Þar sem er hjartarúm, er húsrúm
Viðtal 19. nóvember 2026

Þar sem er hjartarúm, er húsrúm

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

– Skólastýran Marta María Arnarsdóttir býður nemendur velkomna

Hússtjórnarskólinn í Reykjavík situr við Sólvallagötuna í reisulegu húsi, en forgöngu að stofnun skólans, sem starfað hefur óslitið síðan 1942, átti Bandalag kvenna í Reykjavík.

Í anddyri hússins tekur skólastýran, Marta María Arnarsdóttir, á móti gestum opnum örmum en vandfundin er sú hlýja og það heimilislega viðmót sem upplifunin er þegar stigið er inn fyrir dyrnar. Húsnæðið er að sama skapi aðlaðandi að innanverðu, hátt til lofts og vítt til veggja og gefur þeim sem hann sækja vissu um að hér sé til jafns hjartarúm sem húsrúm.

Marta tók við stjórninni árið 2022, en áður hafði Margrét Sigfúsdóttir gegnt starfinu um árabil. Hún segir skólann hafa að sjálfsögðu þróast með tímanum þótt kjarninn sé sá sami – hann hvíli einfaldlega á einstaklega góðum, gömlum grunni sem hefur aðeins orðið betri með hverju árinu sem líður.

„Grunnurinn er ofboðslega góður, en þegar ég tók við skólastjórninni fór ég að velta fyrir mér hvað ég hefði viljað læra hér sjálf á sínum tíma sem ekki var kennt,“ segir Marta, sem sjálf var nemandi skólans vorið 2015.

„Námið hjá okkur er að öllu jöfnu góður undirbúningur út í lífið, en við förum vel yfir ýmsa þætti sem koma sér vel til framtíðar litið. Námsgreinar skólans eru allt verkleg kennsla, en hér kennum við matreiðslu, þvott og ræstingu, fatsasaum, útsaum, prjón, hekl, vefnað og hússtjórn.

Marta segir hússtjórnina nokkuð víðtæka námsgrein, en innan hennar felist ein fárra breytinga sem komið var á eftir að hún tók við stjórn skólans.

„Þetta er, má segja, altmuglig áfangi sem er ekki alltaf eins, heldur mismunandi eftir hópum, því nemendur mega koma með hugmyndir og hafa smá stjórn á því sem þeir vilja læra. Í áfanganum kemur til dæmis smíðakennari til okkar og nemendur læra að tálga, sparsla og pússa, skipta um klær og þess háttar. Það er til dæmis eitthvað sem margir reka sig á að kunna ekki, þegar þeir fara fyrst að búa ... skipta um vatnslás, hvað er það?“ segir Marta brosandi. „Og ég þoli ekki að vera ósjálfbjarga, þurfa að hringja í einhvern utanaðkomandi til að koma og græja þessa einföldu hluti sem maður ætti að geta gert sjálfur. 

Slík kunnátta dettur þó ekkert af himnum ofan, þetta þarf að læra – eða hlotnast kjarkinn til að ganga í að gera þetta – og mig langaði því að bæta þessum atriðum inn á námskrána.“

Sjálfstæði í græingum nauðsynlegt

Marta segir sjálfstæði í græingum passa vel inn í námskrá skólans, enda mikilvægt að geta bjargað sér í sem víðasta skilningi þess orðs, áður en fagfólk er kallað til.

Til viðbótar við þessa undirstöðu iðngreina hafi kennsla varðandi hár og förðun verið innan hússtjórnaráfangans, boðið hafi verið upp á fjármálafræðslu, sjálfsvarnarnámskeið, macrame hnútabindingu og farið yfir brunavarnir svo eitthvað sé nefnt, en einnig eru gestakennarar oft fengnir eða farið er í heimsóknir á áhugaverða staði.

