Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 20. nóvember 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn rekur sig á að annars hversdagslegt verkefni krefst athygli hans, en svarið við þeirri þraut er að treysta á það sem býr innra með honum í stað þess að fylgja gamalli forskrift. Það reynir á þolrifin í samskiptum við fólk sem vill halda í fastan vana, en nýstárleg nálgun vatnsberans mun sanna gildi sitt þegar upp er staðið. Happatölur 14, 7, 3.

Fiskarnir finna hvernig hægist á öllu í kringum þá og einhvern veginn myndast loksins svigrúm til að vinna úr flóknum málum hjartans. Þar ætti áherslan á skýra tjáningu að vera án undirferlis eða hálfkveðinna vísna. Fiskarnir uppgötva (loksins) að það að segja hlutina nákvæmlega eins og þeir eru, dregur úr óvissu og eykur gagnkvæman skilning á milli þeirra og annarra. Mjög gott að æfa sig í því. Happatölur 15, 23, 1.

Athygli hrútsins beinist nú að praktískum hliðum tilverunnar og þá til lengri tíma litið. Í fjármálum er skynsamlegt að rýna í regluleg útgjöld og sleppa öllum óþarfa kostnaði sem getur læðst inn á banka- reikninginn. Spara frekar en að hætta sér í óvissar fjárfestingar eða skyndiákvarðanir sem byggjast á tilfinningum dagsins. Happatölur 20, 22, 23.

Nautið stendur frammi fyrir ákvörðun þar sem gamlar venjur virka ekki lengur sem skyldi. Í ástarlífinu þarf það nú að sýna sveigjanleika og hlusta af athygli á sjónarmið sem stangast á við þess eigin. Þrjóska mun aðeins skapa óþarfa spennu; lausnin felst í því að mætast á miðri leið með gagnkvæma virðingu að leiðarljósi – og fara út fyrir þægindarammann. Happatölur 10, 11, 40.

Hugarheimur tvíburanna er með öflugra móti um þessar mundir og að þeim streyma stöðugt nýjar hugmyndir sem vert er að skrá niður. Gæta skal þess þó að hugurinn fari ekki um of á flug, því hættan er sú að lítið verði úr framkvæmd ef of miklu er úr að velja. Best er að velja færri verkefni sem skipta raunverulegu máli og einbeittu þér alfarið að þeim. Happatölur 1, 13, 32.

Krabbinn upplifir innsæi sitt afar sterkt á næstunni, sérstaklega þegar kemur að því að lesa í andrúmsloftið í kring. Þá bæði þegar kemur að ástarlífinu þar sem jafnvægi þarf að vera á því að setja skýr mörk en vera samt til staðar – en einnig í fjármálum þar sem forðast ætti að eyða um of en einbeita sér frekar að því að safna varasjóði fyrir ófyrirséð tækifæri. Happatölur 90, 91, 98.

Mikilvægar breytingar eiga sér stað innra með ljóninu sem finnur minni þörf fyrir að sanna sig gagnvart umhverfinu. Það ætti nú að einbeita sér að því að dýpka þekkingu sína eða klára persónuleg mál sem setið hafa á hakanum. Krafturinn sem fylgir því að vinna í hljóði mun skila ljóninu meiri ánægju en nokkur ytri hrós. Happatölur 33, 34,15.

Meyjan má vera sátt við sjálfa sig þessa dagana, en henni tekst að koma í veg fyrir að mistök verði gerð í samstarfi við aðra. Þegar kemur að tilfinningalífinu þarf meyjan að gæta þess að verða ekki of kröfuhörð á smáatriði hversdagsins enda dafna sambönd best þegar fólk fær að vera það sjálft, með alla sína galla og sérstæðu eiginleika. Munum það nú öll. Happatölur 23, 13, 3.

Vogin þarf að taka erfiðar ákvarðanir sem munu breyta gangi mála næstu vikurnar. Í fjármálum opnast tækifæri til að endurskoða samninga eða ræða um kjör af meiri festu en áður. Vogin þarf nú að æfa sig í að láta ekki undan þrýstingi, en frekar standa fast á því sem henni ber – og hún má alveg vera örugg á því að „henni ber“ ýmislegt. Happatölur 2, 18, 17.

Eðlislæg þrjóska og einbeiting sporðdrekans hjálpa honum að yfirstíga hindrun sem hefur verið í vegi hans lengi. Í kjölfarið kemur í ljós hvar raunverulegt traust liggur þegar á reynir, og ætti sporðdrekinn að sýna fólkinu sínu stuðning í verki, án þess beinlínis að grípa inn í. Þarna er um smá jafnvægislist að ræða, en vel þess virði þegar á hólminn er komið. Happatölur 3, 2, 41.

Þörfin fyrir nýja reynslu er bogmanninum ofarlega í huga, en skyldurnar heima fyrir kalla á athygli hans og verða að vera í forgangi. Hann ætti að ljúka við öll þau verkefni sem hafa frestast, því þau munu annars vinda upp á sig allverulega og valda ítrekaðri streitu. Nú er um að gera að klára allt það sem þarf að klára – leika sér svo. Happatölur 22, 55, 6.

Steingeitin finnur hvernig eitthvað reynir á þolinmæði hennar, en seiglan mun skila henni á áfangastað fyrr en varir. Í ástarlífinu telur framkoma hennar og áreiðanleiki mun meira en innihaldslaus orð. Þó má hún gleðjast yfir því að þegar kemur að fjármálum sýna útreikningarnir trausta stöðu, sem gefur svigrúm til að skipuleggja næstu skref á yfirvegaðan hátt. Happatölur 62, 76, 66.

Skylt efni: stjörnuspá

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 20. nóvember 2026

Stjörnuspá vikunnar

Þörfin fyrir nýja reynslu er bogmanninum ofarlega í huga, en skyldurnar heima fy...

Vísnahornið
Líf og starf 18. nóvember 2026

Vísnahornið

Steingrím Thorsteinsson þarf ekki að kynna. Hann yrkir svona fallega um haustið ...

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga
Líf og starf 18. nóvember 2026

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga

Fjögur íslensk skáklið tóku þátt á Evrópumóti taflfélaga (European Club Cup), sí...

Gosi banar geimi
Líf og starf 18. nóvember 2026

Gosi banar geimi

Það var dálítið vandræðalegur spilari sem þurfti að upplýsa fyrir sveitarfélögum...

Hafmeyjan og sólskríkjan
Líf og starf 17. nóvember 2026

Hafmeyjan og sólskríkjan

Laugardaginn 29. mars 1947 hófst gos í Heklu eftir rétt rúmlega aldarlangt eldsu...

Er hár yðar óstýrilátt?
Líf og starf 13. nóvember 2026

Er hár yðar óstýrilátt?

Margir þekkja þá raun að eiga við hárið á sér, sumir fremur öðrum auðvitað og ei...

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar

Bandalag íslenskra listamanna (BÍL) hefur ákveðið að hrinda af stað átaki þar se...

Aldarafmæli Láru Brynhildar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Aldarafmæli Láru Brynhildar

Lára Brynhildur Eiríksdóttir, sem býr á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akurey...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f