, yfirleitt einn til tvo,“ segir Maríus. „Svo reynum við að skipta hundunum út, þannig að við notum einn í dag, annan á morgun og þann þriðja daginn þar á eftir. Ég vil helst ekki keyra þá út eða gera þá halta, en ég nota hundana mína líka í verktöku fyrir aðra bændur.
Miðað við þá notkun sem hundarnir fá á þessu búi myndi ég ekki vilja vera með færri en þrjá fullþjálfaða hunda. Þá þyrftu tveir til þrír að vera í þjálfun á hverjum tíma, ásamt tveimur til þremur hvolpum í uppeldi. Eftir því sem hundarnir þroskast sérðu hvort þeir henti þér eða öðrum eða hvort þeir séu hreinlega ekki nothæfir smalahundar. Alla jafna erum við með eina til tvær tíkur og eitt til tvö got á ári. Oft kaupi ég hunda sem mér líst vel á að rækta undan, en venjulega er það þannig að ég sendi tíkurnar á lóðaríi til þeirra sem eiga góða hunda.
Eins og hálfs árs gamlan hund áttu alveg að geta notað í einföld verk. Hundarnir eru oft orðnir fullþjálfaðir í kringum þriggja ára aldur, en það er ekki gott að fara of snemma með þá í fulla notkun. Hundarnir eru mikið notaðir sem þýðir að þeir slitna hraðar en heimilishundar. Smalahundar endast í átta til tíu góð ár og þegar fer að hægjast á hundunum ferðu að finna þeim verkefni sem henta betur, en þó svo að þeir séu orðnir gamlir geturðu notað þá til að smala túnin. Ferskustu hundarnir fara í göngur á meðan þú hlífir gömlu hundunum til þess að geta átt þá lengur.“
Aðspurður segir Maríus taminn Border Collie-smalahund kosta allt frá einni milljón króna upp í tvær milljónir. „Það er búið að leggja mikla vinnu í að rækta þá, en oftar en ekki eru þeir undan innfluttum hundum sem eru rándýrir. Svo þarf að ala þá upp, temja og þjálfa með öllu sem því fylgir. Fulltaminn hundur er til þess að gera orðinn frekar dýr söluvara. Það er allur gangur á því hvað hundarnir eru gamlir þegar við seljum þá, en það fer eftir eftirspurn. Korteri fyrir göngur loga yfirleitt allar línur hjá okkur þegar fólk vill panta sér hund.“
Smalahundar ekki gæludýr
„Border Collie er síðasta hundategundin sem ég myndi vilja hafa á heimili,“ segir Maríus. „Þetta eru ekki gæludýr heldur ofvirkir hundar sem eru ræktaðir til þess að vinna. Ef þeir hafa ekki verkefni þá finna þeir sér eitthvað að gera, eins og að elta bíla, bíta póstinn, naga sófasettið eða atast í hrossunum,“ segir Maríus. Lára bendir á að það sé líklega engin tilviljun að Border Collie séu algengustu hundarnir í heimilisleit hjá Dýrahjálp.
„Allir smalahundarnir okkar eru Border Collie, fyrir utan eina tík af nýsjálenska kyninu Huntaway sem er ræktað til þess að reka og gelta.“ Aðspurður segist Maríus ekki hafa trú á því að hann geti þjálfað íslenskan fjárhund til þess að smala. „Ég gæti hins vegar farið með hann í taumgöngu og kennt honum vísur og góða siði,“ segir hann glettinn.
Á Presthólum er einn hundur sem var sérstaklega fenginn til þess að vera gæludýr. „Krakkarnir voru alltaf að suða um að fá sinn eigin hund þar sem þau réðu illa við smalahundana,“ segir Lára. „Ég féllst á það með semingi,“ segir Maríus, „en eina skilyrðið sem ég setti var að það væri ekki lítill geltandi innihundur. Ég fékk þetta í staðinn,“ segir hann og bendir kíminn á Sankti Bernharðshund á stærð við kálf.
Hundakofi á stærð við íbúðarhús
Bændurnir á Presthólum tóku í notkun hús árið 2024 sem er sérstaklega hugsað sem aðstaða fyrir tíu hunda. Aðspurður af hverju hjónin lögðust í þessar framkvæmdir svarar Maríus: „Það er gaman að hafa hlutina í lagi. Við erum með marga hunda og þeir geta ekki allir verið saman. Við tökum líka hunda fyrir aðra í tamningu og pössun og þá er eins gott að aðstaðan sé góð, en við viljum geta sofið vært án þess að hafa áhyggjur af því að eitthvað komi upp á.
Þetta eru í kringum 40 fermetrar inni og svo er þak yfir útibúrunum. Ég vil kalla þetta hundakofa, sem er auðvitað svolítið fyndið af því að þetta er eins og lítið íbúðarhús. Við báðum þann sem hannaði fyrir okkur húsið að fara einfaldlega eftir reglugerðum þar sem við vildum ekki lenda í því að þurfa að gera breytingar eftir á til að uppfylla staðla. Hvert búr er bæði með inni- og útisvæði. Þar að auki erum við með útigerði og það er hiti í steypunni þannig að stéttin bræðir af sér.
Við getum stjórnað því hvort hundarnir eru inni eða úti með hlerum sem við opnum og lokum án þess að þurfa að fara inn í stíurnar. Ég vildi hafa þetta þannig að ég gæti staðið á ganginum og opnað fyrir hverjum og einum hundi út í útibúr. Þetta skiptir líka máli ef þú ert með varasama hunda eða færð einhvern til að leysa þig af.
Húsið er hannað til þess að við getum verið fljót að þrífa. Hérna er hallandi gólf og í staðinn fyrir að hafa svelginn í miðju húsinu þannig að þú þurfir að fara inn í hvert búr til að smúla, þá erum við með niðurfall meðfram veggjunum. Við getum því sett alla hundana í ytri stíuna á meðan við smúlum allt hérna inni.
Matardallarnir eru á grind sem er hægt að snúa og er því enginn hundur að trufla þig á meðan þú græjar skálarnar. Það getur verið krefjandi að gefa tveimur hundum að éta, hvað þá tíu.
Bygging þessa húss hefur staðið lengi til og þetta var eitt af því fyrsta sem við réðumst í eftir að við keyptum jörðina. Við vorum áður í tíu ár á Hallgilsstöðum í Þistilfirði, en þar sem við leigðum þá jörð af sveitarfélaginu var lítil glóra í að fara í þessar framkvæmdir þar,“ segir Maríus.
Lára og Maríus tóku við Presthólum af foreldrum Láru árið 2023. Þau heita Sigurður Árnason og Alda Jónsdóttir og búa núna á Kópaskeri sem er skammt frá.
