Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Sævar Jóelsson og Bjarni Stefánsson hjá Fóðurstöð Suðurlands. Þeir eru báðir minkabændur á Suðurlandi.
Sævar Jóelsson og Bjarni Stefánsson hjá Fóðurstöð Suðurlands. Þeir eru báðir minkabændur á Suðurlandi.
Mynd / ál
Viðtal 24. maí 2024

Úrgangur endurunninn sem fóður

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Á Selfossi er starfrækt Fóðurstöð Suðurlands sem framleiðir fóður fyrir fimm af sex minkabúum landsins. Hráefnið er að stærstum hluta fisk- og sláturúrgangur sem annars færi til spillis.

Bjarni Stefánsson, starfandi stjórnarformaður, segir að skilgreina mætti Fóðurstöð Suðurlands sem endurvinnslufyrirtæki og hafi hugsanlega verið eitt af þeim fyrstu á því sviði.

„Við erum að minnka kolefnisspor landsins með því að vinna lífrænan úrgang,“ segir hann og vísar þar til skýrslu sem var gerð á vegum verkfræðistofunnar Eflu árið 2019.

Þegar mest var á fyrri hluta síðasta áratugar voru framleidd 3.300 tonn af fóðri á ári. Nú sé framleiðslan undir helmingi af því sem hún gæti verið.

Lykillinn að góðu minkafóðri sé ferskt hráefni og hreinlæti. „Þetta er raunverulega eins og að elda mat,“ segir Bjarni og líkir afurðinni við kjötfars hvað varðar útlit og áferð.

Þar sem hráefnið komi yfirleitt allt úr matvælavinnslu væri tæknilega hægt að nýta minkafóðrið til manneldis þó Bjarni segist ekki hafa lagt það sér til munns. Lítil sem engin lykt finnst af minkafóðrinu í vinnslusalnum.

Bjarni Stefánsson er starfandi stjórnarformaður Fóðurstöðvar Suðurlands sem er sameign loðdýrabænda.

Hráefnið innlent

Hann segir að yfir 90% af hrá efnunum sé úrgangur úr matvælavinnslu, 60–70% komi úr sláturhúsunum og 20–30% komi úr fiskvinnslu.

Nálægt 10% innihaldsins sé bygg sem sé til að binda fóðrið saman og sé leitast við að nota innlent. Þá sé fóðrið vítamín- og steinefnabætt og blandað með sýru til þess að auka geymsluþol. Hráefnið geti því verið nær alfarið íslenskt. Um þessar mundir sé sláturúrgangurinn aðallega frá kjúklingarækt, en fóðurstöðin hafi einnig nýtt innmat úr öðru búfé.

„Þetta hefur rokkað eftir því hvað er hentugast að vinna og hvernig framboðið er af hverju efni,“ segir Bjarni. Vegna samdráttar í framleiðslunni séu ekki notuð eins mörg hráefni og áður sem leiði af sér einfaldari framleiðslu.

Frá fiskvinnslunni komi aðallega hryggir og hausar sem verða eftir við flökun. Sævar Jóelsson verkstjóri segir nýjustu viðbótina í hráefnaflóruna vera seiði sem misfarist hjá fiskeldinu sem hafi verið notuð á tímabili og gáfu góða raun. Fóðurstöðin fær greitt úrvinnslugjald fyrir þann úrgang sem hún tekur við og telur Sævar þá aðila sem nýta þennan farveg vera þakkláta fyrir að eiga fóðurstöðina að. Bjarni bætir við að þetta sé afar hagkvæm leið til endurvinnslu þar sem ekki þurfi að hita hráefnið eða gera miklar breytingar á því.

Fóðurstöð Suðurlands er í iðnaðarhúsi á Selfossi.

Breytilegt milli árstíða

Orkuþörf minkanna er mismunandi eftir árstíðum. Yfir háveturinn er framleitt orkuminnsta fóðrið, en Bjarni segir að þá skipti ferskleikinn höfuðmáli til þess að pörun og meðganga dýranna heppnist sem best. Minkalæðurnar gjóta á vorin og eftir því sem hvolparnir færa sig meira frá mjólk þurfi að auka orkuna í fóðrinu, sem trappast svo upp og er það sterkast síðsumars og á haustin.

Yfir háveturinn er keyrt með fóður á bæina einu sinni í viku þar sem það geymist betur í kuldanum og þörfin er minni. Á vorin og fram í júní er keyrt tvisvar í viku og eftir það er keyrt þrisvar í viku fram í desember. Fóðrið er geymt í einangruðum sílóum á búunum.

Sex tonn í einu

Hráefnið kemur á Fóðurstöðina í körum og er sett inn á kæli. Síðan er það hakkað til að fara beint í fóðurgerð eða fryst í blokkir sem fara í geymslu.

Þegar fóðrið er framleitt úr frosnum blokkum eru þær fyrst mölvaðar með sérstökum brjót áður en hráefnið fer í hakkarann. Þegar unnið er með ferskt fóður fer það beint í hakkavélina þaðan sem það fer í blandara. Eftir það fer fóðrið í síló, þaðan sem hægt er að dæla því beint á tankbíl.

Sævar segist blanda sex tonnum í einu og tekur ferlið einn og hálfan tíma. Fóðurbíllinn tekur mest fjórtán tonn, en þar sem flest minkabúin eru nálægt Selfossi er hægt að keyra út á milli þess sem útbúin er næsta blanda.

Þegar búið er að vinna fóðrið og koma því á búin greiða bændur nálægt fjörutíu krónum fyrir kílóið, sem Bjarni segir aðallega skýrast af miklum fastakostnaði sem hafi aukist hlutfallslega eftir að framleiðslan minnkaði.

Sævar Jóelsson verkstjóri er eini starfsmaður fóðurstöðvarinnar í fullu starfi á meðan einn bílstjóri sinnir útkeyrslu í verktöku þegar þess þarf. Fyrirtækið er í sameign loðdýrabænda.

Minkafóðrinu er hægt að líkja við kjötfars hvað varðar útlit og áferð.

Skylt efni: loðdýrarækt

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...