Stephan Briem á fyrsta borði Breiðabliks-B fékk áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Stephan Briem á fyrsta borði Breiðabliks-B fékk áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Líf og starf 18. nóvember 2026

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga

Höfundur: Gauti Páll Jónsson
Gauti Páll Jónsson.

Fjögur íslensk skáklið tóku þátt á Evrópumóti taflfélaga (European Club Cup), sívinsælu móti þar sem áhugamenn og heimsklassa skákmenn sitja að tafli á sama stað. Mótið fór fram í strandbænum Budva í Svartfjallalandi, í uppblásnu tjaldi. Greinarhöfundur kannast ekki við að hafa áður teflt í tjaldi. Íslensku liðin voru Skákfélag Akureyrar, Víkingaklúbburinn, og tvö lið frá Skákdeild Breiðabliks, bæði skipuð skákmönnum undir 25 ára aldri. Greinarhöfundur tefldi sem lánsmaður með Skákfélagi Akureyrar.

Tveir skákmenn skara fram úr þegar kemur að einstaklingsárangri. Sigurbjörn Hermannsson, á 6. borði Víkingaklúbbsins, nældi sér í sex vinninga úr skákunum sjö. Sigurbjörn hefur ekki náð 2000 skákstigum, en með árangrinum er hann orðinn kandídatmeistari nái hann 2000 stigum, og hvorki meira né minna en Fide-meistari, nái hann 2100 stigum. Það gilda ákveðnar sérreglur um þetta mót og titla, sem eru eftirsóknarverðir í skákheiminum. Árangur Stephans Briem á 1. borði B liðs Breiðabliks var frábær. Þrátt fyrir töp í fyrstu tveimur skákunum þá náði Stephan áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Það er eftirtektarverður árangur, sérstaklega í ljósi þess að Stephan hefur dregið úr taflmennsku undanfarin ár, en það gæti vonandi breyst eftir þennan góða árangur. Enskt lið sem Björn Þorfinnsson tefldi fyrir náði einnig ótrúlegum árangri í mótinu og var í toppbaráttunni í lokaumferðinni!

Netskákin hefur verið í fullum gangi undanfarna sunnudaga á vef Rafíþróttasambandsins. Átta manna úrslit fóru þannig að Jóhann Hjartarson vann Sigurbjörn J. Björnsson, Aleksandr Domalchuk-Jonasson vann Helga Áss Grétarsson, Vignir Vatnar Stefánsson vann Jón Kristin Þorgeirsson og Hilmir Freyr Heimisson vann Braga Þorfinnsson. 

Ferðir á Evrópumót halda áfram en þriðjudaginn 3. nóvember fóru þrettán íslenskir keppendur til grísku eyjarinnar Krítar. Teflt er í mörgum aldursflokkum og sagt verður frá árangri krakkanna í næsta blaði. Krakkarnir eru mörg hver orðin mjög vön taflmennsku á alþjóðlegum mótum. Þjálfarar eru þeir Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson, sem sjá einnig oft um að lýsa netskákinni. Einhvers konar Bogi og Ólafur íslenskrar skákhreyfingar.

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum mega þeir hafa samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Vísnahornið
Líf og starf 18. nóvember 2026

Vísnahornið

Steingrím Thorsteinsson þarf ekki að kynna. Hann yrkir svona fallega um haustið ...

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga
Líf og starf 18. nóvember 2026

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga

Fjögur íslensk skáklið tóku þátt á Evrópumóti taflfélaga (European Club Cup), sí...

Gosi banar geimi
Líf og starf 18. nóvember 2026

Gosi banar geimi

Það var dálítið vandræðalegur spilari sem þurfti að upplýsa fyrir sveitarfélögum...

Hafmeyjan og sólskríkjan
Líf og starf 17. nóvember 2026

Hafmeyjan og sólskríkjan

Laugardaginn 29. mars 1947 hófst gos í Heklu eftir rétt rúmlega aldarlangt eldsu...

Er hár yðar óstýrilátt?
Líf og starf 13. nóvember 2026

Er hár yðar óstýrilátt?

Margir þekkja þá raun að eiga við hárið á sér, sumir fremur öðrum auðvitað og ei...

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar

Bandalag íslenskra listamanna (BÍL) hefur ákveðið að hrinda af stað átaki þar se...

Aldarafmæli Láru Brynhildar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Aldarafmæli Láru Brynhildar

Lára Brynhildur Eiríksdóttir, sem býr á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akurey...

Lausn á vísnagátunni úr 20 tölublaði
Líf og starf 10. nóvember 2026

Lausn á vísnagátunni úr 20 tölublaði

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtist í 20. tölublaði Bændablaðsins.