„Það eru auðvitað mismunandi hugmyndir sem koma upp, en markmiðið yfirhöfuð er að gera gott betra. Eitt haustið datt okkur í hug að fara á kúabú og síðan þá höfum við farið nokkrum sinnum, enda mikill áhugi fyrir því að fara í slík ferðalög. Hússtjórnaráfanginn, eða hússtjórn, felur því í sér mjög víðtækt hugtak hjá okkur. Sem er algjör snilld,“ segir Marta.

„Námið okkar er til einnar annar, annaðhvort þá haust- eða vorönn. Hópurinn sem er hjá okkur núna byrjaði í ágúst og útskrifast um miðjan desember. Svo koma bara nýir nemendur strax 7. janúar og útskrift 14. maí, ef ég man rétt,“ segir Marta sem laumar því að að enn séu nokkur pláss laus á vorönnina ef einhverjir hafi áhuga á að skrá sig. 

Nám ætlað öllum

„Það er svo skemmtilegt hvað við náum að kynnast öll vel þótt námið standi ekki yfir lengur en í eina önn, en af því að við erum fá og margir kjósa að vera hér á heimavistinni þá verður þetta svo náið samfélag.

Nemendur skólans eru sjaldnast fleiri en 24 og þar af komast 15 á heimavist. Haustannirnar eru vinsælli en vorannir, umsóknir koma oft að vorlagi um leið og öðru námi lýkur hjá fólki, en þetta er oftar skyndiákvörðun hjá þeim sem sækja um hjá okkur fyrir námið sem hefst eftir áramótin. Minna planað kannski,“ segir Marta hugsi, þá til dæmis vegna þess að fólk hættir í öðru námi og hefur þá óvænt lausan tíma eftir áramót.“

Eins og staðan er núna, eru í kringum fimmtán nemendur sem hefja nám í janúar. Enn er hægt að sækja um á heimasíðu skólans og umsóknunum er svarað jafnóðum og þær berast og allir velkomnir frá átjánda aldursári. Marta segir algengasta aldurshóp umsækjenda vera frá 18-25 ára, en þó hafa nemendur verið upp undir þrítugt að aldri og jafnvel fertugt.

„Yngri nemendur ganga þó fyrir og ekki er nauðsynlegt að vera með stúdentspróf enda störfum við sem lýðskóli og nemendur þurfa ekki neina undanfara til þess að komast inn.“

Marta bendir á að námið sé ekki talið til eininga, enda sækist nemendur frekar eftir verunni í Hússtjórnarskólanum til þess að njóta sín og sinna hugðarefna. Nokkuð sé um að nemendur taki ársleyfi frá almennri skólagöngu eftir útskrift úr framhaldsskóla eða öðru og þetta sé þá tilvalið, enda hagnýtur undirbúningur fyrir lífið.

„Margir koma hingað vegna áhuga á hannyrðum eða matreiðslu og langar kannski að komast að því hvort sá áhugi geti verið skref í áttina á einhverju frekara námi í þá áttina.

Hingað koma einnig nemendur sem hafa kannski ekki komist inn í slíkt nám annars staðar, en styrkja grunninn sinn hér og komast þá inn annars staðar eftir að hafa verið hjá okkur. Ég hef að minnsta kosti aldrei heyrt af neinum sem ekki hefur komist einhvers staðar inn eftir eina önn í Húsó,“ segir Marta hlæjandi, enda víðtækur grunnur sem er gott að byggja ofan á.

Hún segir veruna í skólanum geta einnig hjálpað þegar markmiðið sé að komast í ákveðna virkni, eða rútínu og henti til dæmis fólki með skólaforðun, því hér sé upplifun af skóla og námi almennt mjög jákvæð.

Mjúk lending á eigin fætur

„Nemendur utan af landsbyggðinni nýta gjarnan veruna hér sem svona fyrsta skref að heiman í höfuðborgina, segir Marta, enda erum við með heimavist á efstu hæð skólans.

