Matarmót Austurlands á laugardaginn
Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 14. nóvember milli 15-17. Myrra Mjöll Daðadóttir, forstöðumaður Hallormsstaðaskóla, vinnur nú að undirbúningi viðburðarins.
Í ár verða tuttugu og fimm sýningaraðilar á Matarmótinu. Myrra segir að mikil gróska sé í matvælaframleiðslu á Austurlandi. Hún nefnir sérstaklega einn stærsta lífræna framleiðanda landsins, Móður jörð. „Við erum líka með framsækna framleiðendur sem feta nýjar slóðir í matvælaframleiðslu, eins og Austur bý, sem er að tæknifrjóvga drottningar svo ekki þurfi að flytja þær inn. Svo erum við með Sauðagull sem er ein fárra sem eru að vinna afurðir úr íslenskri sauðamjólk.“
Síðustu ár hefur aðsókn á viðburðinn verið góð og honum vel tekið. Á síðasta ári sóttu um þúsund gestir viðburðinn. „Þessum viðburði hefur verið mjög vel tekið bæði af framleiðendum og neytendum, enda getum við flest verið sammála um að gott sé að borða.“
Í ár verður fjölbreytt úrval matvælaframleiðenda að kynna vörur sínar og selja þær. „Til dæmis verður Geitagott með ost, Sauðagull með ís, Berufjarðarbúið með nautakjöt, KHB bugghús með bjór, Brauðdagar deighús með brauð og gotterí og svona mætti lengi telja,“ segir Myrra.
Þróa færni í sjálfbærni og nýsköpun
„Í Hallormsstaðaskóla er löng hefð fyrir því að nýta staðbundið hráefni vel, vinna með matarhefðir og skoða möguleika á matarnýsköpun,“ segir Myrra. „Ein af aðaláherslum námsins er að þróa færni í verklegri vinnu, sjálfbærni og nýsköpun. Meðal annars með því að kanna nýja möguleika hráefna.“
Eldhúsið í Hallormsstaðaskóla, sem er fullbúið og vottað, sé svokallað tilraunaeldhús þar sem smáframleiðendum gefst færi á að nýta sér aðstöðuna við vöruþróun. „ Til dæmis vinnur Sæunn hjá Austur bý flestar af sínum vörum hjá okkur. Einnig er eldhúsið afa dýrmætur vettvangur fyrir nemendur til þess að gera tilraunir, kanna hráefni og vinna frá grunni,“ segir Myrra.
Myrra segir að Matarmótið á Austurlandi sé dýrmætur vettvangur til að stækka tengslanet skólans, hitta fólk og vekja athygli á því sem eigi sér stað í Háskólanum á Hallormsstað.
