Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Rekstrarerfiðleikar halda áfram
Mynd / HKr
Fréttir 3. júní 2026

Rekstrarerfiðleikar halda áfram

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Ístex getur ekki greitt bændum fyrir ullarinnlegg þeirra núna í júní, en býður þeim að umbreyta útistandandi kröfum í hlutafé í fyrirtækinu eða að þiggja vörur upp í skuldirnar.

Ístex hefur glímt við mikinn rekstrarvanda á undanförnum misserum sem rekja má að stærstum hluta til verulegs samdráttar í sölu á vörum frá september 2024 til september 2025, sem nam 356 milljónum króna. Hluta vandans má einnig rekja til þess að ráðist var í miklar fjárfestingar á árunum 2023 og 2024 til að mæta þeirri sívaxandi eftirspurn sem var eftir vörum Ístex á þeim tíma.

Reksturinn batnað

Á árinu 2025 náði fyrirtækið ekki að greiða bændum neitt vegna innleggs á því ári, en í byrjun þessa árs náðist að greiða tæplega helminginn af heildarskuldinni við bændur. Í nýlegu bréfi Sigurðar Sævars Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Ístex, til bænda segir að sölutregðan hefði haft veruleg áhrif á lausafjárstöðu fyrirtækisins. Vegna þess hafi félagið þurft að ýta skuldum til bænda, birgja og annarra aðila á undan sér.

„Rekstur félagsins hefur batnað frá því í haust, m.a. vegna sparnaðaraðgerða sem ráðist var í og að útflutningur hefur aukist í vetur. Á móti kemur að sala til NorðurAmeríku er enn þá erfið og einnig er samdráttur í sölu á Lopa og ullarteppum til innlendra aðila sem selja til ferðafólks.

Því miður neyðumst við að tilkynna að Ístex hf. er ekki fært að inna af hendi hefðbundnar peningagreiðslur fyrir ullina að svo stöddu. Okkur þykir þetta miður, enda vitum við hversu mikilvægt þetta uppgjör er fyrir rekstur ykkar búa,“ segir í bréfinu.

Hlutafé í Ístex

Ístex býður því bændum upp á tvo kosti. Annars vegar að umbreyta útistandandi kröfum að hluta eða öllu leyti í hlutafé í Ístex. Þetta sé hægt að gera með að hafa samband beint í gegnum netfangið istex.hf@istex. is eða í gegnum vefsíðuna Ullarmat. is. Hins vegar að taka við ákveðnum vörum félagsins, líkt og ullarteppum og ullarsængum.

„Við teljum að þessar leiðir gætu nýst bændum og hjálpað til á þessum erfiðu tímum. Við munum kynna framkvæmd þessara úrræða frekar í lok mánaðar.

Áfram verður unnið að eðlilegri fjármögnun og við gerum allt í okkar valdi til að styrkja stöðu Ístex og íslenskrar ullar á nýjan leik,“ segir enn fremur í bréfinu til bænda.

Skylt efni: Ístex

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...

Gróðurhúsarækt enn öflug
Fréttir 31. ágúst 2026

Gróðurhúsarækt enn öflug

Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar snemma í vor var samþykkt tillaga um stof...

Aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna framkvæmda
Fréttir 31. ágúst 2026

Aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna framkvæmda

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að heildarlosun gróðurhúsalofttegunda hafi ...

Yfir 700 þúsund seiði afhent í ágústmánuði
Fréttir 31. ágúst 2026

Yfir 700 þúsund seiði afhent í ágústmánuði

Í ágústmánuði, sem er nú senn á enda, hefur Thor landeldi í Þorlákshöfn afhent u...

Nýr starfshópur um ferjuáætlun
Fréttir 31. ágúst 2026

Nýr starfshópur um ferjuáætlun

Nýr starfshópur um mótun nýrrar ferjuáætlunar hefur hafið störf. Hópnum er ætlað...

Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026
Fréttir 31. ágúst 2026

Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026

Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum fr...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f