Þeir sem eru búsettir á, eða nær, höfuðborgarsvæðinu er reyndar einnig velkomið að flytjast hingað á vistina, enda skapast oft skemmtileg og góð stemning í húsinu. Hér er húsvörður sem býr í skólanum og alltaf aðgengilegur, passar upp á að allt sé lokað og læst, og til staðar fyrir það sem á bjátar. Fyrir utan það nú að hér er nægur matur í ísskápnum, þannig enginn lendir einn í Reykjavík að borða núðlur ... þetta er mjúk lending í að standa á eigin fótum.“

Enginn settur útivistartími er við lýði í Hússtjórnarskólanum og þó nemendur fari út að skemmta sér eru þeir hvattir til að koma heim að skralli loknu.

„Áfengis- og vímuefnanotkun er að bönnuð hérna en við hvetjum nemendur að sjálfsögðu til að koma heim hvenær sem er sólarhringsins og hvernig sem ástandið er. Þetta er kannski annar hugsanaháttur en búist er við, en við viljum að nemendur séu öruggir með að þeir megi koma heim. Jafnvel þeir sem búa ekki á vistinni. Hér er alltaf læst en að sama skapi má valsa hér inn og út á öllum tímum sólarhringsins ef þannig stendur á og oft ótrúlega mikið líf í húsi þó formlegri stundaskrá sé lokið, bæði á kvöldin og um helgar.

Mér finnst sjálfri oft langbest og skemmtilegast að vinna hérna fram á kvöld því þá er þetta svo hlýlegt og heimilislegt,“ segir Marta brosandi. 

Öryggi og vellíðan ætti að vera allra

„Markmiðið er að skapa athvarf. Helsta ósk mín þegar kemur að nemendunum er að þeim líði vel hérna og eignist vonandi vini fyrir lífstíð, sem er ótrúlega mikilvægt. Mitt, númer eitt tvö og þrjú, er að skapa hlýju og heimili þar sem öllum líður vel. Og svo að sjálfsögðu vonar maður að þau nái að læra einhver atriði sem verið er að kenna þeim.

Tengslanetið er einnig að sama skapi mikilvægt en hópurinn hérna verður oft ofboðslega þéttur enda fólk með sameiginleg áhugamál. Ég upplifði það sjálf sem nemandi hér, að það opnaðist fyrir mér heill heimur, því að ég hafði sem barn og unglingur verið bakandi og prjónandi heima hjá mér eða hjá ömmu á meðan jafnaldrar mínir voru með hugann við eitthvað allt annað.

Þetta þótti ekkert gífurlega smart svona þegar maður var lítill, en þegar ég kom hérna átján ára gömul féllust mér hendur! Hér voru öll mín áhugamál samankomin í stundatöflunni. Meira að segja að læra heima, þá prjónandi yfir Netflix.. ég þurfti næstum að klípa sjálfa mig – ég hlyti að vera að svindla og ætti örugglega að vera að gera eitthvað annað! Nei, nei, ég átti að vera að gera nákvæmlega þetta.

Vera mín í Húsó á sínum tíma var mér ómetanleg, dásamleg og dýrmæt og við höldum enn hópinn við sem vorum saman þessa önn. Það var einmitt tíu ára „reunion“ hjá okkur í fyrra þannig við leigðum skólann í sólarhring og vorum með dagskrá og gistum á heimavistinni! Þetta eitt og sér, að eignast vini með sama áhugamál, er svo ofboðslega dýrmætt.“

Hlökkum til dagsins í dag

Áhugasamir lesendur ættu að láta það eftir sér að kíkja á vefsíðu skólans, www.husstjornarskolinn.is, en strax á forsíðunni er hægt að sækja um skólavist.

„Hér hefjast dagarnir á morgunverði klukkan átta, ekkert eðlilega næs byrjun á deginum ... tví- til þríréttað svo í hádeginu, nýbakað með kaffinu ... við rekum hérna risastórt dásamlegt heimili,“ lýkur Marta máli sínu og bætir við að aðalauður skólans séu svo kennararnir enda sé hún afar virkilega heppin með allt starfsfólk. Að sama skapi sé góður andi dýrmætur. Lífið getur verið alls konar og maður þarf að geta hlakkað til þess sem dagurinn ber í skauti sér, bæði í vinnu og í skóla.

