Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Tangó, tvist og fúin spýta
Skoðun 20. maí 2016

Tangó, tvist og fúin spýta

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Sagt er að það þurfi tvo til að dansa tangó ef eitthvert vit á að vera í verknaðinum. Kannski forystumenn í innflutningsverslun þurfi eitthvað að skoða það nánar. 
 
Árum saman hefur verið hafður uppi hávær áróður fyrir nauðsyn þess að lækka hér tolla á landbúnaðarvörum og öðrum nauðþurftum. Alltaf er látið fylgja með að það sé umhyggja fyrir hag neytenda sem ráði þeirri afstöðu. Þannig hafa menn leynt og ljóst reynt að fá almenning til að styðja tillögur sem vitað er að geta haft geigvænlegar afleiðingar fyrir íslenskan landbúnað. Þar með hugðust forystusauðir innflytjendaelítunnar næla sér í dansfélaga fyrir tangósýninguna. 
 
Innflutningsagentum hefur vissulega orðið nokkuð ágengt í þessari herferð sinni eins og berlega hefur mátt sjá á samfélagsmiðlum. Þar hafa ýmsir rólyndismenn risið upp á afturlappirnar og bölvað bændum fyrir að vera afætur á ríkissjóði. Flottast þykir greinilega í þeirri umræðu ef vel tekst til að hnýta alla bændur með tölu við það „hræðilega batterí" Framsóknarflokkinn og krydda það uppbyggilegum fúkyrðaflaumi. Nokkrir „örugglega sjálfstæðismenn“ fá auðvitað að fljóta með og allir eiga þeir eflaust líka fullar ferðatöskur af peningum á Tortóla. Látum helvítin allavega reyna að afsanna þá fullyrðingu frammi fyrir „almennings­álitinu“. Svo ná menn líka mörgum „lækum“ frá „réttsýnu“ fólki fyrir þess háttar textasamsuður. Þykir þar örugglega útilokað að í þessum ranni geti leynst ærlegt fólk af holdi og blóði með tilfinningar. Hvað þá að það eigi börn sem hafa bæði heyrn og kunna að lesa. 
 
Ný úttekt Alþýðusambands Íslands sýnir þó svo ekki verður um villst að sannleikurinn er ekki alltaf í takt við þau tré sem menn veifa. Í tollaniðurfellingaráróðrinum hafa menn greinilega frekar kosið að veifa röngu tré en öngu. Niðurstaða ASÍ er nefnilega á þá lund að tollaniðurfellingin á skóm og fatnaði er alls ekki að skila sér til neytenda eins og lofað var. Tangóinn er því að breytast í tvistsýningu með sólódansara. 
 
Krafan um niðurfellingu verndartolla af landbúnaðarframleiðslu hefur verið sett fram með sama hætti. Þar hefur verið fullyrt árum saman að matvælaverð á Íslandi sé með því hæsta sem þekkist í Evrópu, já og bara ef ekki heiminum öllum! Skiptir þá engu þó margítrekað hafi verið lögð fram töluleg gögn frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, sem sýna að svo er alls ekki. Mörg súlurit frá Eurostat hafa verið birt í Bændablaðinu á liðnum árum sem sýna þetta. Meira að segja að Ísland sé ítrekað með lægsta matvælaverð á Norðurlöndum. Það getur þó verið erfiðara en ætla mætti að fá fólk til að trúa sannleikanum, þegar góð lygi er látlaust framreidd á listilegan hátt á borð neytenda.
 
Muna menn nokkuð eftir stóra kjötskortsmálinu um árið? Þá kenndu stórverslanir bændum um að standa ekki í stykkinu við að útvega nægt kjöt. Þetta væri skýr sönnun þess að fella þyrfti niður tolla og hefja innflutning í stórum stíl. Það var þó fátt um svör þegar fulltrúi Bændablaðsins fór á milli viðkomandi verslana og komst að því að kindakjöti hafði verið mokað úr kæliborðum stærstu verslananna og  komið fyrir annars staðar til að sanna fullyrðinguna. 
 
Væntanlega halda menn þó ótrauðir áfram að veifa fúna trénu framan í neytendur, í þeirri von að þeir trúi því á endanum að ekki sé á jarðríki til fallegri spýta. 
Íslenskt handverk í hávegum
Fréttir 22. ágúst 2026

Íslenskt handverk í hávegum

Safnasafnið, ein af perlum Eyjafjarðar, var stofnað þann 17. febrúar 1995 af hjó...

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar
Fréttir 21. ágúst 2026

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar

Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt áfangaskýrsluna Greining vegna endurskoðunar st...

Beint frá býli dagurinn um helgina
Fréttir 20. ágúst 2026

Beint frá býli dagurinn um helgina

Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn 23. ágúst. Þetta er fjórða ár...

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO
Fréttir 20. ágúst 2026

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis h...

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg
Fréttir 20. ágúst 2026

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg

Njálufélagið undirbýr nýja og glæsilega útgáfu Njálu með haustinu en fyrirhugaðu...

Dagskrá Ullarvikunnar gleður
Fréttir 18. ágúst 2026

Dagskrá Ullarvikunnar gleður

Ullarvika verður haldin á Suðurlandi dagana 27. september til 3. október í haust...

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar

Fjarðabyggð undirbýr nú næsta áfanga jarðhita- leitar á Fáskrúðsfirði, en áforma...

Rannsóknasetur íslenska hestsins
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsóknasetur íslenska hestsins

Nú er unnið að því að koma upp rannsóknasetri íslenska hestsins á Hólum í Hjalta...