Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Ekkert um samningsmarkmiðin
Mynd / Úr safni
Skoðun 8. apríl 2026

Ekkert um samningsmarkmiðin

Höfundur: Margrét Ágústa Sigurðardóttir

„Óásættanlegt er að ganga til aðildarviðræðna að þjóðinni forspurðri og án þess að ítarleg greining liggi fyrir um samningsmarkmið, hagsmuni og áherslur í slíkum samningaviðræðum. Allar forsendur eru til þess að slík umræða geti farið fram á upplýstan, uppbyggilegan og lýðræðislegan hátt og sé eðlilegur undanfari þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort fara eigi í aðildarviðræður.“

Þetta sagði í nefndaráliti 1. minnihluta utanríkismálanefndar árið 2009 varðandi þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að sambandinu.

Í umræddu nefndaráliti sagði einnig að í umræðum um hugsanlega aðild Íslands að sambandinu hafi ýmsir sem „hlynntir væru aðild gengið afar langt í yfirlýsingum um að sæki Ísland um aðild að Evrópusambandinu séu verulegar líkur á því að væntanlegar aðildarsamningur verði þjóðinni einkar hagstæður, ýmist þannig að undanþágur verði veittar frá þeim meginreglum sem Evrópusambandið starfar eftir eða þær hafi litla sem enga þýðingu í framkvæmd fyrir Ísland gerist það aðili að sambandinu ...“

Þá segir enn fremur í umræddu nefndaráliti minnihlutans að í störfum nefndarinnar hafi ítrekað komið fram að engar líkur væru á því að Ísland gæti í aðildarviðræðum við Evrópusambandið búist við varanlegum undanþágum frá þeim meginreglum sem í gildi væru innan sambandsins og séu þau viðhorf í samræmi við þær niðurstöður ,,sem áður hafa komið fram í skýrslum og greinargerðum sem unnar hafa verið af hálfu íslenskra stjórnvalda á umliðnum misserum og árum.” 

Nefndur minnihluti fór yfir mikilvægi þess að samningsmarkmiðin lægju fyrir áður en farið yrði í þjóðaratkvæðisgreiðslu um aðildarviðræður.

Núna fyrir þinginu liggur fyrir þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðisgreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í henni er kveðið á um að setja það í hendur þjóðarinnar að ákvarða hvort að viðræðum við sambandið skuli fram haldið. Ekkert er vikið að samningsmarkmiðunum sem er augljós forsenda þess að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun um það hvort að farið sé í aðildarviðræður eða ekki. Athygli vekur að núverandi utanríkisráðherra er annar tveggja sem undirrita áðurnefnt minnihlutaálit árið 2009.

Höfundur er framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...