Nemendur Hússtjórnarskólans teknir tali

Efri röð frá vinstri: Bríet Saga Kjartansdóttir, Ásrún Eir Þórarinsdóttir og Ísabella Lára Helgadóttir. Neðri röð f.v.: Þórdís Ómarsdóttir og Ína Margrét Sigurðardóttir.

Nokkrir nemendur Hússtjórnarskólans voru fengnir til að svara alveg óskaplega fínum spurningum sem koma fram hér á eftir og gerðu það auðvitað með sóma.

1.Hvers vegna ákvaðstu að sækja um?

2.Hvað finnst þér skemmtilegast eða kom þér skemmtilega á óvart?

3.Hvernig er að koma utan af landi og lenda á heimavistinni?

4.Eitthvað sem þú vilt segja við fólk sem er að spá í að sækja um?

5.Hvert stefnir þú eftir þetta?

Ína Margrét Sigurðardóttir 2003

  1.  Mig hefur alltaf langað til að fara í skólann því ég hef heyrt vel af honum, amma mín var í Húsmæðraskólanum eins og hann hét þá.. og svo var ég heldur ekkert viss hvað mig langaði að vera að gera í lífinu þannig ég ákvað að slá til!
  2. Mér finnst bara allt mjög skemmtilegt, við erum tildæmis að læra ótrúlega mikið í matreiðslu, það kom mér á óvart hvað það er skemmtilegt og fjölbreytt, við lærum allt frá grunni líka sem er ótrúlega lærdómsríkt. Mjög áhugavert að læra að vefa líka.
  3. Er á heimavistinni tímabundið og það er alveg mjög næs, mjög góður hópur á vistinni og agalega gott að geta vaknað korter fyrir skóla.
  4. Bara komdu ef þú hefur áhuga á þessu öllu og líka mun þetta nýtast þér ótrúlega mikið í framtíðinni. Mér finnst að allir ættu að fara í Hússtjórnarskólann og læra grunn í ræstingu, matreiðslu og öllu þessu. Þetta er ótrúlega skemmtilegt.
  5. Mig langar alveg að gera meira af einhverju því sem ég er búin að læra hér en svo veit maður aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér...

Þórdís Ómarsdóttir 2003

  1. Mig vantaði eitthvað að gera, var alltaf á leiðinni í háskóla, tók mér pásu en svo liðu þrjú ár þannig já. Samstarfskona mín fór í skólann á sínum tíma og var alltaf að pressa á mig bara, farðu þetta verður geggjað, þú munt ekki sjá eftir því! Og hér er ég og sé ekki eftir því!
  2. Vefnaðurinn 100% Ótrúlega skemmtilegt og við fáum að sjá hvernig maður setur slöngur í vefstólana og hvernig allt virkar. Hvaða stólar eru notaðir fyrir hvaða hluti og allt það. Það er líka mjög skemmtilegt að prufa sig áfram með liti, maður veit aldrei hvernig litakombóið mun koma út.
  3. Ég er á heimavistinni, það er ótrúlega skemmtilegt og þroskandi, maður lærir að búa með fólki. Við erum reyndar mjög heppnar að vera bara sex og núna sjö með Ínu þannig við erum ekkert of margar. Hver í sínu herbergi sem er ótrúlega næs, en vanalega eru tveir í herbergi. Við erum ótrúlega sterkur hópur og erum mjög oft saman að horfa á eitthvað og vinna handavinnu. Þannig ég mæli með fyrir alla þá sem eru að koma utan af landi að skella sér á heimavistina. Þó það sé aðeins dýrara þá lærir maður helling á þessu.
  4. Gerðu það! Komdu! Það skiptir ekki máli á hvaða aldri þú ert. Ég var ógeðslega hrædd um að ég væri aldursforseti hérna en er það svo ekki.
  5. Mig langar ótrúlega mikið að fara út í skóla en hef ekki skoðun á því hvað ég vil gera í framtíðinni.

