Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Söngleikurinn um Pílu pínu eftir Kristján frá Djúpalæk hefur glatt hjörtu landsmanna um áraraðir
Söngleikurinn um Pílu pínu eftir Kristján frá Djúpalæk hefur glatt hjörtu landsmanna um áraraðir
Menning 6. október 2026

Píla pína

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Leikfélag Hveragerðis, sem hefur glatt gesti og gangandi í rétt tæp áttatíu ár núna, undirbýr af kappi uppsetningu á ævintýrasöngleiknum um músina sem allir þekkja, hana Pílu pínu.

Leikfélagið var stofnað á vetrarmánuðunum 1947, örlítið yngra en Hveragerðisbær sem fagnar stórafmæli sínu með fjölbreyttri afmælisdagskrá nú allt árið. Þótti vel við hæfi að setja söngleikinn upp af því tilefni, heiðra verk höfundarins sem bjó um árabil í Hveragerði, en Píla pína er þekkt og ástsælt íslenskt barnaleikrit og ævintýrasaga eftir skáldið Kristján frá Djúpalæk. Hann er einnig höfundur ljóðanna, sem eru flutt undir lögum Heiðdísar Norðfjörð og Ragnhildar Gísladóttur.

Aðalpersónan er litla, hugrakka og lífsglaða músin Píla pína sem býr í músabyggðinni í Lyngbrekku og lendir í ýmsum ævintýrum. Verkið kom upphaflega út sem bók og hljómplata árið 1981 og hefur tónlistin úr verkinu, svo sem lögin „Strengir“ og „Saknaðarljóð Gínu mömmu“ fylgt mörgum kynslóðum Íslendinga. Sagan hefur nokkrum sinnum verið sett á svið sem ævintýrasöngleikur hjá atvinnu- og áhugaleikfélögum um allt land en nú tekur leikstjórinn Gunnar Gunnsteinsson við taumunum hjá leikfélagi Hveragerðis og er næsta víst að sýningin eigi eftir að gleðja marga.

Öll tónlist hefur verið sett í nýjan búning og ljá nýjar útsetningar verkinu ferskan blæ. Leikritið um Pílu pínu skipar stóran sess í hjörtum margra Íslendinga, en saga hennar og ævintýri hafa glatt margar kynslóðir barna. Áætlað er að frumsýna í byrjun október og miða má nálgast á tix.is innan skamms. 

Skylt efni: Hveragerði | Áhugaleikhús

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 20. nóvember 2026

Stjörnuspá vikunnar

Þörfin fyrir nýja reynslu er bogmanninum ofarlega í huga, en skyldurnar heima fy...

Vísnahornið
Líf og starf 18. nóvember 2026

Vísnahornið

Steingrím Thorsteinsson þarf ekki að kynna. Hann yrkir svona fallega um haustið ...

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga
Líf og starf 18. nóvember 2026

Stephan Briem með alþjóðlegan áfanga

Fjögur íslensk skáklið tóku þátt á Evrópumóti taflfélaga (European Club Cup), sí...

Gosi banar geimi
Líf og starf 18. nóvember 2026

Gosi banar geimi

Það var dálítið vandræðalegur spilari sem þurfti að upplýsa fyrir sveitarfélögum...

Hafmeyjan og sólskríkjan
Líf og starf 17. nóvember 2026

Hafmeyjan og sólskríkjan

Laugardaginn 29. mars 1947 hófst gos í Heklu eftir rétt rúmlega aldarlangt eldsu...

Er hár yðar óstýrilátt?
Líf og starf 13. nóvember 2026

Er hár yðar óstýrilátt?

Margir þekkja þá raun að eiga við hárið á sér, sumir fremur öðrum auðvitað og ei...

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar

Bandalag íslenskra listamanna (BÍL) hefur ákveðið að hrinda af stað átaki þar se...

Aldarafmæli Láru Brynhildar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Aldarafmæli Láru Brynhildar

Lára Brynhildur Eiríksdóttir, sem býr á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akurey...