Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Margföldun innflutnings  á unnum mjólkurafurðum
Mynd / Úr safni
Í deiglunni 7. apríl 2026

Margföldun innflutnings á unnum mjólkurafurðum

Höfundur: Harpa Ólafsdóttir
Harpa Ólafsdóttir.

Það er óhætt að segja að bændur á Íslandi hafi nokkuð til síns máls þegar þeir benda á að þeir eigi sífellt meira í vök að verjast gagnvart auknum innflutningi á landbúnaðarvörum. Slaknað hefur verulega á tollvernd til bænda undanfarin ár sem er nauðsynleg til að tryggja sanngjarna samkeppni fyrir innlendan landbúnað. En ýmsir fleiri þættir koma til sem gerir bændum erfitt fyrir að keppa við lönd sem bjóða upp á mun lægra afurðaverð, svo sem hár launakostnaður á Íslandi og takmarkaður fjárfestingastuðningur hins opinbera. Sem dæmi þá hefur framleiðsla á nautakjöti minnkað um 2% frá 2017 til 2025 en innflutningur aukist um 117% á sama tíma.

Líkt og fram kom í seinna tölublaði febrúarmánaðar Bændablaðsins hefur innflutningur á ýmsum mjólkurvörum svo sem osti/smjöri, ís og jógúrt tvöfaldast frá árinu 2017 til 2025. Þessar vörur bera allar tolla sem hefur þó rýrnað talsvert á undanförnum árum sem þýðir að hagstæðara er að flytja afurðirnar inn en áður. Tollkvótar eru á ýmsar kjötafurðir og osta en ekki á ís og jógúrt. Þannig var t.d. heimilt að flytja inn 610 tonn af osti án tolla árið 2025 en tollkvóti á osta var aukinn í skrefum frá árinu 2017 þegar einungis var heimilt að flytja inn 100 tonn af osti án tolla. Þrátt fyrir aukna tollkvóta hefur innflutningur á ostum aukist stöðugt undanfarin ár og voru sem dæmi flutt inn tæplega 300 tonn umfram tollkvóta árið 2025.

En aukinn innflutningur þýðir jafnframt að tekjur ríkisins af tollum hefur aukist. Ef við skoðum þróun á tollatekjum ríkisins af osti og ís frá árinu 2017 til 2025, þá má sjá að þær hafa nær þrefaldast á osti og rúmlega tvöfaldast á ís. Þannig námu tekjur ríkisins af innflutningstollum á osti ríflega einum milljarði króna árið 2025 og tæplega 200 milljónum króna af ís.

En það er einnig vert að gefa gaum að innflutningi á unnum landbúnaðarvörum sem í flestum tilvikum er tollfrjáls. Þannig er flutt inn talsvert magn af mjólkurdrykkjum sem flokkast sem unnar afurðir.

Frá árinu 2017 til 2025 hefur innflutningsverðmæti á þessum vörum næstum því tífaldast, frá því að vera flutt inn fyrir 39 milljónir króna árið 2017 í 369 milljónir árið 2025. Í tonnum talið sexfaldaðist innflutningur á þessum vörum þar sem hann fór úr 130 tonnum árið 2017 í 775 tonn árið 2025.

Það hefur verið opinber stefna stjórnvalda að styðja við íslenskan landbúnað með það að leiðarljósi að landið verði eins sjálfbært með innlendar afurðir eins og kostur er. Í því samhengi er mikilvægt að fylgjast vel með þróun innflutnings á landbúnaðarafurðum en þá er ekki nægjanlegt að bera saman innflutning á einstaka afurðum sem eru óunnar við það magn sem framleitt er hér innanlands. Bændur á Íslandi eru ekki síður að keppa við innflutning á matvælum þar sem oft þarf lítið til að þær séu skilgreindar sem unnar landbúnaðarafurðir.

Skylt efni: hagtölur | Mjólk | innflutningur

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...