Bríet Saga Kjartansdóttir 2007

  1. Langamma mín og amma mín voru báðar hérna og svo bara einhvern vegin hef ég mikinn handavinnuáhuga þó enginn annar í fjölskyldunni hafi hann. Ég þarf bara að hafa eitthvað í höndunum, vera að gera eitthvað. Það er svo kósí og þægilegt.
  2. Matreiðslan kom mér mest á óvart. Mér fannst alls ekki gaman að dunda mér í eldhúsinu en núna eiginlega get ég ekki beðið eftir að komast í að gera eitthvað svoleiðis. Svo fannst mér gaman að læra að hekla og bara allt sem ég kunni ekki.
  3. Ég er ekki utan af landi, en er samt á heimavistinni. Það er æði. Ég mæli mjög mikið með því þó þú búir í bænum því þó ég fari oft heim þá er bara upplifunin af að vera á vistinni svo góð. Og æfing í að búa að heiman.
  4. Ef þú hefur áhuga á einhverju sem er í skólanum bara go for it!
  5. Ég ætla bara að vinna í vor, get meira að segja verið að gera smá handavinnu í leiðinni. Svo háskóla að læra eitthvað allt annað.

Ásrún Eir Þórarinsdóttir 2006

  1. Ég var búin að vera að skoða háskólanám en fann ekkert sem mig langaði sérstaklega mikið í. Þannig þetta var svona pínu spontaneous, ég sá heimildamynd fyrir löngu sem kveikti hugmyndina og líka var mamma alltaf að tala um að hana hefði svo langað að fara en gerði það ekki, þannig ég gerði það bara! Ég skráði mig líka frekar seint.
  2. Ég þarf að segja vefnaðurinn.. ég væri geðveikt til í að eiga vefstól í framtíðinni. Mér finnst það hafa komið mér mjög mikið á óvart hvað það er gaman.
  3. Ég er eina hérna núna sem er ekki á heimavistinni, ég bý bara í Kópavogi.
  4. Sæktu bara um, maður lærir svo margt nytsamlegt hvort sem það er í matreiðslu, handavinnu, ræstingu, ég er allavega búin að læra helling.
  5. Ég veit eiginlega ekki alveg hvert ég stefni en líklegast í háskólann. Þessi grunnur mun samt hjálpa mér út í lífið.

Ísabella Lára Helgadóttir 2007

  1. Sko, mamma mín fór í Húsó á Hallormsstað og frá því að hún sagði mér frá því hefur mig alltaf langað að fara. Ég ætlaði meira að segja að hætta í framhaldsskóla og drífa mig en mamma bannaði mér að fara fyrr en ég væri komin með stúdentspróf. Ég sótti svo strax um eftir prófin. Ég hef ógeðslega mikinn áhuga á handavinnu og mig langaði að kunna meira í matreiðslu.
  2. Mér finnst skemmtlegast að sauma, svona útsaum. Það sem kom mér á óvart var vefnaðurinn.. mér finnst mjög skemmtilegt að læra eitthvað nýtt. Ræsting líka, ég er ekki dugleg að þrífa heima og ég lærði alveg mjög mikið í ræstingu sem er geggjað.
  3. Ég hef verið á heimavist áður, reyndar á Selfossi þannig að ég þekki það alveg vel. Hérna er samt meira svona kósí stemming og heimilislegt. Vistin á Selfossi var ekki þannig. Manni líður ekki beint eins og maður sér í skóla hérna, og eiginlega ekki eins og maður sé í Reykjavík.
  4. Go for it!
  5. Ég þarf að græða smá pening og svo langar mig að læra arkitektinn annað hvort í LHÍ eða í Danmörku því ég hef grunni í dönsku. Það eru örugglega meiri möguleikar þar líka.

Skylt efni: husstjornarskolinn

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt