Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Hvernig má tífalda framleiðsluna á Íslandi?

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleiðslu – blásið til sóknar“ í Kaldalóni í Hörpu fimmtudaginn 19. nóvember, frá klukkan 10–15.30.

Elínborg Erla Ásgeirsdóttir.

Daninn Paul Holmbeck verður sérstakur gestur málþingsins, en hann er alþjóðlegur ráðgjafi í stefnumótun og markaðsuppbyggingu fyrir lífrænan landbúnað, var um árabil framkvæmdastjóri Organic Denmark, Økologisk Landsforening og átti mikilvægan þátt í uppbyggingu og velgengni lífræna geirans í Danmörku.

Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, formaður VOR – félags um lífræna ræktun og framleiðslu, segir að þau séu sérstaklega ánægð með komu Paul Holmbeck til landsins. „Hann situr í stjórn IFOAM – Organics International, alþjóðlegra regnhlífarsamtaka lífrænu hreyfingarinnar. Hann hefur því einnig víðtæka yfirsýn yfir þróun lífræns landbúnaðar á alþjóðavísu.“

Danir með einn öflugasta markað heims

Að sögn Elínborgar hefur Holmbeck bæði reynslu í stefnumótun og framkvæmd og hefur meðal annars komið að mótun aðgerðaáætlana um lífræna framleiðslu, unnið að uppbyggingu samstarfs við verslanir og því að auka notkun lífrænna matvæla í opinberum eldhúsum. Í dag starfi hann sem ráðgjafi stjórnvalda, fyrirtækja og samtaka víða um heim um hvernig megi efla lífræna framleiðslu.

„Það sem gerir heimsókn hans sérstaklega áhugaverða er þessi víðtæka reynsla hans af því að fá ólíka aðila til að vinna að sameiginlegum markmiðum. Danir hafa byggt upp einn öflugasta markað heims fyrir lífrænar vörur og við viljum læra af þeirra reynslu og reyna að koma auga á hvaða verkfæri er hægt að nýta við íslenskar aðstæður.“

Elínborg segir að málþingið snúist í raun um þá spurningu, hvernig megi tífalda lífræna framleiðslu á Íslandi og hver þarf að gera hvað til þess að það geti orðið að veruleika. „Við vonumst til að koma auga á lausnir sem geta fært okkur nær því að ná markmiðum aðgerðaáætlunar stjórnvalda, að 10% landbúnaðarlands verði vottað lífrænt árið 2040.“

Aðgerðaáætlun um eflingu lífrænnar framleiðslu

Elínborg segir að Paul muni hefja daginn á erindi um uppbyggingu öflugs lífræns geira. Í kjölfarið verði fjallað um stuðningskerfi og starfsskilyrði lífrænna framleiðenda með aðkomu Bændasamtaka Íslands, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Landbúnaðarháskóla Íslands. Eftir hádegi verði fjallað um aðgerðaáætlun um eflingu lífrænnar framleiðslu, reynslu framleiðanda og hlutverk verslunar.

„Pallborðsumræður munu síðan brjóta daginn upp og gefa áheyrendum færi á að koma spurningum og sinni innsýn á framfæri.

Að þeim loknum mun Paul draga saman það sem fram hefur komið yfir daginn. Við viljum þannig freista þess að nýta þekkingu hans til að vinna áfram með þær hugmyndir og áskoranir sem koma upp á málþinginu.

Mér finnst mikilvægt að við horfum á eflingu lífrænnar framleiðslu sem sameiginlegt verkefni. Bændur þurfa að hafa aðgang að þekkingu og ráðgjöf, starfsskilyrðin þurfa að styðja við þróunina og afurðirnar þurfa að komast á markað. Með málþinginu viljum við leiða þessa aðila saman og blása til sóknar,“ segir Elínborg enn fremur.

Fundarstjóri verður Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur og stjórnarformaður Matís.

Málþingið er haldið með stuðningi atvinnuvegaráðuneytisins og því verður einnig streymt. 

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...

Nokkur hundruð kíló ruku út
Fréttir 9. nóvember 2026

Nokkur hundruð kíló ruku út

Matland brást skjótt við áhuga lesenda á að kaupa annars flokks lífrænar gulrætu...

Stefnt á mikla skógrækt
Fréttir 9. nóvember 2026

Stefnt á mikla skógrækt

Fyrirtækið Yggdrasill Carbon ehf., hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í ...

Áfram hægt að  kaupa hamsatólg
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram hægt að kaupa hamsatólg

Framleiðsla hamsatólgar heldur áfram. Í byrjun hausts leit út fyrir að Stóruvell...

Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt
Fréttir 9. nóvember 2026

Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt

Eldsneytisverð hefur hækkað verulega frá áramótum og Runólfur Ólafsson, framkvæm...