Nýtt fræhús á Vöglum
Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Húsið er er sérstaklega hannað til að þola snjóþyngsli sem eru oft mikil í Vaglaskógi.
Á Vöglum í Fnjóskadal er fræmiðstöð Skógræktar ríkisins. Þar eru framleidd og seld trjáfræ af íslenskum skógartrjám. Fræhúsið er reist við hlið eldra gróðurhúss en er stærra eða 1.636 fermetrar.
Auka framleiðslu Hryms
Nýja húsið gerir Land og skógi kleift að auka verulega framleiðslu á fræi lerkiblendingsins Hryms auk þess sem það eykur möguleikana á öðru kynbótastarfi. Reiknað er með að framleiðslugetan tvöfaldist og verði um tvær milljónar spírandi fræja. Takist vel til bæði í ræktun og kynbótum er möguleiki á því að uppskera allt að þrjár milljónir fræja í framtíðinni.
Hrymur er lerkitegund sem hentar vel til ræktunar í rýru landi, er bæði harðgerð og hraðvaxta. Pétur Halldórsson kynningarstjóri Lands og skógar segir að tamarkað framboð hafi leitt til þess að Hrymur hefur verið skammtaður til skógarbænda og að minnst hafi framboðið verið á almennum markaði en að þetta muni nú vonandi breytast.
Hann segir að mikilvægt sé að velja réttu skilyrðin fyrir hverja trjátegund fyrir sig. Á rýru landi er vinsælt að velja lerki. „Þar sem Hrymur vex tvöfalt hraðar að jafnaði en rússalerki og þolir umhleypinga betur er þessi blendingur mjög eftirsóttur til gróðursetningar á til dæmis gömlum beitarsvæðum þar sem næringarástand er bágborið“. Að sögn Péturs er ekki útlit fyrir að sjálfsáning Hryms verði vandamál.
Þróa fræ til framtíðar
Gert er ráð fyrir því að aðstaðan nýtist einnig til kynbótastarfs á öðrum trjátegundum. Pétur segir kynbætur mikilvægar til að auka gæði trjáplantna og til að þróa ný kvæmi, klóna og jafnvel nýjar tegundir sem gætu orðið nytjategundir í skógrækt. „Þó er ekki síður mikilvægt á tímum loftslagsbreytinga að huga að því að sá efniviður sem notaður er í skógrækt á Íslandi henti ekki eingöngu núverandi loftslagi heldur hafi næga seiglu til að þola það loftslag sem búast má við að verði á Íslandi í framtíðinni. Hrymur ætti að þola hlýnandi loftslag betur en rússalerki á Íslandi, einkum við sjávarsíðuna vestan- og sunnanlands en líka á ýmsum láglendissvæðum norðan- og austanlands. Nú þegar hefur komið í ljós að ákveðin kvæmi af rússalerki sem ættuð eru frá svæðum fjarri sjó eru farin að láta á sjá vegna hlýnandi veðurs á Norður- og Austurlandi. Íslenskt birki gæti líka átt á brattann að sækja með hlýnandi veðri og þá er mikilvægt að við höfum til taks birkikvæmi sem henta breyttum aðstæðum og þekkinguna á því hvaða birki gæti betur en annað tekist á við breytingarnar“.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins um formlega opnun fræhússins segir ráðherra að aukin sógrækt sé mikilvægur hluti af því að draga úr nettólosun vegna landnotkunar og því skipti máli að skapa forsendur fyrir meiri skógrækt. „Þar skiptir starfsemin á Vöglum miklu máli. Með nýja fræhúsinu stígum við mikilvægt skref til að auka innlenda framleiðslu á lerkifræi, draga úr þörfinni fyrir innflutning og tryggja fjölbreyttara úrval trjáplantna til íslenskrar skógræktar. Til hamingju, Land og skógur.“
