Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir og Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir eru fyrsta íslenska kvennateymið sem tekur þátt í Bocuse d‘Or.
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir og Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir eru fyrsta íslenska kvennateymið sem tekur þátt í Bocuse d‘Or.
Mynd / Aðsend
Fréttir 8. apríl 2026

Tryggði sér keppnisrétt í úrslitakeppni Bocuse d‘Or

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Snædís fyrst íslenskra kvenna til að taka þátt

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir tryggði sér á dögunum sæti í hinni virtu úrslitakeppni Bocuse d‘Or sem haldin er í Lyon í Frakklandi á tveggja ára fresti, með því ná tíunda sætinu í undankeppni Evrópuþjóða sem haldin var í Marseille í Frakklandi.

Snædís er yfirmatreiðslumaður á veitingastaðnum Fröken Reykjavík í Reykjavík en hefur víða komið við á sínum ferli; vann til að mynda á Mími á Hótel Sögu og hefur lengi verið virk í kokkalandliðinu sem liðsmaður, fyrirliði og landsliðsþjálfari.

Íslenskt wasabi og skyr

Keppninni var í grunninn skipt í tvo hluta. Í „On stage“ hlutanum þurfa keppendur að koma fram og kynna sín handbrögð og nálgun fyrir dómara og áhorfendum ­– um leið og eldað er. Þá er eldaður einn réttur og borin fram á 14 diskum – og var þemað fyrir þann rétt miðjarðarhafið. Hinn hlutinn fólst í að útbúa stórt fat þar sem búið er að ákveða skylduhráefni, en keppendur fá að velja þema í kringum það.

Að sögn Snædísar var fyrirfram ákveðið hráefnisþema fyrir „On stage“-hlutann smokkfiskur, sérstök tegund af franskri nautalund og grunngerð af aioli-sósu. „Við þurftum að koma með okkar útfærslu á réttinum og áttum að setja íslensk hráefni inn í réttina. Ég ákvað að nota íslenskt wasabi, skyr og leturhumar í mína,“ segir hún.

Fyrir stóra fatið var búið að velja red gurnard-fisk, ígulker, litla fjólubláa ætiþistla og kjúklingabaunir sem hráefnisgrunn.

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir og Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir eru fyrsta íslenska kvennateymið sem tekur þátt í Bocuse d‘Or. Myndir / Karl Petersson

Fjallkonan þema fyrir stóra fatið

Snædís ákvað snemma í ferlinu að þemað hennar fyrir stóra fatið yrði Fjallkonan, hin íslenska glæsimynd kvenna í öllu sínu veldi sem allir Íslendingar geti tengt við.

Á ensku ber þemað heitið She Wears the Sea in Silver og er sóttur innblástur í íslenska þjóðbúning kvenna og tengsl hans við hafið.

Snædís er einmitt fyrsta íslenska konan sem keppir í Bocuse d‘Or og aðstoðarmaðurinn var Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir. „Það er mikill heiður að fá að vera fyrsta konan sem keppir fyrir hönd Íslands. Aðstoðarmaðurinn gegnir mikilvægu hlutverki og er bæði mín vinstri og hægri hönd í gegnum ferlið allt. Hún er eini aðstoðarmaðurinn í öllum íslenska hópnum sem má vera með mér inni í búri þegar ég er að keppa.“

Þegar Snædís er spurð hvernig henni hafi fundist ganga í ferlinu öllu segir hún að helstu erfiðleikarnir hafi komið fram strax í æfingaferlinu þar sem ljóst varð að erfitt yrði að gera ákveðna hluti fullkomlega.

Miðjarðarhafsþema Snædísar. Sérstök tegund af franskri nautalund og aiolisósa. Snædís notaði íslenskt wasabi, skyr og leturhumar í sína útfærslu.

Eiga ótrúlega mikið inni

Úrslitakeppnin verður haldin í janúar á næsta ári. Snædís segist nú taka pásu frá þessu öllu í smá tíma, hún ætli að hreinsa hugann í Ölpunum og vinna úr keppninni. „Vinnan er rosaleg og held að fáir geri sig grein fyrir hversu margar klukkustundir og dagar fara í að æfa og undirbúa fyrir svona keppni.“

Hún segir að það megi margt læra af Evrópukeppninni. „Það er hægt að nýta sér þekkinguna og reynsluna úr henni, við eigum ótrúlega mikið inn. Það nefnilega fór mjög margt úrskeiðis í keppninni sjálfri en það er samt eðlilegt að það sé ekki allt 100 prósent í svona aðstæðum.“ Ekki muni liggja fyrir hvað eigi að elda í lokakeppninni fyrr en í haust, né hvaða hráefni megi nota. 

Stefnan er sett á topp fimm í úrslitakeppninni, en til að það náist þurfi allt að vinna með þeim og leggja þurfi allt í sölurnar á næsta tímabili og meira til.

Skylt efni: Bocuse d’Or | kokkakeppni

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...