Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Hvaleyrarskóli vann, og það á heimavelli!
Hvaleyrarskóli vann, og það á heimavelli!
Líf og starf 13. maí 2026

Blómlegt skáklíf í Hafnarfirði

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Undanfarna mánuði hefur skáklífið blómstrað í Hafnarfirði. Auk skákæfinga Skákdeildar Hauka fyrir börn og unglinga, hafa bæst við mánaðarleg skákmót sem hafa gengið framar vonum. Þau eru yfirleitt haldin um miðjan eða seinni hluta mánaðarins á fimmtudagskvöldi. Hægt er að finna mótin á mótaáætlun skák.is. Þegar nýjum mótum er komið á fót tekur oft langan tíma að byggja þau upp og fá almennilega mætingu. Þetta þekki ég sjálfur þegar ég kom að mótahaldi TR á þriðjudagskvöldum fyrir nokkrum árum, en nú er teflt þar tvisvar í viku eins og í gamla daga, á þriðjudögum og fimmtudögum, allt árið. Stundum var mætingin svekkjandi, og það tók tíma að komast upp í tveggja stafa tölu. Það er ekki staðan hjá Haukum en í kringum 40 hafa verið að sækja mótin. Kannski hjálpar til að mótin séu aðeins sjaldnar, einu sinni í mánuði, og hvert mót auglýst sem stakur viðburður. 

Einnig gengur skólaskákin vel í Hafnarfirði. Nú á vormánuðum voru haldnar grunnskólakeppnir í bæði eldri og yngri flokkum. Skólarnir sendu þar sveitir til leiks sem tefldu gegn öðrum skólum bæjarins. Hvaleyrarskóli vann bæði í miðstigi og elsta stigi. Á myndinni er sigurlið skólans í miðstigi. Kiwanisklúbburinn Hraunborg ásamt Helga Ólafssyni stórmeistara (og skákpistlahöfundi Morgunblaðsins) komu að mótshaldinu. Þetta helst allt í hendur, og af þessum mótum rata margir á æfingar og mót og leggja skákina fyrir sig. 

Reyndar er skólaskákin í góðum málum um land allt. Nú um helgina fer fram Landsmót í skólaskák í Ólafsvík. Gaman er að segja frá því, að öll svæðamótin, áður kjördæmamót, hafa verið endurvakin þannig að keppendur verða frá öllum landshlutum. Í fjölda ára var ekkert svæðamót á Austurlandi og það er einkar ánægjulegt að það hafi verið endurvakið. Keppendur munu koma frá Reykjavík, Kraganum ásamt Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og eystra, Austurlandi og Suðurlandi. Teflt verður í þremur aldursflokkum, tólf í hverjum flokki þar sem teflt er allir við alla með atskáktímamörkum. Teflt verður í Klifi Ólafsvík, glæsilegu félagsheimili. Þar verður nóg pláss! 

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

Gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Réttalistinn 2026
Líf og starf 2. september 2026

Réttalistinn 2026

Bændablaðið hefur síðustu ár tekið saman réttalista og birtast hér dagsetningar ...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 31. ágúst 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn á vísnagátunni sem birtist í 15. tölublaði Bændablaðsins.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 27. ágúst 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan þarf að muna að enginn mannlegur einstaklingur er gallalaus. Hvorki hún s...

Vaðmál og voðir
Líf og starf 26. ágúst 2026

Vaðmál og voðir

Bör Börsson, söguhetja samnefndrar skáldsögu sem flutt var í Ríkisútvarpinu árin...

Þeir skora sem þora!
Líf og starf 25. ágúst 2026

Þeir skora sem þora!

Hart var barist fram á síðasta spil og úrslit tvísýn í viðureign Vestra gegn Kjö...

Teflt erlendis
Líf og starf 25. ágúst 2026

Teflt erlendis

Íslendingar hafa verið iðnir við að tefla erlendis í sumar eins og venjan er. Þó...

Hvað er svona merkilegt  við íslensku ullina?
Hannyrðahornið 24. ágúst 2026

Hvað er svona merkilegt við íslensku ullina?

Landnámsmenn sem fóru þarna forðum frá Skotlandi, Noregi og víðar og héldu í nor...

Vísnahornið
Líf og starf 24. ágúst 2026

Vísnahornið

Stera-Pétur læknir fékk sitt auknefni vegna ummæla er féllu, varðandi notkun kra...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f