Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Birkilundur í brattri fjallshlíð.
Birkilundur í brattri fjallshlíð.
Mynd / Aðsendar
Á faglegum nótum 7. nóvember 2023

Birkivistkerfi og endurheimt þeirra

Höfundur: Kristín Svavarsdóttir, vistfræðingur hjá Landgræðslunni

Miklar breytingar hafa orðið á vistkerfum Íslands frá land- námi sem er reyndar í takt við náttúrusögu flestra landa. Við upphaf landnáms var ásýnd landsins ólík því sem nú er.

Meðal annars er talið að birkiskógar hafi þakið um fjórðung landsins en núverandi útbreiðsla þeirra er aðeins 1,5%. Birki er eina innlenda trjátegundin sem myndað hefur skóga hér frá lokum síðustu ísaldar og eru því birkiskógar einu náttúrulegu skógarnir okkar og njóta þeir sérstakrar verndar í lögum um náttúruvernd. Á síðari árum hefur aukin áhersla verið á vernd og endurheimt birkiskóga í stefnumótun ríkisins, m.a. í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og nýrri stefnu og aðgerðaáætlun um landgræðslu og skógrækt, Land og líf. Auk þess hafa stjórnvöld sett það markmið í tengslum við hið alþjóðlega Bonn ákall (Bonn Challenge) að árið 2030 verði búið að leggja drög að því að birkiskógar vaxi á 5% landsins. Því markmiði verður einungið náð með því að nýta á markvissan hátt getu birkisins til sjálfgræðslu. Mikil aukning á útbreiðslu birkis á Skeiðarársandi og víðar um land á síðari árum benda þó til þess að það geti verið raunhæft ef rétt er að málum staðið.

Til að vel takist til við endur- heimt vistkerfa er mikilvægt að byggt sé á vísindalegri þekkingu. Árið 2021 fékk rannsóknaverkefnið Endurheimt birkivistkerfa á 21. öld – áskoranir, leiðir og ávinningur (BirkiVist) styrk frá Markáætlun um samfélagslegar áskoranir en verkefnið er samstarfsverkefni margra háskóla, stofnana og félagasamtaka.

Tilgangur verkefnisins er að tryggja að aðgerðir við endurheimt birkivistkerfa séu byggðar á bestu fáanlegu þekkingu hverju sinni og að auka skilvirkni við endurheimt birkivistkerfa á Íslandi með áherslu á sjálfgræðslu. Verkefnið fjallar bæði um vistfræðilegar og félagslegar áskoranir og tækifæri, auk þess að meta mögulegan ávinning endurheimtarinnar fyrir líffræðilega fjölbreytni, loftslag og mannlíf.
Gamlir birkiskógar og -lundir sem finnast víða um land gegna lykilhlutverki við endurheimt birkivistkerfanna; þaðan getur birkið dreift sér og þeir geyma einnig erfðaauðlindir úr birkiskógum fortíðarinnar. Þegar ýtt er undir sjálfgræðslu þarf að huga annars vegar að því hvort og þá hvar frædreifing eigi sér stað og hins vegar hvort aðstæður á yfirborði séu þannig að fræ geti spírað og planta vaxið þar upp (örugg set). Ef þessir þættir eru til staðar, fræframboð og örugg set, ætti birki að geta numið land nema að landnýting, s.s. sauðfjárbeit, geti hamlað landnámi þess. Í BirkiVist verða þróuð líkön sem ætluð eru að aðstoða við ákvarðanir um hvort og þá hvaða inngrip þurfi til að stuðla að sjálfgræðslu birkis á hverjum stað, til að ná sem mestum árangri með sem minnstum inngripum. Líkönin nota m.a. gögn um hvar er að finna birki sem geti verið fræuppspretta fyrir það svæði sem unnið er að endurheimt á, auk upplýsinga um útbreiðslu vistgerða.

Einkum er byggt á kort- lagningu Skógræktarinnar yfir útbreiðslu birkiskóga á Íslandi (sjá skóglendisvefsjá fyrir náttúrulegt birki á vefsíðu Skógræktarinnar, www.skogur.is) sem miðar við að lágmarki 0,5 ha svæði þar sem krónuþekja nær 10%. Birkilundir sem ekki ná þeim lágmörkum geta líka verið fræuppspretta og því er mikilvægt að hafa einnig upplýsingar um þá. Því leitum við til almennings um að aðstoða við þá skráningu ef einhverjir vita um litla birkilundi eða rekast á þá á ferðum sínum um landið. Einungis þarf að taka mynd af lundinum á símann sinn og passa að kveikt sé á staðsetningu (gps) þannig að hún komi fram í myndaupplýsingunum. Skráningarform hefur verið útbúið á vefnum (https://birkivist.is/utbreidsla-birkis/) þar sem hægt er að hlaða inn viðkomandi mynd og annað sem við á.
Við erum þakklát fyrir alla hjálp sem við fáum í þessu verkefni.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...